Heimsmarkmiðin
Blush var stofnað árið 2011, af Gerði Arinbjarnardóttur þegar fyrirtækið hóf að selja kynlífstæki á Íslandi. Markmið Blush í upphafi var að breyta markaðnum og neiðkvæðum viðhorfum sem voru til staðar gagnvart kynlífstækjum. Stór þáttur í þeirri vegferð var að breyta ásýnd, taka umræðu um kynlífstæki upp á hærra plan og byggja undir heilbrigð viðhorf til kynlífs með áherslu á janfrétti í kynlífi.
Vörumerkið Blush hefur vaxið mikið undanfarin ár og erum við leiðandi í sölu kynlífstækja á Íslandi. Við stigum stórt skref árið 2021 þegar við opnuðum nýja 860fm glæsilega verslun með vöruhúsi og skrifstofum í Kópavogi, þar sem einstaklingar og pör geta verslað kynlífstæki í notalegu umhverfi og sótt fræðslu í fyrirlestrarsal okkar sem staðsettur er inn af versluninni.
Starfsfólk okkar leggur metnað í að veita ávallt faglega þjónustu og ber virðingu fyrir fjölbreytileika fólks og ólíkum þörfum. Starfsfólkið fær góða þjálfun hjá framleiðendum og starfar í takt við gildi Blush, framtíðarsýn, stefnu og hlutverk. Við erum stolt af að vera eina kynlífstækjaverslunin á Íslandi sem hefur hlotið viðurkenningar sem frammúrskarandi fyrirtæki og fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri. Árið 2021 hlutum við einnig þá viðukenningu að vera valin vörumerki ársins, en þá viðurkenningu hljóta vörumerki sem þykja hafa skarað framúr þegar horft er til stefnumiðaðrar vörumerkjastýringar.

Blush styður við Heimsmarkmiðin
Blush starfar með samfélagsábyrgð og sjálfbærni að leiðarljósi og leggur metnað í að hafa uppbyggileg áhrif á samfélagið og umhverfið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru nátengd viðmiðum um samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni í rekstri fyrirtækja. Markmiðin benda á að aðgerðir sem skapa efnahagslega velmegun verða að haldast í hendur við verndun jarðarinnar og binda enda á allskyns félagslegan skort og ójöfnuð.
Blush hefur valið þrjú af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem fyrirtækið tengir sérstaklega við þegar horft er til eðli starfseminnar og mun leggja áherslu á í sinni starfsemi til framtíðar.

Blush hefur frá upphafi lagt áherslu á heilbrigð viðhorf til kynlífs og rétt allra til að upplifa heilbrigt kynlíf. Fræðsla sem Blush veitir hefur að miklu leyti verið haldin til stuðnings góðum málefnum, þar á meðal fyrir endurhæfingarmiðstöðvar og er fræðslan mikilvægur þáttur þess að starfsemin hafi uppbyggileg áhrif á samfélagið.
Fríir smokkar, til allra sem þess óska, hafa verið partur af starfsemi Blush til margra ára og er það liður í að reyna að sporna við dreifingu kynsjúkdóma. Smokkarnir hafa verið gefnir til skóla, samtaka, til einstaklinga og hleypur fjöldi smokka sem eru gefnir ár hvert á hundruðum.
Blush tekur þátt í fjölda verkefna sem stuðla að því að koma einstaklingum aftur til vinnu sem eru í endurhæfingu eftir t.d. veikindi og áföll og eru verkefnin unnin með aðilum sem sinna endurhæfingar prógrömmum.
Vellíðan starfsfólk Blush er lykilþáttur í velgengni rekstursins og leggur Blush sig fram um að vera heilsueflandi vinnustaður, með skýr markmið sem stuðla að betri heilsu og vellíðan starfsfólks. Mikil áhersla hefur verið lögð á góða stjórnarhætti sem geta haft gríðarleg áhrif á vellíðan starfsfólks og komið í veg fyrir veikindi sem tengjast álagi og streitu.

