Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Fyrsta tækið

Það getur verið yfirþyrmandi tilhugsun að koma inn í kynlífstækjaverslun og finna sitt fyrsta tæki.


Spurning sem við fáum mjög oft í versluninni hjá okkur er "Hvað er eiginlega best fyrir byrjendur?"


Við viljum að öll geti notið sín í kynlífi og sjálfsfróun, hérna er því listi yfir tæki sem henta einstaklega vel fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í átt að auknum unaði.


Það er auðvitað persónubundið hvað hvert og eitt leitast eftir þegar kemur að kynlífi og sjálfsfróun, en listinn getur gefið góða hugmynd um hvar er hægt að byrja.



Fyrir Píkur


Píkur eru eins ólíkar og þær eru margar. Það er þó staðreynd að meirihluti píkueigenda fær ekki fullnægingar í gegnum örvun í leggöng heldur í gegnum snípinn.


Sog og titringur eru helstu aðferðirnar til að örva sníp.


Titrarar

Við mælum með fyrir byrjendur að prófa tæki með titring. Vörurnar frá Reset hafa reynst alveg ótrúlega vel og þá sérstaklega fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref með kynlífstæki.


Desire hefur verið vinsælasta tækið okkar í yfir fimm ár í röð. Desire er G-spot titrari sem hentar einstaklega vel í flesta örvun, svosem á sníp, í leggöng og fleira. Allar vörurnar frá Reset hafa Reset eiginleika. Einfaldlega þrýstu á reset takkann þegar þú færð fullnægingu, tækið fer þá í lægstu stillingu, og finndu hvernig fullnægingin lengist, verður dýpri og enn unaðslegri en áður fyrr.


Flirt og Dream frá Reset eru mögulega vinsælustu byrjendatækin okkar.

Flirt er einstaklega mjúkt, lítið og nett egg sem leynir á sér. Lögunin á egginu gerir það að verkum að eggið leggst fullkomlega á snípinn og veitir alveg geggjaða upplifun.


Dream er fullkomið fyrir þau sem vilja nett bullet til að auka unað í sjálfsfróun eða kynlífi. Dream er fyrirferðalítð bullet sem er hugsað til þess að örva snípinn. Tækið er einstaklega hljóðlátt og hentar fullkomlega í sjálfsfróun eða í kynlífi.


Allar vörurnar frá Reset eru úr umhverfisvænu silíkoni, eru endurhlaðanlegar og vatnsheldar.


Sogtæki

Þegar kemur að sogtækjum er margt úr að velja. Fyrir píkueigendur sem hafa aldrei upplifað sogtæki áður mælum við heilshugar með One Night Stand frá Satisfyer. One Night Stand er lítið einnota sogtæki sem endist í 90 mínútur og er tilvalið til að prófa sogtilfinninguna.


Fyrir þau sem vilja fara aðeins lengra, þá er Pro 2 Gen 3 frá Satisfyer einstaklega áreiðanlegur og hefur reynst ótrúlega vel fyrir mjög marga píkueigendur. Pro 2 Gen 3 er sérstaklega hannaður til að veita kraftmikla og djúpa örvun á snípinn. Tækið notar titring og þrýstibylgjutækni til að örva snípinn og líkja eftir unaðslegum munnmökum. Það fylgja tvær hettur með tækinu, önnur er lokuð og framkallar púlsandi takt frá þrýstibylgjunum, og er því mismunandi örvun veitt eftir því hvor hettan er notuð

Fyrir Typpi


Múffur


Þegar kemur að því að velja sína fyrstu múffu er um heilmargt að velja. Það eru til margar tegundir af múffum með ótal mismunandi eiginleika. í stuttu máli skiptast múffur niður í múffur með eða án mótors, síðan skiptist það ennþá lengra niður, múffur með mótor geta verið bara með titiring eða með sogi og með öllu og strokum eða ekki, enn við skulum halda þessu einföldu.


Flip-Orb frá Tenga eru í miklu uppáhaldi hjá okkur í búðinni. Þær eru með skemmtilegum örvunarmynstrum og sérstökum Flip-Orb kúlum sem auka örunina talsvert. Það er alveg ótrúlega þæginlegt að þrífa þær sem er alltaf stór kostur í okkar augum. Það eru til nokkrar týpur til dæmis Pastaio, klassíska Flip Orb og Flip Orb Strong. Síðan er Flip Zero og Flip Zero með mótor en þær hafa ekki örvunarkúlurnar. Helsti munurinn á týpunum eru örvunarmynstrin og Flip Orb Strong er þrengri á meðan hinar gefa meira eftir. Við mælum mikið með þessum!


Typpahringir


Typpahringir eru allskonar og veita allskonar örvun. Hægt er að fá stillanlega hringi, hringi með titring og typpahringjasett í mismunandi stærðum fyrir ólíka örvun og aðþrengingu. Typpahringirnir frá Boners hafa verið einstaklega vinsælir hjá okkur lengi. Boners býður upp á margar týpur af typpahringjum. 3-Flat Ring Kit hefur verið ótrúlega vinsælt hjá okkur og hentar mjög vel fyrir byrjendur. í settinu koma hringir í þrem stærðum en það hentar vel til að geta prófað sig áfram til að finna hverskonar þrenging og örvun hentar best.


Forge frá Nexus er einnig mjög sniðugur en hann er stillanlegur svo að hver getur stillt hann eftir sínum þörfum.


Titrandi typpahringir eru líka að reynast mjög vel. Við mælum með Vibrating cockring frá Boners. Hann er ótrúlega skemmtilegur, hann er flokkaður sem parahringur og hentar því einstaklega vel í kynlífi með öðrum sem og í sjálfsfróun. Hægt er að nota hringinn sem typpahring, sem fingratitrara fyrir sníp, leggja hann á spöngina, bara hvað sem þér dettur í hug.

Fyrir Rass


Ef það er eitthvað sem fólk er stressað yfir eða óöruggt með þá er það örugglega helst að prófa að örvun í endaþarmi. Það er þó ekkert að óttast! Mikilvægast er að anda, fara bara hægt og rólega, og mikilvægast af öllu: NÓG af sleipiefni!


Buttplug

Það eru til ótal buttplug í ótal stærðum og gerðum. Það er gott að hafa í huga að lengd skiptir minna máli en þykktin og fyllingin þegar kemur að því að velja buttplug. Svo er líka mikilvægt að tækið sem þú velur sé með góðann stoppara, það er ekki sniðugt að týna hlutum þarna inni.


Minnsti buttplug sem er í boði hjá okkur er Diamond plug og Metal plug í Small frá EasyToys, en þeir eru einstaklega litlir en veita ágæta fyllingu. Anchor plug í small er lengri en efri tveir en hann er minni um sig, keilulaga formið veitir góða fyllingu og gerir það auðvelt að koma honum fyrir.


Cheeky frá Reset hefur líka verið ótrúlega vinsæll sem byrjenda buttplug. Chekky er einstaklega mjúkur og sveigjanlegur buttplug með titring. Lögunin á honum hentar vel fyrir byrjendur sem og lengra komna og hann veitir djúpa örvun í endaþarm.

Vonandi veitti þessi listi þér innsýn og punkta til að hafa í huga þegart þú velur fyrsta tækið þitt!


Við erum svo alltaf til í að aðstoða þig með valið í verslunum okkar eða á blush@blush.is🩷