Desire G-Spot Vibrator
Desire er ein af sex vörum frá vörumerkinu Reset. Desire er einstaklega mjúkur og sveigjanlegur titrari sem er hugsaður til að örva snípinn eða inni í leggöngum. Tækið er fullkomið fyrir þau sem vilja nettan titrara til að auka unað í sjálfsfróun eða kynlífi. Öll tækin frá Reset hafa Reset eiginleika sem veitir dýpri og lengri fullnægingar. Þrýstu á reset takkann á tækinu þegar þú færð fullnægingu og finndu hvernig tækið fer strax í lægstu stillingu. Með mildum og léttum titring getur þú notið fullnægingarinnar lengur og upplifir dýpri og meiri unað.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Tækið er endurhlaðanlegt og endist hleðslan í allt að 2 klukkustundir og tekur um 1,5 klukkustund að fullhlaða. Með desire fylgir hleðslusnúra sem tengist við USB kubb. Athugið að kubbur fygir ekki með. Ekki er ráðlagt að nota tækið á meðan að það er í hleðslu. Desire er einstaklega hljóðlát og kemur í dökk fjólubláum lit.
Stillingar:
Á tækinu eru þrír takkar. Örvar upp og niður til að auka og minnka kraft. Smelltu tvisvar á örvarnar til að fá mismunandi takt stillingar en einu sinni til að auka eða minnka kraftinn. Miðjutakkinn er Reset takki sem endurstillir tækið og setur það í lægstu stillingu svo þú getir upplifað dýpri og lengri fullnægingu. Þú smellir einu sinni á Reset takkann til að endurstilla tækið en heldur honum inni til að slökkva og kveikja á tækinu.
Desire hefur 6 kraftstillingar og 6 taktstillingar. Tækið er vatnshelt og má taka það með í sturtu, bað eða heitan pott.
Titringurinn í Desire er 4 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörunar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Tækið er úr silíkoni og mælum við einungis með því að nota vatnssleipiefni með því þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt það.
Tækið kemur i vönduðum umhverfisvænum pappaumbúðum og inniheldur: Desire, flauel poka, hleðslusnúru, leiðbeiningar um vöruna.
Upplýsingar:
- Efni: Umhverfisvænt silíkon
- Stærð: 74x44x199mm
- Þyngd: 350g
- Rafhlaða: 430 mAh Lithium rafhlaða
- Hleðslutími: 1,5 klukkustund (hleðslugatið er undir tækinu)
- Ending rafhlöðu: 2 klukkustundir
- Kraftstillingar: 6
- Taktstillingar: 6
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
- Vatnshelt: Já
Um Reset:
Reset er hannað af eiganda Blush, Gerði Huld Arinbjarnar. Vörumerkið er hugsað til að gera sjálfsfróun eða kynlíf með maka enn ánægjulegra. Öll tækin hafa Reset eiginleika sem er hannaður til að dýpka og lengja fullnæginguna. Vörurnar eru endurhlaðanlegar,vatnsheldar og ættu að henta öllum einstaklingum með píku. Allar vörurnar eru úr 100% umhverfisvænu silíkoni og allir kassar úr endurnýtanlegum pappa.
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is
Reset
Reset er hannað af eiganda Blush, Gerði Huld Arinbjarnar. Vörumerkið er hugsað til að gera sjálfsfróun eða kynlíf með maka enn ánægjulegra. Öll tækin hafa Reset eiginleika sem er hannaður til að dýpka og lengja fullnæginguna. Vörurnar eru endurhlaðanlegar,vatnsheldar og ættu að henta öllum einstaklingum með píku. Allar vörurnar eru úr 100% umhverfisvænu silíkoni og allir kassar úr endurnýtanlegum pappa.
























