Píkudekur 🌸
Uppskrift af Píkudekri 💗
Fyrir nokkrum árum skrifuðum við grein um píkudekur í tilefni af valentínusar- og konudags. Greinin varð gríðarlega vinsæl og í kjölfarið gáfum við út píkudekursboxið sem hefur verið eitt vinsælasta tilboðsboxið í Blush. Nú þegar unaðsvika Blush er gengin í garð og stutt í konudaginn fannst okkur tilvalið að rifja upp þessa skemmtilegu grein sem kryddar upp á dekrið á konudaginn.
Tölum um píkudekur 🌸
Og áður en við byrjum:
Píkur eru misjafnar. Sumum finnst gott að fara rólega af stað, næstum ofboðslega mjúkt. Aðrar vilja kraft og beina örvun. Það sem virkar fyrir eina virkar ekki endilega fyrir aðra. Og það er nákvæmlega það sem gerir þetta spennandi. Píkudekur er ekki keppni! Píkudekur á að vera stund fyrir ykkur til að kynnast og dekra við píkuna á rólegan hátt, prófa ykkur áfram og skoða hvað það er sem píkan fílar. Markmiðið er ekki að veita fullnægingu sem fyrst eða að vinna einhverja keppni heldur að læra inn á píkuna og styrkja tenginguna.
Stemningin skiptir meira máli en þú heldur 🎶
Ef þú ætlar að dekra við píkuna í lífi þínu þá byrjar það ekki á sjálfri snertingunni, það er mikilvægt að skapa rétta og smá rómantíska stemningu.
- Slökktu á sjónvarpinu.
- Kveiktu á tónlist og jafnvel á kertum.
- Passaðu að það sé hlýtt.
- Færðu kodda undir mjaðmir eða fætur ef það eykur þægindin.
Það er eitthvað við það að finna að makinn hafi lagt sig fram í að gera þessa stund unaðslega. Og mikilvægast er að sá sem þiggur geti slakað á. Það er ótrúlegt hvað líkaminn opnast meira þegar hugurinn er rólegur.
Samtalið er kynþokkafyllra en þú heldur 🔥
“Er þetta gott?”
“Viltu fastar?”
“Meira hér?”
Píkudekur snýst um að hlusta. Að vera forvitin/n. Að vilja læra. Spurðu hvort makinn vilji beina örvun á snípinn eða frekar í kring. Hvort þrýstingurinn eigi að vera léttur eða ákveðinn. Hvort það sé frekar ytra eða innra svæði sem kveikir mest. Þetta þarf ekki að vera formlegt samtal, það getur verið mjúkt, í hvísli, á milli andardrátta.
Byrjaðu of laust 🦋
Ef þú ert óviss, byrjaðu létt, mjög létt.
Ímyndaðu þér að þú sért að strjúka fiðrildi. Það er miklu betra að auka þrýsting en að byrja of fast og þurfa að bakka. Gefðu þér tíma. 15 mínútur eru ekki langur tími. 30 mínútur geta verið himneskar. Þetta á að vera hæg örvun sem byggist upp, ekki flýtiferð!
Sleipiefni breytir leiknum 💦
Við segjum þetta aftur og aftur, sleipiefni er ekki “aukahlutur”.
Snípurinn smyr sig ekki sjálfur og góð áferð getur gert muninn á “fínt” og “vá”. Ef þið eruð að nota tæki, munið að velja rétt sleipiefni með þeim. Og fyrir þau sem vilja aðeins meiri næmni má prófa örvandi olíu, hún getur aukið blóðflæði og ýtt undir náttúrulega rakamyndun. Litlu hlutirnir skipta máli.
Kynlífstæki 💥
Ef þig langar til að krydda aðeins meira upp á píkudekrið mælum við með að bæta við litlu, nettu kynlífstæki. Ekki til að flýta fyrir, heldur til að auka örvun á svæðunum í kring eða á sníp.
Desire G-Spot: Einfaldur og kraftmikill titrari sem hentar einstaklega vel í kynlíf með maka eða í forleiknum. Tækið er hljóðlátt og fullkomið til að örva snípinn eða inn í leggöngum. Prófaðu að nota Desire inn í leggöng samhliða munnmökum, tilfinningin er himnesk! Einnig er hægt að nota tækið til að örva snípinn á meðan maki notar fingur eða önnur tæki til að örva inn í leggöngum.
Tease Bullet: Tease er lítill og þægilegur titrari sem hentar einstaklega vel með í píkudekrið. Það sem er skemmtilegt við þetta tæki er að það má nota með Uberlube, þar sem tækið er úr plasti en ekki úr sílikoni.
Flirt egg: Eggið er fullkomið fyrir pör til að nota saman. Lögunin er þannig að eggið fellur vel í lófa eða á milli tveggja einstaklinga. Prófaðu að setja eggið í lófann og tvo fingur inn í leggöng. Einnig er auðvelt að koma egginu fyrir í kynlífi. Flirt eggið er fullkomið til að nota í píkudekrið þar sem það er einstaklega nett og fyrirferðarlítið.
Hér eru sex aðferðir til að snerta píku 💗
Athugið að sleipiefni gerir upplifunina mun betri.
- Bein örvun á sníp: Notaðu 1-2 fingur eða tæki til að nudda snípinn.
- Einföld hliðar örvun: Notaðu fingur eða tæki til að örva til hliðar við snípinn.
- Tvöföld hliðar örvun: Notaðu tvo fingur og myndaðu V með fingrunum þannig að snípurinn nuddast á milli fingranna.
- Örvun á skapabarma: Prófaðu að nudda og jafnvel tosa örlítið í ytri skapabarmana.
- Örvun yfir allt svæðið: Notaðu lófann til að nudda fram og til baka yfir alla píkuna.
- Létt örvun: Prófaðu að strjúka mjög létt yfir snípinn í eina átt, sem dæmi strjúktu bara niður í 30 sek og svo bara upp í 30 sek.
Ef maki fær fullnægingu í píkudekri þá mælum við með að prófa að setja lófann yfir píkuna og þrýsta létt á svæðið til að magna upp fullnæginguna og lengja unaðinn. Ímyndaðu þér að þú sért að knúsa píkuna með lófanum.
Að lokum mælum við með að spila kynþokkafulla, rólega tónlist á meðan þú gefur eða þiggur píkudekur. Það býr til stemningu og fær þig til að gleyma þér í ánægjunni. Lagalistann Blush Sexy Time má finna á Spotify en hann er fullkominn í píkudekrið 🔥