Sturtukynlíf💦
Hefur þú séð geggjaða bíómynda sturtukynlífssenu og hugsað með þér “Vá þetta er geggjað! Prófum þetta!?" og síðan varð það líkara vandræðalegu slip'n'slide í stað þess að vera heitt, blautt og ástríðufullt?
Þá ert þú á réttum stað!
Rannsóknir (lausleg athugun) sýna að yfir helmingur fólks dreymir um eða hefur stundað kynlíf í sturtu. Oft lifir kynlífið þó ekki upp eftir fantasíunni, en sápa, sleipt gólf og lítið pláss getur reynst erfitt að vinna með til að byggja upp spennuna og hitann.
Sturtukynlíf getur nefnilega verið geggjað og er tilvalin leið til að auka nánd í uppteknu sambandi, fyrir kynlíf á túr eða bara fyrir þau sem vilja sleppa við öll þrif tengd kynlífi.
Hér koma því nokkur ráð til þess að þú getir notið sturtukynlífs sem endar (vonandi) ekki á slysó!
Sturtumotta!
Sleipt sturtugólf er stór ástæða slysa þegar kemur að sturtukynlífi. Sturtu eða baðmotta kemur í veg fyrir að þú rennir, auðveldar jafnvægi og opnar á meiri fjölbreytni þegar kemur að stellingum.
Jafnvægisstöng!
Stöng til að halda jafnvægi hjálpar mikið til rétt eins og mottan. Það getur reynst erfitt að halda jafnvægi ef þú getur ekki haldið neinsstaðar í nema í blautan vegg. Sturtustangir geta verið mjög ódýrar með sogskálum eða extra sterkar skrúfaðar í vegginn.
Sleipiefni!
Þrátt fyrir ímyndina úr bíómyndum og þáttum, þá er vatn ekkert sérstaklega næs sem staðgengill fyrir sleipiefni. Heita vatnið getur nefnilega skolað í burtu náttúrulega sleipiefni líkamans. Hér er silíkon sleipiefni þinn besti vinur þar sem heita vatnið skolar vatnsleipiefni strax af. Uberlube til bjargar!
Vatnsheld kynlífstæki!
Tæki eru sjaldan slæm viðbót við forleikinn eða kynlífið og það á líka við um sturtukynlífið. Taktu tækið með í sturtuna og slepptu við áhættuna að reyna of hættulegar stellingar.
(Athugið: mörg tæki eru einungis sturtuheld/ splash proof, og henta því ekki í bað eða heitan pott. Við mælum með að skoða hvert tæki fyrir sig áður en það er notað í vatni)
Ekki gleyma sturtuhausnum!
Nýttu tækifærið að vera í sturtunni og bættu sturtuhausnum við actionið! Notaðu sturtuhausinn sem auka örvun á snípinn eða annarstaðar og taktu unaðinn á næsta stig með vatnskraftinn að vopni!
Bestu stellingarnar! (Og það sem þú skalt varast)
Jæja núna erum við búin að fara yfir helstu ráðin til að bæta sturtukynlífið, en hvaða stellingar ættir þú þá að prófa? Hérna er listi yfir nokkrar af bestu stellingunum (hámarks unaður með lágmarks áhættum) og því sem við mælum ekki með nema þú sért í sirkus.
Bestu stellingarnar:
Sestu niður.
Þessi er mögulega sú öruggasta sem þú finnur, einfaldlega setjist niður í baðið eða sturtuna ef pláss leyfir. Hér getur manneskjan með typpið/ strap-on/ tækið sest upp við vegginn/baðkarið með fætur beina og síðan getur hinn aðilinn sest klofvega niður. Hérna er ekki mikil rennihætta svo þessi er fullkomin fyrir byrjendur.
Upp við vegginn.
Manneskjan sem tekur við typpinu eða strap-on(-inum) hallar efri hluta líkamans upp við vegg og glennir rass og fætur (ekki of mikið). Þá getur hinn aðilinn haldið í að aftan og squattað smá upp og niður. Það er mikill plús í sturtukynlífi að hafa alla fætur á gólfinu - Þessi stelling hentar mjög vel.
Standandi doggy.
Þessi er geggjuð ef sturtan/ baðið býður uppá sæti eða bekk. Aðilinn með typpi eða strap-on stendur fyrir aftan hinn, og sá fremri beygir sig fram með hendur á sætið eða bekkinn. Hérna er líka vel hægt að styðja sig við sturtustöngina eða blöndunartækin. Þessi virkar mjög vel fyrir kynlíf í leggöng sem og í rass.
Standandi kleina.
Þó svo að fætur á gólfi sé almennt öruggast í sturtukynlífi þá má alveg breyta til líka langi þig í eitthvað aðeins meira skemmtilegt. Þessi stelling er fullkomin í það! (Svo lengi sem gólfið sé öruggt, hérna er sturtumotta fullkomin). Manneskjan með typpið/ strap-on eða tækið stendur með fætur í sundur (aðeins lengra en mjaðmabil fyrir stöðugleika) og hinn aðilinn vefur öðrum fætinum utanum mittið á þeim með typpið/strap-on-inn fyrir auðvelda innsetningu. Ef það er erfitt fyrir manneskjuna að halda fætinum uppi þá getur hinn aðilinn stutt við með því að halda undir lærið. Hér er gott að nýta vegginn sem stöðugleika s.s manneskjan sem tekur við stendur upp við eða hallar sér að vegg.
Sturtuhaus.
Ef þú ert með sturtuhaus sem er ekki fastur á veggnum/ í loftinu, þá skaltu tékka á þessari. Manneskjan sem tekur við munnmökum stendur í þæginlegri stöðu, báðir fætur í gólf, hallandi upp við vegg eða vefja öðrum fætinum untanum félagann, hvað sem þér/ykkur finnst þæginlegast. Hinn aðilinn fer síðan á hnén (bónorðstaðan getur líka verið góð) og gefur makanum eða félaganum unaðsleg munnmök. Ef að manneskjan sem gefur munnmökin er með píku er algjörlega tilvalið að grípa sturtuhausinn og nota hann til að örva snípinn á meðan. Ef manneskjan sem gefur munnmökin er með typpi er líka hægt að nota sturtuhausin til að kitla og örva létt eða nota hann til að auka örvun makans/ félagans.
Gangi þér vel í öllum þínum blautu ævintýrum!💦















