Skilmálar
SKILMÁLAR
I. GILDISSVIÐ
Þessir skilmálar gildir um sölu Blush á vörum og þjónustu til neytenda, sbr. 1. gr. laga nr.
16/2016, um neytendasamninga. Samkvæmt 1. tölul. 2. gr. laganna er neytandi einstaklingur
sem er kaupandi í viðskiptum sem lögin taka til í tilgangi sem er óviðkomandi starfi hans.
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög.
Uppsetningu er þannig háttað að skilmálunum er skipt í fjóra kafla:
1. Í I. kafla er gildissviðsákvæði að finna.
2. Í II. kafla er að finna almenn ákvæði sem eiga við um öll viðskipti Blush við
neytendur.
3. Í III. kafla er að finna sérákvæði sem gilda almennt um hefðbundin viðskipti sem eiga
sér stað í verslunum Blush.
4. Í IV. kafla er að finna sérákvæði sem gilda um viðskipti í fjarsölu og utan fastrar
starfsstöðvar Blush, þ.e. þegar neytandi kaupi vöru úr fjarlægð og án þess að hitta
seljanda, og utan fastra starfsstöðva Blush, t.d. í netverslun Blush á heimili neytanda
eða á færanlegum sölubás sem Blush kann að reka.
II. ALMENN ÁKVÆÐI
A. Um Blush
Blush er rekið af og í eigu BSH15 ehf., kt: 590115-1260
VSK-númer 119123
Netfang: blush@blush.is
Símanúmer: 775-3330
Banka upplýsingar: 0515-26-151260
Föst starfsstöð Blush: Dalvegur 32b, 201 Kópavogi
BSH15 ehf. rekur verslun Blush í Glerártorgi verslunarmiðstöð, Gleráreyri 1, 600 Akureyri sem og á Dalvegi 32b, 201 Kópavogi.
Þá rekur BSH15 ehf. netverslun Blush á vefsíðunni https://blush.is/shop
B. Upplýsingar um vörur
Upplýsingar um helstu eiginleika vara sem Blush selur eru veittar í verslunum Blush og
netverslun Blush (https://blush.is/shop).
C. Upplýsingar um verð
Upplýsingar um helstu heildarverð vöru eða þjónustu eru veittar með verðmerkingum í
verslunum Blush og á netverslun Blush (https://blush.is/shop).
Öll uppgefin verð eru í íslenskum krónum.
Öll verð eru upp gefin með virðisaukaskatti og öllum opinberum sköttum og gjöldum og hið
sama á við um verð sem tilgreint er á reikningum sem Blush gefur út á hendur
viðskiptavinum. Verð vara er ýmist með 11% eða 24% virðisaukaskatti, allt eftir gerð vöru og
skatthlutfalli samkvæmt ákvæðum laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Verði gerðar
breytingar á skatthlutföllum laganna, eða aðrar lagabreytingar sem hafa í för með sér
breytingar á beinum og óbeinum sköttum sem koma fram í vöruverði, áskilur Blush sér fullan
rétt til fyrirvaralausra verðbreytinga, jafnvel eftir atvikum í tilviki þegar framkominna pantana.
Um verðmerkingar og einingarverð við sölu á vörum í Blush fer samkvæmt ákvæðum reglna
nr. 536/2011, um verðmerkingar og einingarverð við sölu á vörum, eftir því sem við á.
Ekki eru gefnir afslættir af þeim vörum sem eru nú þegar tilboðs- eða afsláttarvörur. Afslættir
og afsláttarkóðar gilda ekki fyrir kaupum á gjafabréfum eða viðburðum.
D. Verðbreytingar og villur
Blush áskilur sér rétt til að leiðrétta villur í auglýsingum, sbr. 9. gr. reglna nr. 366/2008, um
útsölur eða aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði, og falla frá samningi verði mistök við
verðmerkingu vöru, sbr. 5. mgr. 3. gr. reglna nr. 536/2011, um verðmerkingar og
einingarverð við sölu á vörum.
