Dalvegi 32: Opnar 12:00 á morgun · Glerártorgi Akureyri: Opnar 12:00 á morgun

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Kraftskalinn

Þegar þú velur þér kynlífstæki er ýmislegt sem þarf að hafa í huga; áferð, litur, stærð og svo framvegis. 


Eitt það mikilvægasta við val á kynlífstækjum er krafturinn á titringnum. Til að einfalda þér valið á hinu fullkomna tæki höfum við sett upp leiðarvísi sem auðveldar þér að sjá hvernig krafturinn er í tækinu. 


Tækin eru sett í flokka 1-5, titringur á tækinu er miðaður við hæstu mögulegu stillingu. Flest tæki hafa plús og mínus takka sem gera þér kleift að hækka og lækka titringinn. Tæki sem er til dæmis í flokki 4 passar líka í flokka 1, 2, og 3 á lægri stillingum. 


Blush Kraftskalinn:


  1. Mild & létt örvun
  2. Mild - meðal örvun
  3. Meðal - öflug örvun
  4. Öflug örvun
  5. Extra öflug örvun


Flokkur 1 hentar þeim sem vilja milda og létta örvun, og/eða þeim sem eru extra viðkvæmir. 

Flokkar 2 og 3 eru flokkar sem henta langflestum. 

Fyrir þá sem þurfa extra kraftmikið tæki mælum við með flokkum 3-5.


Blush Kraftskalaprófið


Svaraðu eftirfarandi spurningum til að finna út hvaða kraftur af kynlífstækjum hentar þér best.


Leggðu síðan saman heildar töluna sem þú færð og þannig sérðu hvar á kraftskalanum þú ert. 


Hefur þú prófað kynlífstæki ? 

  1. Nei, aldrei prófað
  2. Já en mjög sjaldan 
  3. Já, reglulega
  4. Já, ég elska þau og nota oft 


Ef þú hefur prófað kynlífstæki á hvaða stillingu notarðu tækið ? 

  1. Hef aldrei prófað 
  2. Minnstu stillingu 
  3. Flakka á milli stillinga
  4. Miðlungs stillingu 
  5. Alltaf í botni 


Hversu auðvelt áttu með það að fá fullnægingu ? 

  1. Hef aldrei reynt að fá fullnægingu 
  2. Er mjög næm og þarf litla örvun
  3. Misjafnt eftir dögum 
  4. Frekar erfitt
  5. Mjög erfitt, þarf að hafa mikið fyrir því



3-6 stig - Tæki með léttum eða vægum titring á skalanum 1-2 henta þér best. 

6-9 stig - Tæki með milli kraft á skalanum 2-3 henta þér best. 

9-12 stig - Tæki með öflugum titring á skalanum 3-4 henta þér best. 

12-14 stig - Tæki með extra kröftugum titring á skalanum 4-5 henta þér best.