Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Endó og kynlíf 💛

Endó og kynlíf 💛🔥

Þegar löngunin er til staðar en líkaminn segir nei!


Nú er kominn mars sem þýðir bara eitt: Það er Endómars!

Og í ár fagna Endósamtökin á Íslandi 20 ára starfsafmæli 🎈

Staðreyndin er hins vegar sú að fyrir marga er þetta ekki bara “mánuður” heldur daglegt líf.


Endómetríósa er krónískur sjúkdómur sem getur haft víðtæk áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu einstaklinga. Endó orsakast af því að endó frumur finnast á ýmsum stöðum í líkamanum sem bregðast við mánaðarlegum hormónabreytingum líkamans. Óeðlileg starfsemi frumanna getur valdið bólgum, innvortis blæðingum, blöðrum á eggjastokkum og samgróningum á milli líffæra. Allt þetta getur valdið miklum og ósýnilegum sársauka.


Endó getur einnig haft áhrif á kynlífið sem lýsir sér í verkjum við eða eftir kynlíf.


Kynlíf á ekki að vera eitthvað sem þú bítur á jaxlinn í gegnum. Það er ekki eðlilegt að þurfa að pína sig eða líða illa eða finna fyrir kvíða þegar kemur að kynlífi, hvað þá að finna fyrir sársauka á meðan kynlífi stendur.


Af hverju er kynlíf sárt með endó? 💥🥺

Endó getur valdið bólgum og samvexti í grindarholi sem eykur taugaviðkvæmni og spennu í grindarbotnsvöðvum. Algengt er að innsetning í leggöng sé aðal vandamálið þegar kemur að sársauka í kynlífi tengt Endó. Inn-út hreyfingar geta teygt og togað í staði þar sem frumur eða samgróningar hafa lagst á líffæri, eins og til dæmis á legið eða eggjastokka.


Leggangaþurrkur er einnig algeng aukaverkun tengt endó og getur valdið miklum óþægindum eða sársauka í kynlífi. Sumar meðferðir við endó eins og til dæmis hormónameðferðir geta líka ýtt undir þurrk í leggöngum.


Þau sem upplifa sársauka tengt kynlífi geta upplifað eitthvað af eftirtöldu:

  1. Skyndilegur sársauki eins og brennandi tilfinning eða stingur
  2. Djúpur sársauki í kvið
  3. Þurrkur eða viðkvæm slímhúð
  4. Spenna í grindarbotni sem gerir innsetningu óþægilega
  5. Verkir sem vara áfram eftir kynlíf eða við fullnægingu
  6. Mismikill sársauki eftir tegund kynlífs
  7. Sársauki við innsetningu t.d. ef farið er of djúpt í leggöng


Þegar líkaminn upplifir endurtekið áreiti eða sársauka getur hann farið í varnarham, grindarbotn spennist t.d. ósjálfrátt eins og hann sé að búa sig undir óþægindi. Þá getur tilhugsunin um kynlíf jafnvel orðið kvíðavaldandi. Hér er mikilvægt að huga einnig að andlega þættinum en það er ekki eðlilegt að finna fyrir sektarkennd, skömm eða þrýsting þegar kemur að kynlífi. Kynlíf er samvinna en ekki fórn og því er mikilvægt að muna að það á aldrei að gera neitt sem veldur þér sársauka.


Hvað getur hjálpað? 💛

Það er ekki ein leið sem virkar fyrir öll sem getur minnkað sársauka, en það eru nokkrar leiðir sem hægt er að prófa. Mikilvægt er að tala við þann sem þú stundar kynlíf með og finna leiðir sem virkar fyrir ykkur.


💦 Sleipiefni

Þurrkur og viðkvæm slímhúð eru algeng. Góð, nærandi og ilmefnalaus sleipiefni geta skipt miklu máli. Þau minnka núning, draga úr ertingu og geta gert innsetningu mun þægilegri. Uberlube sleipiefnið hefur silkimjúka áferð og góða endingu og inniheldur engin skaðleg efni eins og ilmefni eða paraben. Um er að ræða eitt hreinasta sleipiefnið á markaðnum með aðeins fjögur innihaldsefni.


