Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Vinsælustu Kynlífstækin 2020

Sala á kynlífstækjum hafi rokið upp árið 2020 um allan heim.

Mörg ný og spennandi tæki bættust í hópinn og ýmislegt nýtt er væntanlegt árið 2021. 


Gerður Arinbjarnar, eigandi Blush tók saman lista yfir vinsælustu kynlífstækin á íslandi árið 2020


Síðustu 7 árin höfum við hjá Blush gefið út lista í byrjun hvers árs

með þeim tækjum sem hafa verið vinsælust hjá okkur árið áður.

Listinn hefur verið gríðarlega vinsæll og hjálpar mörgum að velja sitt drauma tæki.

Oft er það nefnilega þannig að okkur langar að fjárfesta í nýju tæki en vitum ekki hvað skal velja.

Þau tæki sem eru vinsælust eru oftast þau tæki sem henta lang flestum.


Listinn samanstendur af vinsælustu vörunni í hverjum flokk fyrir sig. 


Egg 


Purple Pleasure frá Satisfyer er fyrirferðarlítið egg sem er hugsað til að örva snípinn. Það hentar fullkomlega til notkunar í sjálfsfróun eða í kynlíf með maka. Auðvelt er að koma tækinu fyrir á milli tveggja einstaklinga á meðan kynlíf er stundað. Það er úr umhverfisvænu silíkoni og mælum við eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með tækinu.



Einfaldur titrari 


The Rose er sveigjanlegur og mjúkur titrari sem er fullkominn í sjálfsfróunina eða í forleik með maka. Tækið veitir góða fyllingu í leggöng og hefur sveigðan enda sem veitir þrýsting á næm svæði í leggöngum. The Rose hefur einstaklega fallega hönnun.



Tvöfaldur titrari 


Mono Flex er lúxus titrari með tveimur mótorum. Hægt er að stjórna hvorum mótor fyrir sig og því er auðvelt að ráða því hvar titringurinn á að vera sem mestur. Hvort sem þú kýst að hafa titringinn kröftugan á snípnum og léttan í leggöngum eða öfugt. Endinn sem er til að örva snípinn er lítill og nettur og hentar tækið því vel fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir miklum þrýsting á snípinn.



Sogtæki


Love Triangle frá Satisfyer er einstaklega hljóðlátt en kröftugt sogtæki sem er sérstaklega hannað til þess að veita djúpa og kraftmikla örvun á snípinn. Tækið er blanda af léttu sogi og djúpum titring. Tækið notar þrýstibylgjutækni til þess að örva snípinn og líkja eftir unaðslegum munnmökum. Sogtilfinningin er frábrugðin annarsskonar örvun. Hægt er að tengja tækið við app í símanum með bluetooth og má þannig stjórna titringnum með símanum með fyrirfram tilbúnum stillingum. 




Nuddvöndur 


Wand-Er frá Satisfyer er einstaklega kröftugur nuddvöndur. Hann er því kjörinn til að örva breitt svæði á og í kringum snípinn og önnur næm svæði. Silíkon umlykur allan vöndinn sem gerir hann einstaklega mjúkan viðkomu og hentar því tækið einnig til að nudda háls og herðar.



Endaþarmstæki 


Primo er einstaklega fjölbreytt tæki sem er hannað sem endaþarmstitrari fyrir öll kyn. Hægt er að nota hann bæði til að örva inn í leggöng, á sníp eða í endaþarm. Primo er góður endaþarmstitrari fyrir byrjendur sem og lengra komna því hann er nettur og auðveldur í notkun. Flatur endinn á tækinu gerir það auðvelt að nota hann bæði í samförum sem og í sjálfsfróun. 



Múffur 


Flip Orb múffurnar eru tvær í sínum flokki og hafa mismunandi mynstur að innan. Þær eru frábrugðnar hefðbundnum múffum að því leyti að innan í þeim eru sérstakar Orb kúlur sem veita aukna örvun. Flip Orb rúnkmúffurnar eru allar opnanlegar sem gerir þrifin á þeim einstaklega auðveld. 

Flip Orb gerir rúnkið eða forleikinn enn unaðslegri. Þar sem að rúnkmúffurnar eru mjúkar og kreistanlegar henta þær fyrir allar stærðir og gerðir af typpum. Þegar að múffan er kreist þrýstist loftið úr henni og myndar náttúrulegt sog sem líkir eftir unaðslegum munnmökum. Þú stjórnar mismunandi þrengingu með því að ýta á hringlaga þrýstipunktnana utan á múffunni.



Sleipiefni 


Uberlube er hágæða sleipiefni sem inniheldur aðeins náttúruleg efni. Sleipiefnið er silíkonblandað sem gefur því silkimjúka áferð og góða endingu. Uberlube hefur aðeins fjögur innihaldsefni sem gerir það eitt af hreinustu sleipiefnunum á markaðnum. Það er lyktarlaust og inniheldur engin skaðleg efni eins og paraben eða ilmefni. Uberlube er frábær viðbót í kynlífið, munnmökin eða sjálfsfróunina og hefur ekki neikvæð áhrif á sýrustig eða bakteríuflóru í leggöngum eða endaþarmi.



Spil 


Sambönd er spil sem hugsað er fyrir öll pör sem vilja opna umræðuna og kynnast makanum sínum enn betur. Í stokknum eru 51 spil sem skiptast í 2 flokka: spurningar & verkefni.

Hvort sem þú vilt spila í heila kvöldstund eða nokkrar mínútur á milli annarra verkefna, þá er sambandsspilið kjörið fyrir þig og maka þinn.



Parahringir 


Sérstök afmælisútgáfa af Blush paraboxinu sem er tilvalið fyrir öll pör, hvort sem um gagnkynja eða samkynja pör sé að ræða. Í paraboxinu er Blush parahringur, fjöður, blindfold, buttplug, nuddolía og vatnssleipiefni frá Just glide. Boxið inniheldur allt sem þú þarft til þess að eiga unaðslega stund með eða án maka.