Dalvegi 32: Opnar 12:00 á morgun · Glerártorgi Akureyri: Opnar á mánudag klukkan 12:00 · Kringlan: Opnar 12:00 á morgun

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Dream Bullet

7.990 kr.

Dream er ein af sex vörum frá vörumerkinu Reset. Dream er fullkomið fyrir þau sem vilja nett bullet til að auka unað í sjálfsfróun eða kynlífi. Dream frá Reset er fyrirferðalítið bullet sem er hugsað til þess að örva snípinn. Tækið er einstaklega hljóðlátt og hentar fullkomlega í sjálfsfróun eða í kynlíf á milli tveggja einstaklinga. Það er úr umhverfisvænu silíkoni, er vatnshelt og hentar vel fyrir byrjendur og lengra komna. Öll tækin frá Reset hafa Reset takka sem veitir dýpri og lengri fullnægingar. Þrýstu á reset takkann á tækinu þegar þú færð fullnægingu og finndu hvernig tækið fer strax í lægstu stillingu. Með mildum og léttum titring getur þú notið fullnægingarinnar lengur og upplifir dýpri og meiri unað.

1 stk.

  • Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
  • Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
  • Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Dream Bullet
Dream Bullet
Dream Bullet
Dream Bullet
Dream Bullet
Dream Bullet
Dream Bullet
Dream Bullet
Dream Bullet

Ekki gleyma með!

Waterbased Sleipiefni
150ml

+ 1.990 kr.

150ml
Hreinsifroða

+ 2.290 kr.

Sambönd

+ 2.990 kr.

Forleikur

+ 2.990 kr.

Vörulýsing

Tækið er endurhlaðanlegt og endist hleðslan í allt að 2 klukkustundir og tekur um 1,5 klukkustund að fullhlaða. Með Dream fylgir hleðslusnúra sem tengist við USB kubb. Athugið að kubbur fygir ekki með. Ekki er ráðlagt að nota tækið á meðan að það er í hleðslu. Dream er einstaklega hljóðlátt og kemur í dökk fjólubláum lit.


Stillingar:

Á tækinu eru þrír takkar. Örvar upp og niður til að auka og minnka kraft. Smelltu tvisvar á örvarnar til að fá mismunandi takt stillingar en einu sinni til að auka eða minnka kraftinn. Miðjutakkinn er Reset takki sem endurstillir tækið og setur það í lægstu stillingu svo þú getir upplifað dýpri og lengri fullnægingu. Þú smellir einu sinni á Reset takkann til að endurstilla tækið en heldur honum inni til að slökkva og kveikja á tækinu.


Dream hefur 6 kraftstillingar og 6 taktstillingar. Tækið er vatnshelt og má taka það með í sturtu, bað eða heitan pott. Titringurinn í Dream er 4 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.


Tækið kemur i vönduðum umhverfisvænum pappaumbúðum og inniheldur: Dream, flauel poka, hleðslusnúru, leiðbeiningar um vöruna.




Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin. Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is

Tæknilegar upplýsingar

Gerð
Endurhlaðanlegt kynlífstæki með Reset eiginleika (Dream)
Efni
100% umhverfisvænt sílikon
Stærð
84 x 32 x 113 mm
Lengd
113 mm
Breidd
32 mm
Hæð
84 mm
Þyngd
350 g
Litur
Dökk fjólublár
Rafhlaða
430 mAh Lithium rafhlaða
Hleðslutími
Um 1,5 klukkustund
Ending rafhlöðu
Allt að 2 klukkustundir
Hleðslutengi
USB snúra (USB kubbur ekki með)
Notkun á meðan hleðslu stendur
Ekki ráðlagt
Kraftstillingar
6 kraftstillingar
Taktstillingar
6 taktstillingar
Fjöldi takka
3 stjórntakkar (upp, niður, Reset)
Reset eiginleiki
Setur tækið í lægstu stillingu, hannað til að dýpka og lengja fullnægingu
Vatnshelt
Já, má nota í sturtu, baði eða heitum potti
Titringur á Blush skalanum
4 af 5
Samhæft sleipiefni
Vatnsleysanlegt sleipiefni
Hljóðstig
Einstaklega hljóðlátt
Umbúðir
Umhverfisvænar pappaumbúðir
Geymslupoki
Flauelspoki fylgir
Vatnsvarnir í tölum
Vatnshelt (IP-gildi ekki tilgreint)
Rafhlöðugerð
Lithium rafhlaða (innbyggð, endurhlaðanleg)

Reset

Reset er hannað af eiganda Blush, Gerði Huld Arinbjarnar. Vörumerkið er hugsað til að gera sjálfsfróun eða kynlíf með maka enn ánægjulegra. Öll tækin hafa Reset eiginleika sem er hannaður til að dýpka og lengja fullnæginguna. Vörurnar eru endurhlaðanlegar,vatnsheldar og ættu að henta öllum einstaklingum með píku. Allar vörurnar eru úr 100% umhverfisvænu silíkoni og allir kassar úr endurnýtanlegum pappa.