Ert þú of metnaðarfullur bólfélagi ?
Getur verið að þú sért að setja svo mikla pressu á þig og kynlífið þitt að það er farið að vinna gegn þér?
Ég held að við höfum mörg hver ákveðna hugmynd um hvernig „gott kynlíf“ eigi að líta út. Það á að vera stemning, langur forleikur, báðir aðilar æstir, nokkrar stellingar, fullnægingar og jafnvel kynlífstæki.
Frábært þegar maður hefur tíma og löngun í það. En hvað ef hvert einasta skipti þarf að vera heil dagskrá?
Þá getur kynlífið farið úr því að vera eitthvað sem okkur langar í yfir í eitthvað sem við þurfum eiginlega að nenna.
Og þar held ég að við þurfum stundum að lækka standardinn aðeins, á besta mögulega hátt.
„Mig langar… en ég nenni ekki öllu hinu“
Segjum að makinn þinn spyrji hvort þig langi að stunda kynlíf, þig langar kannski alveg smá.
En í hausnum á þér þýðir kynlíf: Sturta, raka sig, finna eitthvað sexý, koma sér í gírinn, forleikur, munnmök, samfarir, skipta um stellingar, passa að allir fái fullnægingu og svo kannski önnur umferð.
Allt í einu ertu ekki að taka ákvörðun um hvort þig langi í nánd með makanum þínum.
Þú ert að velta fyrir þér hvort þú nennir í þetta verkefni.
Og klukkan er 22:47 á þriðjudagskvöldi. Svarið er þá oft mjög einfalt, nei takk, ég þarf að vakna klukkan sjö!
Kynlíf má alveg taka tíu mínútur
Við megum vera miklu duglegri að stunda kynlíf sem er ekkert sérstaklega metnaðarfullt.
Stundum höfum við klukkutíma og viljum gera alls konar og þá gerum við það.
En stundum höfum við tíu mínútur og þá má kynlífið bara alveg taka tíu mínútur!
Það þarf ekki alltaf að byrja á löngum forleik og enda þegar báðir aðilar hafa fengið fullnægingu í nákvæmlega sömu athöfninni. Kannski stundið þið kynlíf í smástund og annar aðilinn fær fullnægingu. Hinn langar enn í meira og klárar með uppáhalds kynlífstækinu sínu á meðan makinn horfir á, kyssir, snertir eða tekur þátt.
Kannski fá báðir fullnægingu með kynlífstæki.
Kannski fær enginn fullnægingu.
Það getur samt verið gott kynlíf.
Sameiginleg sjálfsfróun er stórlega vanmetin
Ef það er eitthvað sem ég vildi að fleiri pör prófuðu þá er það að fróa sér saman.
Og ég meina ekki endilega sem einhvern svakalegan „kynlífsleik“.
Bara einfalt: Mig langar að fá fullnægingu. Þig langar að fá fullnægingu. Eigum við að gera það saman?
Þið getið legið saman, kysst, horft á hvort annað, snert hvort annað og notað hendurnar eða uppáhalds kynlífstækin ykkar. Þetta getur verið ótrúlega náið án þess að krefjast mikillar orku.
Það er líka frábær leið til að læra á makann sinn. Þegar þú horfir á manneskjuna sem þú sefur hjá snerta sjálfa sig færðu upplýsingar beint frá sérfræðingnum.
Hraðinn, þrýstingurinn, staðsetningin, hreyfingarnar. Taktu eftir.
Kynlífstæki geta gert kynlífið einfaldara, ekki flóknara
Stundum tölum við um kynlífstæki eins og þau séu eitthvað sem við bætum við þegar við viljum gera kynlífið extra spennandi. Ég lít alveg jafn mikið á þau sem einföldun, styttingu á tímanum og minkaða fyrirhöfn.
Ef þú veist að ákveðinn titrari kemur þér yfir línuna á nokkrum mínútum, af hverju ættirðu ekki að nota hann?
Ef ykkur langar í nándina saman áður en þið farið að sofa getur kynlífstæki tekið pressuna af því að makinn þurfi að „sjá um“ fullnæginguna frá A til Ö.
