Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Next

32.990 kr.

Womanizer Next tekur unaðinn upp í hæstu hæðir. Með byltingarkenndri 3D Pleasure air tækni veitir hann enn meiri dýpt fyrir ákafari fullnægingar. Tækið líkir eftir sogi og verður upplifunin eins og af unaðslegum munnmökum. Á Womanizer Next hefur þú enn meiri stjórn þar sem hægt er að stjórna dýptinni á soginu. Hér er um að ræða einstaklega hljóðlátt tæki sem leyfir þér að halla þér aftur og njóta sem aldrei fyrr.

Veldu eiginleika

Svartur

32.990 kr.

Fjólublár

32.990 kr.

Túrkis

32.990 kr.

1 stk.

  • Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
  • Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
  • Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Next
Next
Next
Next
Next
Next
Next
Next
Next
Next

Ekki gleyma með!

Waterbased Sleipiefni
150ml

+ 1.990 kr.

150ml
Hreinsifroða

+ 2.290 kr.

Vörulýsing

Sogtilfinningin sem Womanizer veitir er frábrugðin annarsskonar örvun og mælum við sérstaklega með því fyrir alla sem eru með sníp að leyfa sér að upplifa þessa mögnuðu tilfinningu sem sogtæki geta veitt. Womanizer örvar snípinn óbeint en þó að sogtilfinningin sé létt er örvunin frekar djúp sem getur veitt dýpri og kraftmeiri fullnægingu en með öðrum tækjum. Womanizer vörurnar eru allar háklassa vörur sem hafa einfalda og fallega hönnun. Next hefur snjalltakka (Auto Pilot) sem býður upp á fjölbreytta örvun á sama tíma, þá er hægt að þrýsta á snjalltakkann og leyfa tækinu að taka stjórn á örvuninni. Climax Control takkinn leyfir þér að stjórna dýptinni á soginu, en þar hefur þú hefur val um 3 styrkleika. Snertiskynjari er á tækinu sem gerir það að verkum að tækið fer ekki af stað fyrr en það leggst upp við húðina sem gerir það enn hljóðlátara.

Tækið er einstaklega mjúkt viðkomu og er umlukið mjúku sílikoni. Next kemur í þremur litum, svörtum, túrkis og fjólubláum og hafa þeir háklassa útlit.

Við mælum eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.

Stillingar:

Haldið inni on/off takkanum til þess að kveikja á tækinu. Smellt er á + takkann til þess að auka kraftinn og - takkann til þess að minnka kraftinn. Til þess að stjórna dýptinni á soginu er þrýst á Climax Control takkann, hann er staðsettur fyrir ofan mínus takkann. Ljósin fyrir ofan takkann sýna hvaða styrkleiki er valinn. Til þess að kveikja á Auto Pilot er þrýst á ~ takkann en hann er staðsettur innan á tækinu.Til þess að slökkva á Auto Pilot er takkanum haldið inni. Til þess að virkja After Glow er - takkanum haldið inni, tækið fer þá strax í lægstu stillingu.

Sogkrafturinn í Womanizer Premium er 4 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.

Stúturinn sem leggst yfir snípinn er úr umhverfisvænu silíkoni, hægt er að taka stútinn af til að auðvelda þrif.

Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran neðst á það og festist með segli. Hleðslusnúra fylgir sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Tækið er sturtuhelt en þolir ekki að fara á kaf í vatn eins og í bað eða heitan pott. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.

Við mælum eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.

Upplýsingar:

  1. Efni: Umhverfisvænt silíkon án phthalates, BPA og latex
  2. Stærð: 17,1 x 5,4 x 5,7
  3. Hleðslutími: 120 min
  4. Ending rafhlöðu: 120 min
  5. Kraftstillingar: 14
  6. Einn stútur er á tæki og annar fylgir með.
  7. Sleipiefni:Vatnsleysanlegt
  8. Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)

Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.

Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is