Flip Zero
Flip Zero er uppfærð útgáfa af Flip Hole múffunni frá framleiðendunum Tenga. Flip Zero múffurnar eru tvær í sínum flokki og hafa mismunandi mynstur að innan og mismunandi stífleika. Rúnkmúffurnar hafa einstaklega mjúkt mynstur sem framleitt er úr hágæða silíkoni og veita aukna örvun. Múffurnar eru opnanlegar sem gerir það einstaklega auðvelt að þrífa þær.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Flip Zero eru mjúkar og kreistanlegar rúnkmúffur sem henta einstaklingum með typpi jafnt sem pörum þar sem annar eða báðir aðilar eru með typpi. Mynstrið innan í múffunum grípur einstaklega vel utan um typpi og veitir mikla örvun. Flip Zero henta einstaklega vel fyrir þá sem kjósa að stjórna þrengdinni. Því fastar sem Flip Zero er kreist því þrengri virkar hún.
Flip Zero gerir rúnkið eða forleikinn enn unaðslegri. Þar sem að rúnkmúffurnar eru mjúkar og kreistanlegar henta þær fyrir allar stærðir og gerðir af typpum. Þegar múffan er kreist þrýstist loftið úr henni og myndar náttúrulegt sog sem líkir eftir unaðslegum munnmökum. Þú stjórnar mismunandi þrengingu með því að ýta á þrýstipunktana utan á múffunni.
Flip Zero white hefur mjúkt mynstur sem gælir við typpið. Mynstrið er einstaklega mjúkt viðkomu og hefur millistífleika. Mjúkt silíkonið innan í múffunni veitir örvun sem þig hefði aldrei grunað að væri til.
Flip Zero Black hefur mynstur sem er sérstaklega hannað til þess að veita mikla þrengingu utan um typpið. Þessi útgáfa er þrengri, þéttari og með grófara mynstri sem veitir meiri sogkraft.
Við mælum eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Upplýsingar:
- Efni: TPE (silíkon blanda)
- Heildar stærð: 77x92x213mm
- Innri stærð: 70x80x180mm
- Þyngd: 460gr
- Endingartími: 6-8 mánuðir
- Vatnshelt: Já
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Gott að eiga:
- Vatns sleipiefni þar sem að engin rakamyndun er í múffunni
- Hreinsiefni fyrir kynlífstæki til að koma í veg fyrir bakteríumyndun
- Púður til þess að þurrka upp allan raka eftir að múffan hefur verið þvegin.
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is






















