ENDÓMARS
Endómars
Nú er mars sem þýðir bara eitt: Það er Endómars!
En hvað er Endómars? Endómars er mánuður tileinkaður vitundarvakningu um endómetríósu
Endómetríósa er krónískur sjúkdómur sem getur haft víðtæk áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu einstaklinga. Endómetríósa er sjúkdómur sem orsakast af því að endómetríósufrumur finnast á ýmsum stöðum í líkamanum. Frumurnar bregðast við mánaðarlegum hormónabreytingum líkamans. Óeðlileg starfsemi frumanna getur valdið bólgum, innvortis blæðingum, blöðrum á eggjastokkum og samgróningum á milli líffæra. Allt þetta getur valdið miklum sársauka.
Það er þó margt hægt að gera til að draga úr áhrifum sjúkdómsins og auka lífsgæði þeirra sem lifa með honum.
Hver er með endómetríósu?
Einstaklingar sem eru fæddir með kvenlíffæri eða fæðast í kvenlíkama eru þeir sem geta greinst með endómetríósu. Einkenni endómetríosu geta gert vart við sig fyrir fyrstu blæðingar og einnig eftir að breytingaskeiði lýkur. Einkenni eru yfirleitt verst á frjósemisskeiði.
Endómetríósa er krónískur, fjölkerfa og fjölgena sjúdómur sem veldur mismiklum einkennum og hefur mismikil áhrif á daglega líf fólks með sjúkdóminn.
Endómetríósa leggst á 1 af hverjum 10 einstaklingum sem fæðast í kvenmannslíkama.
Endó og kynlíf
Þau sem lifa með endómetríósu geta upplifað sársauka og óþægindi tengt kynlífi.
Það er algengt að innsetning í leggöng eða endaþarm sé aðal vandamálið þegar kemur að sársauka í kynlífi tengt Endó. Inn og út hreyfingin getur teygt og togað í staði þar sem frumur og/eða samgróningar hafa lagst á líffæri, eins og til dæmis á legið eða eggjastokka.
Leggangaþurrkur er einnig algeng aukaverkun tengd endó og getur valdið miklum óþægindum og/eða sársauka í kynlífi. Sumar meðferðir við endó eins og til dæmis hormónameðferðir geta líka ýtt undir þurrk í leggöngum.
Það eru ekki öll með Endó sem upplifa sársauka tengdan kynlífi, þau sem gera það hins vegar geta upplifað eitthvað af eftirtöldu:
- Skyndilegur sársuaki eins og stunga
- Djúpur sársauki í kviðnum
- Mismikill sársauki: sársauki getur farið eftir tegund kynlífs sem er stundað, til dæmis, upplifa sum sársauka við innsetningu eða ef farið er of djúpt í leggöngin og sum upplifa aðeins sársauka eftir kynlíf eða jafnvel við fullnægingu.
Hvað er hægt að gera?
Það er ekki ein leið sem virkar fyrir öll sem minnkar sársauka, en það eru nokkrar leiðir sem hægt er að prófa. Það er mikilvægt að tala við þann sem þú stundar kynlíf með og finna leiðir sem virka fyrir hvert og eitt.
Mismunandi stellingar geta haft áhrif og það getur verið gott að prófa sig áfram til að finna hvað virkar.
Stellingar þar sem þau með endó eru ofaná geta hjálpað þar sem manneskjan getur stjórnað dýpt og hraða og þannig fundið takt sem hentar. Stellingar sem innihalda grynnri innsetningu geta einnig hjálpað til dæmis að spúna, mjaðmir manneskjunar með endó eru uppliftar (til dæmis með púða) eða umbreytt doggy stelling.
Ohnut buffer settið hefur reynst vel að því leitinu til að hann kemur í veg fyrir að farið sé of djúpt í leggöng eða endaþarm. Hringina er hægt að setja á typpi eða tæki t.d titrara eða dildó. Eftir því sem fleiri hringir eru notaðir minnkar dýptin enn frekar.
Hitabreytingar geta létt verulega á sársauka við innsetningu, hvort sem það er hiti eða kæling. Því geta gler og stáltæki verið góð leið til að prófa sig áfram í innsetningu
Mismunandi örvun
Ef kynlíf í leggöngum er einfaldlega ekki málið vegna sársauka eru aðrar leiðir til örvunar, t.d munnmök, nudd, forleikur og örvun á sníp.
Gott sleipiefni getur einnig gert gæfumun fyrir þau sem eiga erfitt með innsetningu eða upplifa leggangaþurrk, svo getur lengri forleikur líka hjálpað til með náttúrulega rakamyndun.
Hér koma nokkrar vörur sem hafa reynst vel í kynlífi fyrir þau sem lifa með endó.
Hægt er að lesa meira um Endómetríósu, greiningu, meðferðir, mýtur og endó á auðlesnu máli ásamt fleiru hjá Endósamtökunum á https://endo.is/.
Endókastið er hlaðvarp sem veitir frábæra innsýn inn í líf þeirra sem lifa með endó þar sem spjallað er um endó á mannamáli með raunveruleikann og húmorinn að vopni. Hlustaðu hér
Við hvetjum öll til að kynna sér um endó í mars!