🌸 Mjúk örvun getur verið lykill

Sumar konur með endó upplifa að kraftmikil og djúp örvun í leggöng sé óþægileg en mild örvun á sníp sé mun þolanlegri. Tæki sem vinna með til dæmis sog eða púls örvun geta verið mýkri leið en hefðbundin tæki með kraftmiklum titring. Flirt eggið hefur til dæmis mildan og léttan titring. Mikilvægt er að byrja rólega og prófa sig hægt og rólega með styrkinn. Mikilvægt að hætta strax ef líkaminn segir nei.


🔥 Hiti og slökun

Hiti getur hjálpað til við bólgu eða vöðvaspennu. Hitapúðar yfir grindarsvæði, heitt bað eða slökun fyrir kynlíf getur gert líkamann mun móttækilegri. Einnig er hægt að prófa sig áfram með slökunartækni eins og djúpa öndun til að hjálpa grindarbotninum að minnka spennu.


🫶🏼 Samtal og mörk

Eins og alltaf eru samskipti lykilatriði þegar kemur að kynlífi, en kynlíf með endó getur krafist oft meiri og ítarlegri samskipta.

  1. Hvað líður þér vel með?
  2. Hvað er það sem veldur þér sársauka?
  3. Hvað vilt þú prófa?
  4. Hverju eigum við að sleppa?


Það er eðlilegt að byrja, stoppa strax, breyta til, færa fókusinn annað eða yfir í aðra tegund nándar. Nánd getur verið allskonar og fullnæging þarf ekki að vera markmiðið og þarf ekki alltaf að koma frá innsetningu. Spilin Sambönd og Forleikur eru til dæmis tilvalin leið til að koma samtalinu af stað.


💋 Stellingar

Mismunandi stellingar geta haft áhrif og gott er að prófa sig áfram til að finna hvað virkar. Oft getur það hjálpað til ef þú hefur stjórn á dýpt og hraða, minni þrýstingur er á kvið eða grind og ef innsetning er ekki mjög djúp.

  1. Ofan á: Þú stjórnar dýpt og hraða, auðvelt að stoppa og breyta.
  2. Hlið við hlið (spooning): Minni þrýstingur á kvið, grynnri innsetning, hægari og mýkri hreyfing
  3. Með kodda: Koddi undir mjöðmum getur minnkað þrýsting á önnur svæði.


🎯 Buffer Rings

Ef þú upplifir sársauka við innsetningu, hún er of djúp og veldur óþægindum getur verið hjálplegt að prófa til dæmis Buffer Rings. Það eru mjúkir og sveigjanlegir hringir sem eru settir utan um typpið til að hjálpa við að stjórna dýpt og hreyfingu í kynlífi. Settið inniheldur þrjá hringi sem allir eru mismunandi þykkir svo þú hefur enn betri stjórn, hvort sem þú notar einn hring eða alla.


Við hvetjum öll til að kynna sér allt um Endómetríósu en mikilvægt er að þekkja einkennin. Áætlað er að um 200 milljónir kvenna alls staðar úr heiminum séu með Endó en meðalgreiningartími margra þeirra er um áratugur. Við sjúkdómnum er engin lækning.


💛 Vefsíða Endó inniheldur allt sem þú þarft að vita um sjúkdóminn, þar getur þú lesið um einkenni, greiningu, meðferðir, mýtur og fleira á auðlesnu máli https://endo.is/


🎧 Endókastið er hlaðvarp sem veitir frábæra innsýn inn í líf þeirra sem lifa með endó, þar er spjallað um Endó á mannamáli með raunveruleikann og húmorinn að vopni. Hlustaðu hér.