Kynlíf í langtímasambandi
Kynlíf í langtímasambandi 🔥❤️
Ein algeng spurning sem við fáum reglulega er hvernig og hversu oft fólk í langtímasambandi stundar kynlíf. Oft tengist þetta því að kynlífið hefur eitthvað dalað, lengra verður á milli kynlífs, einhverjir fara að upplifa það sem einhverja kvöð frekar en skemmtilegt eða spennandi… sama rútínan aftur og aftur. Hér förum við yfir nokkra punkta um kynlíf í langtímasambandi.
1. Kynlíf styrkir sambönd 💞
Rannsóknir sýna sterka tengingu á milli reglulegs kynlífs og ánægju í parasambandinu. Gott og reglulegt kynlíf getur jafnvel dregið úr eða mildað samskiptavandamál. Á móti getur skortur á kynlífi aukið ósætti eða streitu í parasambandinu, og í sumum tilvikum sambandsslitum. En þrátt fyrir þetta þá er mikilvægi kynlífs svo ótrúlega misjafnt eftir einstaklingum. Sumir þurfa mikið kynlíf til að líða vel á meðan aðrir þurfa minna. Sumir þurfa jafnvel lítið sem ekkert kynlíf án þess að það hafi nokkur áhrif á líðan. Það sem skiptir mestu máli er að tala opinskátt um þarfir, væntingar og langanir og að koma til móts við hvort annað eða finna leiðir þar sem þarfir beggja aðila eru uppfylltar í sambandinu.
2. Kynlíf minnkar oft með tímanum.. og það er eðlilegt! ✨
Þegar fólk byrjar að hittast eða að deita þá er kynferðisleg orka og spenna yfirleitt frekar mikil. Það er eitthvað nýtt og spennandi í gangi, þú ert að kynnast nýjum aðila og þið eruð að upplifa hvort annað í fyrsta skiptið. Þessi nýja og spennandi tilfinning sem fylgir því að verða hrifinn af öðrum keyrir upp kynlöngun. Þetta er oft kallað “hyperdrive” ástand en með tímanum jafnast það svo út. Löngunin verður þá oft minni en stöðugri. Það er ekki merki um að eitthvað sé að, heldur frekar að sambandið sé að þróast.
3. Það er fullkomlega eðlilegt að langa ekki alltaf í kynlíf 🫶🏼
Kynlöngun kemur og fer. Oft hafa utanaðkomandi þættir áhrif á hversu mikið við erum til í kynlíf hverju sinni. Það er mjög eðlilegt að vera ekki alltaf spennt fyrir eða til í að stunda kynlíf. Þættir sem geta haft áhrif á kynlöngun eru til dæmis streita, svefnleysi, hormónasveiflur, kvíði, samskiptavandi, sjálfsmynd, meðganga, lyfjanotkun, þurrkur í leggöngum, heilsufar og margt fleira. Það sem skiptir máli er að vera meðvituð um hvað það getur verið sem hefur áhrif og að eiga opin samskipti um það.
4. Lítil kynlöngun og stærri vandamál 💭
Gott og reglulegt kynlíf er oft merki um hamingjuríkara samband. En þetta getur líka virkað í alveg öfuga átt. Ef annar eða báðir aðilar eru ekki áhugasöm eða hafa hvorug mikla löngun í kynlíf, þá gæti verið möguleiki á undirliggjandi óánægju í sambandinu. Pirringur eða önnur óleyst mál sem búið er að sópa undir teppið og forðast að ræða eru algengar ástæður fyrir minni kynlöngun. Lausnin er ekki að stunda meira kynlíf til að rífa upp einhverja löngun, heldur er lykillinn að fara í rótina að vandamálinu, laga samskiptin og dýnamíkina sem er til staðar.
5. Karlmenn missa líka kynlöngun 👀
Þetta er algeng mýta, að karlmenn séu þeir sem eru alltaf til í kynlíf öllum stundum. Staðreyndin er hins vegar sú að mjög margir karlmenn upplifa minni kynlöngun á einhverjum tímapunkti. Fólk af öllum kynjum getur verið að díla við þetta, svo það má ekki alltaf gera ráð fyrir því að það séu bara konur sem missa löngun eða hætta að vilja stunda kynlíf í langtímasambandi.
6. Það er hægt að njóta þó skapið hafi ekki verið til staðar 😇
Langanir og þrá getur verið ólík. Margir upplifa það sem kallast “spontanious desire” þegar upp kemur löngun í kynlíf áður en nokkurs konar líkamleg örvun hefur átt sér stað. En fyrir aðra verður ekki löngun í kynlíf fyrr en eftir einhvers konar líkamlega örvun. En hvað þýðir það? Það þýðir að ef þú finnur ekki fyrir spontant löngun í kynlíf þarf það ekki að vera merki um að þú munir ekki njóta þess þegar að því kemur. Stundum getur það hjálpað til að vera opin og forvitin með það hvað þarf til að kveikja á lönguninni.
7. Það á ekki að vera pressa á kynlíf 🚫
Enginn á að stunda kynlíf þegar þeim langar það ekki, ekki einu sinni í langtímasambandi. Að stunda kynlíf þegar þú finnur ekki fyrir löngun eða einfaldlega vilt það ekki getur búið til enn meiri fjarlægð, aukið pirring eða vanlíðan og minnkað líkurnar á því að þú munir njóta þess að stunda kynlíf. Ef fólk neyðir sig til að stunda kynlíf til að koma í veg fyrir samviskubit eða að valda maka vonbrigðum, þá getur það leitt til enn minni löngunar. Eins og áður hefur verið nefnt þá eru opin og hreinskilin samskipti lykilatriði. Ræðið ykkar langanir, hvað þið viljið út úr kynlífinu ykkar og hvað það er sem veitir ykkur ánægju með hvoru öðru.
8. Skipulagt kynlíf getur verið sexy 📅
Við erum ekki að tala um að setja það í dagatalið og mæta svo nakin inn í herbergi á slaginu 20:00! Það getur hins vegar hjálpað til í daglegu amstri að búa til tíma fyrir kynlífið. Í kringum það er hægt að byggja upp bæði eftirvæntingu og spennu eins og með smá daðri í gegnum daginn. Kynlíf þarf ekki alltaf að vera óvænt. Í daglegri rútínu þar sem þarf að sinna milljón verkefnum þá getur verið alveg jafn nauðsynlegt að setja kynlífið í dagatalið eins og að fara í ræktina eða að hitta vini. Það getur gert kraftaverk fyrir sambandið.
Að lokum ❤️🔥
Kynlíf í langtímasambandi þarf ekki að minnka með tímanum. Það eru fullt af pörum sem stunda sjúklega heitt og fullnægjandi kynlíf mörg ár eða áratugi inn í sambandið. Í raun ættu pör að verða meira örugg í kringum hvort annað með tímanum sem getur hjálpað til við að prófa nýja og öðruvísi upplifun. Þið eigið að geta skapað nákvæmlega það kynlíf sem þið viljið stunda og upplifa, á meðan þið eruð á sömu blaðsíðu að láta það gerast.
Þegar kynlöngun minnkar í langtímasambandi þá er kynlífið sjálft yfirleitt ekki vandamálið heldur samskipti, óraunhæfar væntingar, samanburður við aðra, neistanum er ekki viðhaldið, óuppgerðar tilfinningar eða rútína sem enginn hefur brotið upp. Þetta lagast ekki af sjálfu sér heldur þarf að taka meðvitaða ákvörðun um að vinna saman í því að gera kynlífið meira spennandi og skemmtilegt!