Að öðru leyti áskilur Blush sér rétt til fyrirvaralausra verðbreytinga eftir því sem ástæður
þykja til. Blush áskilur sér rétt til að taka vörur úr sölu fyrirvaralaust. Blush áskilur sér rétt til
að staðfesta pantanir símleiðis.
E. Upplýsingar um greiðsluleiðir
Í verslun Blush er tekið á móti greiðslum í reiðufé, með greiðslukortum og Netgíró.
F. Endursala
Viðskiptavinum er óheimilt að endurselja vörur sem keyptar eru hjá Blush.
G. Ábyrgð á vöru
Um ábyrgð Blush á vörum fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 48/2003, um neytendakaup, í
tilviki neytendakaupa. Samkvæmt 7. gr. laganna telst söluhlutur afhentur þegar neytandi
hefur veitt honum viðtöku og áhætta af hlutnum flyst yfir til neytanda þegar söluhlutur hefur
verið afhentur, sbr. 1. mgr. 14. gr. laganna.
Ástæða er til að vekja athygli á að neytanda ber að tilkynna um galla án ástæðulauss dráttar
frá því að hann varð galla var eða mátti verða hans var en frestur neytanda til að leggja fram
kvörtun er aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að hann varð galla var. Frestur til tilkynningar
um galla er oftast tvö ár skv. 2. mgr. 27. gr. laga nr. 48/2003 í tilviki vara sem Blush selur.
Ábyrgð Blush á ýmsum endurhlaðanlegum tækjum kann að takmarkast af endingu sem getið
er um í upplýsingum um vöruna, t.d. hámarksfjölda snúninga rafmótors eða hámarksfjölda
endurhleðslu rafhlöðu. Því getur jafnvel til þess komið að slík tæki verði ekki talinn haldinn
galla þó endingartími sé skemmri en tvö ár.
Rétt er að benda á að ábyrgð Blush nær ekki til tilvika þar sem söluhlutur hefur orðið fyrir
skemmdum sem verða raktar til notkunar neytanda, t.d. ef hluturinn hefur orðið fyrir
rakaskemmdum, höggskemmdum, meðhöndlun rafhlöðu hefur ekki verið í samræmi við
leiðbeiningar eða hluturinn hefur orðið fyrir útlitsskemmdum. Athugið að notkun silíkon
sleipiefnis skemmir silíkon vörur.
Ef vara reynist gölluð er henni jafnan skipt út fyrir sömu vöru. Ekki er leyfilegt að skipta á
vöru og annarri vöru.
H. Ágreiningsmál
Neytendur geta skotið ágreiningsmálum vegna viðskipta við Blush til kærunefndar vöru og
þjónustukaupa, Borgartúni 29, 105 Reykjavík. Vefslóð á vefsíðu nefndarinnar er eftirfarandi:
www.kvth.is.
I. Trúnaður
Blush heitir neytendum fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í
tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema að framkominni
lögmætri beiðni yfirvalda.
III. VIÐSKIPTI Í VERSLUNUM BLUSH
A. Greiðsluleiðir
Í verslun Blush er tekið á móti greiðslum í reiðufé, með greiðslukortum, Netgíró og Pei.
Allar vörur sem keyptar eru í verslun Blush eru afhentar í versluninni gegn greiðslu
kaupverðs nema um annað sé samið.
B. Opnunartími verslunar
Verslun Dalvegi:
Mánudag - Miðvikudag frá 11–18
Fimmtudag 11–21
Föstudag 11–18
Laugardag 12–18
Sunnudag 12–18
Verslun Glerártorgi, Akureyri:
Mánudag - Laugardag: 12-18
Sunnudag: Lokað
C. Vöruskil
Blush veitir neytenda sem kaupir vöru í verslun Blush þrjátíu daga frest til að falla frá
samningi að því tilskildu að gerð sé grein fyrir ástæðu þess að fallið hafi verið frá kaupum,
varan hafi ekki verið notuð og umbúðir séu upprunalegar, í upprunalegu ástandi og eftir
atvikum að innsigli hafi ekki verið rofið. Frestur samkvæmt framangreindu byrjar að líða
þegar vara er afhent neytanda.
