Pro Traveler
Satisfyer Pro Traveler er eitt af okkar allra vinsælustu sogtækjum. Satisfyer Pro Traveler er sogtæki sem hannað er sérstaklega til þess að veita djúpa og kraftmikla örvun á snípinn. Það veitir létt sog á snípinn og notar þrýstibylgjutækni til þess að örva hann og líkja eftir unaðslegum munnmökum. Sogtilfinningin er frábrugðin annarsskonar örvun. Við mælum með því fyrir alla þá sem eru með sníp að prófa þessa mögnuðu tilfinningu sem sogtæki geta veitt.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Satisfyer Pro Traveler hefur einstaka lögun á stútnum sem leggst á snípinn. Hann er umlukin einstaklega mjúku silíkoni sem gerir upplifunina enn unaðslegri. Tækið hefur breiðan stút sem leggst vel yfir snípinn. Þó sogið sé létt þá veitir það kröftuga örvun. Tækið kemur með loki sem smellist yfir stútinn svo að óhreinindi komast ekki að því þegar að það er ekki í notkun. Það passar vel í veski og er einstaklega fallegt í hönnun. Stúturinn sem leggst yfir snípinn er úr umhverfisvænu silíkoni og mælum við eingöngu með vatnssleipiefni.
Stillingar:
Á tækinu eru 2 takkar. Plús og mínus (+/-). Ýtt er á + til að auka kraftinn og - til að minnka hann. Haldið er inni + til að kveikja og slökkva á tækinu. Sogkrafturinn í Satisfyer Pro Traveler er 4 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran neðst á það og festist með segli. Hleðslusnúra fylgir sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Tækið er sturtuhelt og þolir því ekki að fara á kaf í vatn eins og í bað eða heitan pott. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: Umhverfisvænt silíkon
- Stærð: 100x35mm
- Þyngd: 192gr
- Rafhlaða: Li-ion battery
- Hleðslutími: 1 klukkustund
- Ending rafhlöðu: 1,5 klukkustund
- Kraftstillingar: 11
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau. Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is
Satisfyer
Þar sem þýsk verkfræði mætir unaði.