Þú getur til dæmis átt lítið og einfalt tæki í náttborðsskúffunni sem er auðvelt að grípa í. Fyrir pör getur líka verið sniðugt að eiga tæki sem hægt er að nota saman í kynlífi eða leikfang sem annar notar á meðan hinn horfir á eða hjálpar til.
Sama gildir um sleipiefni, ekki geyma sleipiefnið fyrir „sérstök tilefni“, hafðu það við höndina !
Gott sleipiefni getur gert það miklu auðveldara að fara frá „eigum við?“ yfir í „já, komdu“ án þess að þurfa langan aðdraganda.
Markmiðið er ekki alltaf að bæta fleiri hlutum við kynlífið, stundum er markmiðið að fjarlægja fyrirhöfnina.
Prófið „lágmarks kynlíf“
Næst þegar ykkur langar bæði smá í kynlíf en hvorugt nennir almennilega að byrja, sleppið þá tökum á pressuni. Sleppið verkefnunum og setjið áhersluna á að njóta saman. Hvernig sem það lítur út í þessu augnabliki.
Strikum yfir langa listann af verkefnum sem ykkur finst þið knúin til að klára fyrst.
Engin krafa um sturtu.
Engin krafa um rakstur.
Enginn ákveðinn forleikur.
Enginn fjöldi stellinga.
Engin krafa um samfarir.
Engin krafa um að bæði fái fullnægingu á sama tíma eða með sömu aðferð.
Spyrjið frekar:
„Hvað myndi vera gott akkúrat núna?“
Kannski er svarið fimm mínútna sleikur.
Kannski samfarir í einni stellingu.
Kannski titrari.
Kannski gagnkvæm sjálfsfróun.
Kannski bara að annar fær að njóta og hinn fær sitt næst.
Þegar kynlífið þarf ekki alltaf að vera stórviðburður verður miklu auðveldara að koma því fyrir í raunverulegu lífi.
En passaðu þig á einu…
„Við þurfum ekki alltaf að gera mikið“ má aldrei breytast í: „Mín ánægja skiptir máli en þín er aukaatriði.“
Ef annar aðilinn fær alltaf sína fullnægingu á fimm mínútum og veltir sér svo yfir og fer að sofa á meðan hinn situr eftir, þá erum við ekki að tala um einfaldara kynlíf, þá erum við að tala um eigingjarnt kynlíf. Þess vegna skipta samskiptin öllu máli.
Spyrðu makann þinn hvað honum finnst. Hvað þarf hann til að upplifa ánægju? Þarf hann alltaf fullnægingu? Vill hann stundum lengra kynlíf? Finnst honum gaman að taka skyndikynlíf inn á milli? Er eitthvað sem hann saknar?
Það þarf ekki að mæta öllum þörfum í hvert einasta skipti en það skiptir máli að tala um þær.
Við þurfum að búa til rými fyrir þarfir beggja í kynlífssambandinu.
Ekki gera Michelin-máltíð þegar ykkur langar bara í samloku
Það er kannski besta samlíkingin.
Stundum langar okkur að elda saman í tvo tíma, opna góða flösku, leggja fallega á borð og gera kvöldið að upplifun.
Stundum langar okkur bara í samloku.
Við hættum ekki að borða samlokur af því að þær eru ekki þriggja rétta máltíð.
Af hverju ætti kynlíf að vera öðruvísi?
Eigið langar, metnaðarfullar og unaðslegar kynlífsstundir þegar ykkur langar í þær.
En eigið líka fimm mínútna kynlífið.
Lata kynlífið.
„Ég nenni eiginlega ekki en mig langar samt smá“-kynlífið.
Sjálfsfróunina saman.
Titrarann undir sæng.
Sleipiefnið úr náttborðs skúffunni.
Einu stellinguna sem þið vitið að virkar.
Því besta kynlífið er ekki endilega kynlífið sem tók lengstan tíma eða innihélt flestar stellingar.
Það er kynlífið sem ykkur langaði bæði í og nutuð bæði.
Og stundum er minna einfaldlega meira.






