Sambönd
Sambönd er spil sem hugsað er fyrir öll pör sem vilja opna umræðuna og kynnast makanum sínum enn betur. Í stokknum eru 51 spil sem skiptast í 2 flokka: spurningar & verkefni.
Hvort sem þú vilt spila í heila kvöldstund eða nokkrar mínútur á milli annarra verkefna, þá er sambandsspilið kjörið fyrir þig og þinn maka.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
...Hvað er það sem gerir ástarsamband að góðu ástarsambandi?
...Hvað gerir það skemmtilegt?
...Er traust í sambandinu?
...Hvernig getið þið viðhaldið ástríðunni?
Spilið er fjörug og skemmtileg leið til að stykja sambandið, tala saman og þannig kynnast makanum sínum betur.
Leikreglur:
- Byrjið á því að stokka spilin og koma þeim fyrir í bunka.
- Leikmenn skiptast á að draga spil og lesa upphátt fyrir hinn aðilann.
- Báðir aðilar svara spurningunni eða leysa verkefnið sem upp kemur.
Sum spjöldin er hægt að ræða út frá mörgum sjónarhornum, t.d. tengja þau við kynlíf, daglegt líf, vinnuna eða fjölskylduna.
Spilið gengur ekki út að það að einn aðilinn sigri, heldur er markmiðið að pör styrki tengslin á milli sín með samskiptum og ýmiskonar æfingum.
Dæmi um Spurningar:
- Hvernig upplifir þú verkaskiptinguna í sambandinu þínu? Er eitthvað sem þú vilt bæta?
- Hvað kannt þú mest að meta í fari maka þins? Nefndu þrennt.
- Hversu oft í viku eða mánuði finnst þér passlegt að stunda kynlíf? Eru þið sammála? Ef ekki, getið þið mæst á miðri leið?
Spilið er samið með fjölbreytileika fólks í huga og hentar því öllum.