Jafnrétti kynjanna
Blush hefur lagt mikla áherslu á jafnrétti í kynlífi með fræðslu, jafnt með námskeiðum og fræðslu á samfélagsmiðlum. Blush leggur sitt af mörkum til að jafna stöðu fólks, óháð kyni, kynhneigð, kynvitund eða fötlun og talar fyrir fjölbreytileika. Þarfir einstaklinga eru mjög fjölbreyttar og hefur Blush lagt sig fram um að mæta þeim þörfum með faglegri fræðslu og fjölbreyttu vöruúrvali í verslun sinni.
Blush hefur barist gegn kynbundnu ofbeldi frá uppafi og lagt áherslu á að opna þurfi umræðuna um málefnið. Kynbundið ofbeldi er samfélagslegt vandamál sem er viðurkennt sem ein af verstu birtingarmyndum kynjamisréttis. Blush veitir fræðslu meðal annars til ungmenna um hvað kynheilbrigði sé, jafnrétti í kynlífi og hversu mikilvægt sé að samþykki sé til staðar hjá báðum aðilum. Fræðslan fer einnig inn á þau úrræði sem eru í boði fyrir þolendur sem oft á tíðum eru konur.

Ábyrg neysla og framleiðsla
Blush hóf árið 2021 framleiðslu og sölu á sínu eigin vörumerki, Reset, sem er framleitt hjá vottuðum verksmiðjum og innihalda mun minna af óumhverfisvænum efnum en sambærileg tæki og er það fyrsta skrefð í að minnka óumhverfisvænar vörur í sölu. Fyrirtækið vandar ávallt val sitt á framleiðendum og birgjum, sem eru stöðugt hvattir til að þróa vörur sínar yfir í að vera umhverfisvænar fyrir Blush.
Blush hefur lagt mikla áherslu á að draga úr plasti undanfarin ár og hefur fyrirtækinu tekist í góðu samstarfi við framleiðendur að finna lausnir sem minnka verulega allar umbúðir og plast fyrir stærstu söludaga ársins. Í dag flytur Blush að mestu inn umbúðarlausar vörur fyrir stærstu söludagana og hefur fyritækinu tekist að minnka plast um 90% frá árinu 2017. Allt sorp er flokkað og er markviss vinna með ytri aðila í að endurnýta sem mest af því plasti sem fellur til hjá fyrirtækinu vegna umbúða af kynlífstækjum.
Blush tekur þátt í fjölda verkefna sem stuðla að því að koma einstaklingum aftur til vinnu sem eru í endurhæfingu eftir t.d. veikindi og áföll og eru verkefnin unnin með aðilum sem sinna endurhæfingar prógrömmum.
Vellíðan starfsfólk Blush er lykilþáttur í velgengni rekstursins og leggur Blush sig fram um að vera heilsueflandi vinnustaður, með skýr markmið sem stuðla að betri heilsu og vellíðan starfsfólks. Mikil áhersla hefur verið lögð á góða stjórnarhætti sem geta haft gríðarleg áhrif á vellíðan starfsfólks og komið í veg fyrir veikindi sem tengjast álagi og streitu.

Gerður Arinbjarnardóttir
Gerður er eigandi Blush en hún stofnaði fyrirtækið þegar hún var 21 árs, þegar hún hóf að selja kynlífstæki heiman frá sér. Fyritækið byrjaði smátt og var lagerinn í kommóðu í herbergi Gerðar í upphafi en reksturinn óx hratt og hefur Gerður rekið fyrirtækið alla tíð. Allt frá upphafi hefur Gerður farið óhefðbundnar leiðir í markaðsstarfi Blush og lagt upp með að markaðsstarf Blush skili markhópnum faglegri fræðslu og auknu virði, sem og byggi undir heilbrigð viðhorfs til kynlífs. Gerður var valin Markaðsmanneskja ársins 2021 af Ímark, en þau verðlaun eru veitt þeim einstaklingi sem þykir hafa sýnt framúrskarandi árangur í markaðsstarfi þess árs.

