Core
Fyrir þau sem vilja upplifa aukna næmni, úthald og unað. Hringirnir koma þrír saman í pakka og eru án titrings. Mjúkt hágæða sílikon leggst þétt að og veitir góða þrengingu. Hringirnir eru teygjanlegir svo einfalt er að koma þeim þægilega fyrir.
Core kemur í þremur stærðum svo einfalt er að stjórna þrengingunni sem hentar hverju sinni. Typpahringir eru frábær viðbót í kynlífið en þeir geta hjálpað til við að halda stinningu og gert fullnæginguna dýpri og kröftugri.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Einstök hönnun sem gerir þér kleift að fjarlægja hringinn og setja hann á auðveldlega. Hringirnir koma í þremur mismunandi stærðum sem gefa fjölbreytta möguleika, til dæmis hægt að nota eingöngu utan um typpi eða bæði typpi og pung. Hringirnir þrengja að typpinu og hægja á blóðflæðinu. Typpið verður þrútnara og stinnara, stinningin helst lengur og getur lengt tímann að sáðláti. Við mælum með því að nota vatnssleipiefni með hringjunum, þar sem sílikon sleipiefni getur skemmt þá.
Upplýsingar
- Efni: Sílikon
- Stærð: 3,2 cm, 3,6 cm, 4 cm.
- Vatnshelt: Já
- Sleipiefni: Vatnssleipiefni
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á blush@blush.is.
Tæknilegar upplýsingar
Myndband
Vörumyndir
Tæknileg atriði
Reset
Reset er hannað af eiganda Blush, Gerði Huld Arinbjarnar. Vörumerkið er hugsað til að gera sjálfsfróun eða kynlíf með maka enn ánægjulegra. Öll tækin hafa Reset eiginleika sem er hannaður til að dýpka og lengja fullnæginguna. Vörurnar eru endurhlaðanlegar,vatnsheldar og ættu að henta öllum einstaklingum með píku. Allar vörurnar eru úr 100% umhverfisvænu silíkoni og allir kassar úr endurnýtanlegum pappa.