Vörum sem ekki bera innsigli fæst hvorki skilað eða skipt.
Endurgreiðsla er framkvæmd með innleggsnótu eða endurgreiðslu á kreditkort.
Flutnings- og póstburðargjöld eru undir engum kringumstæðum endurgreidd og því greiðir
neytandi allan kostnað við endursendingu ef til hennar kemur.
IV. VIÐSKIPTI Í FJARSÖLU OG UTAN FASTRAR STARFSSTÖÐVAR BLUSH
A. Greiðsluleiðir
Í vefverslun blush.is er boðið upp á tvær greiðsluleiðir; Með greiðslukortum eða Netgíró.
Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send eða
hún tilbúin til afhendingar í verslun.
B. Afgreiðsla og afhending
Allar vörur sem eru keyptar í vefverslun Blush eru teknar til afgreiðslu næsta virka dag eftir
að pöntun er gerð. Reynist varan sem hefur verið pöntuð ekki til á lager Blush mun
þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Öllum pöntunum í vefverslun Blush, með öðrum rafrænum hætti, s.s. tölvupósti og
pöntunum sem berast símleiðis, sem ekki verða sóttar í verslun Blush, er dreift af
Íslandspósti gegn greiðslu sendingarkostnaðar. Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í
lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram, samanber tilgreiningu á afhendingarmöguleikum
og sendingarkostnaði hér að neðan. Allar vörur eru sendar í ómerktum umbúðum með
Íslandspósti. Afhendingartími er að jafnaði 1–2 virkir dagar.
C. Afhendingarmöguleikar
Sótt á næsta pósthúsi
Viðskiptavinur fær SMS þegar pakkinn er kominn á pósthús.
Sendingarkostnaður: 990 kr.
Sent heim að dyrum
Viðskiptavinur fær SMS þegar pakkinn er tilbúinn til útkeyrslu.
Sendingarkostnaður: 1.290 kr.
Sent í næsta póstbox
Viðskiptavinur fær SMS með QR kóða og Pin númeri og getur sótt vöruna á hvaða tíma
sólarhrings sem er.
Póstboxin eru 90 talsins, víðsvegar um landið.
Sendingarkostnaður: 990kr.
Sækja í verslun Dalvegi
Hægt er að sækja í verslun okkar á Dalvegi 32b, 202 Kópavogi. Ekki er hægt að sækja pantanir úr netverslun á Akureyri.
Sendingarkostnaður: 0 kr.
D. Skilafrestur
Neytandi hefur fjórtán daga frest til að falla frá samningi utan fastrar starfsstöðvar eða
fjarsölusamningi með tilkynningu til Blush án þess að ástæða ákvörðunar um skil sé
tilgreind, sbr. 16. og 17. gr. laga nr. 16/2016. Í 18. gr. laganna er kveðið á um
undantekningar frá rétti neytanda til að falla frá slíkum samningi og er rétt að vekja athygli á
að skilarétturinn nær m.a. ekki til afhendingar vöru sem líklegt er að rýrni eða úreldist fljótt og
afhendingar á innsiglaðri vöru sem er ekki hægt að skila vegna lýðheilsusjónarmiða eða af
hreinlætisástæðum hafi innsigli verið rofið eftir afhendingu. Margar af þeim vörum sem Blush
selur neytendum eru þess eðlis að þær bera innsigli vegna lýðheilsusjónarmiða eða af
hreinlætisástæðum. Því má gera ráð fyrir að neytandi geti t.d. ekki fallið frá samningi við
Blush um kaup á nærfötum eða vörupökkum með nærfötum, sokkabuxum og viðlíka vörum
eða kynlífstækjum og viðlíka vörum hafi innsigli umbúða verið rofið.
