Heimakynningar
Við hjá Blush bjóðum upp á fríar heimakynningar í partýið þitt 🥂
Blush var stofnað árið 2011 og síðan þá höfum við haldið yfir 6000 kynningar og glatt yfir 50.000 einstaklinga um allt land, með skemmtun og fróðleik. Við bjóðum upp á fríar heimakynningar á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri.
Heimakynning
Við mætum á staðinn og kynnum fyrir ykkur uppáhalds vörurnar okkar.
Að kynningu lokinni gefst öllum tækifæri á að fara afsíðis að versla vörur, fá ráðleggingar og/eða svör við spurningum um vöruúrvalið okkar. Við mætum með vörur með okkur og posa svo að allir geta farið glaðir heim eftir kvöldið.
Gestgjafinn fær gjöf frá Blush og fá allir gestir 10% afslátt sem hægt er að nýta á kynningunni.
Kynning í verslun
Við tökum einnig á móti hópum í salinn okkar á Dalveginum. Heimakynningin er með sama sniði og í heimahúsi - eini munurinn er að þið komið til okkar ! Starfsmaður tekur á móti hópnum í verslun og vísar inn í sal. Þar fær hópurinn fræðslu og kynningu á okkar uppáhalds vörum. Þegar kynningu líkur er hópnum boðið fram í verslun þar sem hægt er að fá persónulegar ráðleggingar og/eða svör við spurningum um vöruúrvalið okkar. Gestgjafinn fær gjöf frá Blush og allir gestir fá 10% afslátt sem hægt er að nýta á kynningunni.
Kynningar í verslun fara fram á opnunartíma verslunarinnar, hefðbundinn opnunartími er :
Mánudaga-Miðvikudaga frá 11-18
Fimmtudaga frá 11-21
Föstudaga frá 11-18
Laugardaga frá 12-18
Sunnudaga 12-18
Viltu bóka kynningu ?
-> Sendu fyrirspurn á blush@blush.is, hlökkum til að heyra frá þér.
Hér eru svör við nokkrum algengum spurningum:
Er einhver lágmarks- eða hámarksfjöldi á kynningarnar?
Lágmarksfjöldi á kynningu eru 7 manns. Kynningarnar henta vel fyrir 7-20 manns. Ef þið eruð fleiri endilega sendið okkur póst, við þurfum þá oftast að gefa okkur lengri tíma í kynninguna.
Mega strákar vera á kynningunni?
Kynningarnar henta öllum kynjum.
Hvenær fæ ég vörurnar afhentar?
Ef þú verslar á kvöldinu færðu vöruna þína afhenta strax ef hún er til á lager. Ef varan er uppseld máttu sækja hana strax og hún er komin aftur á lager hjá okkur. Við fáum yfirleitt sendingar í hverri viku svo það er oftast ekki nema nokkurra daga bið ef varan er uppseld.
Hvernig greiði ég fyrir vöruna?
Við erum með posa og tökum við öllum kortum nema American express. Þú getur líka greitt með pening, millifært á okkur á staðnum eða notað Netgíró.
Hvað þarf að bóka kynningu með löngum fyrirvara?
Best er að bóka um leið og þú ert kominn með dagsetningu á partýið, því fyrr því betra. Það er hinsvegar oftast hægt að koma ykkur að, en með styttri fyrirvara þá er ekki endilega sá tími sem þú óskar eftir laus. Á sumrin (maí-ágúst) er mjög mikið að gera hjá okkur svo þá er nauðsynlegt að vera tímanlega.
Er skylda að versla á kynningunum?
Nei það er ekki skylda en kynningarnar eru hugsaðar sem sölukynningar en ekki skemmtiatriði. Við reynum hins vegar eftir okkar bestu getu að gera kvöldið eins skemmtilegt og við getum fyrir hópinn, ykkur að kostnaðarlausu.
Hvað tekur kynningin langan tíma?
Við gefum okkur 90 mínútur í hverja kynningu. Þá er kynningin sjálf sirka 40 mínútur og svo fer eftir því hversu langur tími fer í að versla hvað við erum lengi.
Þarf ég að undirbúa eitthvað áður en þið komið?
Nei við mætum með allt sem við þurfum.
Ég er úti á landi getið þið komið þangað?
Við erum ekki að bjóða upp á fríar heimakynningar úti á landi, en endilega sendið okkur póst hvar þið eruð og það er aldrei að vita nema við getum komið á staðinn gegn greiðslu.
Dæmi um verð utan höfuðborgarsvæðisins*:
Reykjanes - 14.000 kr.
Hveragerði - 12.000 kr.
Selfoss - 15.000 kr.
Akranes - 14.000 kr.
Borgarnes - 22.000 kr.
Dæmi um verð utan Akureyrar*:
Dalvík - 13.000 kr
Ólafsfjörður - 18.000 kr
Siglufjörður - 23.000 kr
Húsavík - 23.000 kr
Grenivík - 12.000 kr
*Ath. verð er reiknað út frá kílómetra fjölda til og frá staðsetningu kynningar. Ofangreind dæmi eru því einungis til viðmiðunar.
Má vera með áfengi á kynningum?
Já að sjálfsögðu má það, en við biðjum ykkur um að haga drykkjunni þannig að allir haldi athygli út kynninguna.
Sölubásar/viðburðir
Við tökum að okkur að mæta á viðburði og setja upp skemmtilegan sölubás þar sem við kynnum okkar vinsælustu vörur. Starfsmaður frá Blush mætir með lukkuhjól og Blush tré með sér sem setur skemmtilega stemningu fyrir viðburðinn. Allir gestir á viðburðinum fá 10% afslátt af vörunum og öll þau sem versla fá að snúa lukkuhjólinu og fá unaðslegan vinning með sér heim.
Verðið fyrir básinn er 30.000 - 40.000 kr fyrir allt að 2-3 klukkustundir, verð fer eftir stærð viðburðar að hverju sinni.
Vilt þú bóka sölubás fyrir viðburðinn þinn ?
-> Sendu fyrirspurn á blush@blush.is, hlökkum til að heyra frá þér!