Paraboxið
22.940 kr.
12.990 kr.Blush paraboxið er tilvalið fyrir öll pör óháð kyni. Í paraboxinu er Blush parahringur, tickler, buttplug, nuddolía og vatnssleipiefni frá Blush. Boxið inniheldur allt sem þú þarft til þess að eiga unaðslega stund með eða án maka.
Heildar verðmæti er 22.940 kr
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Valor er einstaklega mjúkur og sveigjanlegur parahringur sem býður upp á fjölbreytta notkun. Hringurinn auðveldar þeim sem eru með typpi að viðhalda stinningu og getur veitt dýpri fullnægingu. Hægt er að setja hringinn innst á typpið í kynlífi með maka, þar sem hinn endinn á tækinu leggst á og örvar snípinn. Einnig er hægt að koma hringnum fyrir utan um typpi og pung, hringurinn leggst þá við og örvar spöngina.
Hringurinn er úr silíkoni og mælum við með því að nota eingöngu vatnssleipiefni með honum þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hann.
Stillingar: Á tækinu sjálfu er einn takki sem notaður er til að kveikja á titringnum, eftir það er hægt að stjórna tækinu með fjarstýringunni. Tækið er sturtuhelt og má taka það með í sturtu en það þolir ekki að vera í kafi eins og í baði.
Titringurinn í parahringnum er 3 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörunar okkar eftir krafti ýtið HÉR
Blush vatnssleipiefni: Hentar í sjálfsfróun eða kynlífi, með eða án kynlífstækja. Það er mjúkt viðkomu, klístrast ekki og er auðvelt að þrífa af með vatni. Sleipiefnið hentar einnig með öllum tegundum smokka.
Stærð: 150ml
Magoon Nuddolía: Nuddolía sem hefur nærandi áhrif á húðina með JoJoba og möndlu olíu. Hún hefur unaðslegan ilm og silkimjúka áferð sem klístrast ekki, olían er ekki ætluð til að nota á kynfæri.
Stærð: 50 ml
Buttplug: Fallegt og fyrirferðarlítið buttplug án titrings. Það er þægilegt í notkun þar sem að mjór endinn gerir það einstaklega auðvelt að koma því fyrir í endaþarmi. Pluggið er mjúkt viðkomu, er úr sveigjanlegu silíkoni og hentar öllum kynjum, bæði þeim sem hafa ekki prófað endaþarmsvörur áður og þeim sem eru lengra komnir. Einstaklingar sem stunda kynlíf þar sem að typpi fer inn í leggöng geta báðir fundið fyrir góðum þrýstingi og þrengingu inni í leggöngum ef að buttpluginu er komið fyrir í endaþarmi hjá þeim aðila sem er með leggöng. Þannig finna báðir aðilar fyrir örvun á sama tíma. Buttplugið er um 7 cm langt.
Tickler: Nett kítla með stuttu handfangi. Fjaðrirnar eru mjúkar og veita góða tilfinningu. Tilvalið í forleikinn.
Upplýsingar:
- Parahringur: Umhverfisvænt silíkon
- Blush sleipiefni 150ml: Aqua, Glycerin, Hydroxet Hylcellulose, Sodium Benzoate, Potassium Sorbate, Sodium Hydroxide, Sodium Acetate, Isopropyl Alcohol, Cellulose, Citric Acid.
- Magoon Nuddolía 50ml: Paraffinum liquidum, Trilaureth-4 phosphate, Isopropyl palmitate, Polyglyceryl-2 sesquiisostearate, Simmondsia chinensis (Jojoba) seed oil, Benzyl alcohol, Benzyl salicylate, Citral, Eugenol, Coumarin, Geraniol, Butylphenyl methylpropional, Linalool, Benzyl benzoate, Citronellol, Hexyl cinnamal, Limonene, Parfum.
- Buttplug: Umhverfisvænt silíkon 7cm
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is





