Neytanda ber að tilkynna Blush að hann falli frá samningi með sannanlegum hætti. Neytandi
sem falla vill frá samningi getur tilkynnt Blush um það með stöðluðu eyðublaði sem birt er í
viðauka II í reglugerð, nr. 435/2016, um upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá
samningi. Eyðublaðið er að finna í viðauka I með reglugerð, nr. 435/2006, um upplýsingar
um nýtingu réttar til að falla frá samningi, er að finna staðlaðar leiðbeiningar um rétt til að
falla frá samningi. Sjá á vefsíðunni: https://island.is/reglugerdir/nr/0435-2016
E. Endurgreiðslur
Í tilviki samninga um vörukaup utan fastrar starfsstöðvar eða fjarsölusamninga endurgreiðir
Blush neytanda allar greiðslur sem hann hefur innti af hendi, þar á meðal sendingarkostnað,
ef við á, svo fljótt sem verða má og eigi síðar en fjórtán dögum eftir að tilkynning berst um að
fallið sé frá slíkum samningi. Ef samningurinn varðar þjónustu endurgreiðir Blush neytanda
allar greiðslur að frádregnu hlutfalli af heildarverði samnings í samræmi við það sem hefur
verið afgreitt. Endurgreiðslan er gerð í sama greiðslumiðli og neytandinn notaði fyrir
upphaflegu viðskiptin nema neytandi hafi samþykkt annað sérstaklega. Viðbótarkostnaður er
ekki endurgreiddur, sbr. 2. mgr. 21. gr. laga nr. 16/2016, og ekki er greiddur
viðbótarkostnaður ef neytandi óskar sérstaklega eftir öðrum afhendingarmáta en ódýrasta
afhendingarmáta sem Blush býður, sbr.,. 3. mgr. 21. gr. laganna.
Neytandi skal endursenda Blush vöruna eigi síðar en fjórtán dögum eftir dagsetningu
tilkynningar um að fallið sé frá samningi og skal neytandi bera beinan kostnað af því að skila
vöru nema Blush hafi samþykkt að bera hann. Neytandi er ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á
verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að
staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar.
Í samræmi við 4. mgr. 14. gr. laganna ber Blush áhættu af söluhlut sem hefur verið keyptur í
vefverslun Blush ef hann týnist eða skemmist þar til neytandi eða þriðji aðili, annar en
Íslandspóstur, hefur tekið vöruna í sína vörslu. Að öðru leyti gilda afhendingar-, ábyrgðar og
flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru í póstsendingu. Blush ber samkvæmt því
ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Tilkynningum um tjón má beina að
Íslandspósti á vefsíðunni: https://posturinn.is/posturinn/umsoknir-eydublod/tilkynna-tjon/
F. Öryggi
Það er öruggt að versla í vefverslun blush.is. Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum
örugga greiðslusíðu Teya. Farið er með öll gögn og upplýsingar sem trúnaðarmál. Gögn og
upplýsingar eru ekki afhentar til þriðja aðila.
V. MARKPÓSTUR OG PERSÓNUVERND
A. Samþykki fyrir móttöku SMS skilaboða
Með skráningu á SMS lista Blush samþykkir neytandi að fá skilaboð í markaðslegum tilgangi. Texta skilaboðin innihalda aðallega sértilboð og afslætti, en geta einnig innihaldið tilkynningar.
Hægt er að afskrá sig af SMS listanum hvenær sem er með því að fylgja leiðbeiningum sem fylgdu skilaboðunum í upphafi skráningar. Ef upp koma erfiðleikar við afskráningu skal hafa samband á blush@blush.is.
Tryggt er að persónuupplýsingar séu unnar í samræmi við gildandi persónuverndarlög, þar á meðal almennu persónuverndarreglugerðina (GDPR). Skráning á SMS listann felur í sér samþykki fyrir að unnið sé með símanúmer í þeim tilgangi að senda skilaboð. Ef upp koma spurningar varðandi vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við SMS þjónustuna, vinsamlegast hafðu samband á blush@blush.is.