10 ráð fyrir næsta rómantíska ferðalag 🏖️
Tími til að hengja „Do not Disturb“ skiltið á hurðina! 😏
Ég held að við getum öll verið sammála um að hótel-kynlíf er með því betra! Í raun ætti það að vera ein helsta ástæða þess að pör bóki rómantískt-getaway. Að breyta um umhverfi og flýja daglegu rútínuna getur hrist aðeins upp í kynlífinu og endurvakið lostafulla spennu. Flest erum við (vonandi!) afslappaðri en vanalega í fríi, sérstaklega barnlausu fríi! Þá er auðveldara að krydda aðeins upp á stemninguna, fá að vera par án alls áreitis og leyfa sér að njóta.
Hér höfum við tekið saman 10 góð ráð til að krydda upp á næsta rómantíska ferðalag.
1. Taktu með kynlífstæki eða seiðandi aukahluti 🔥
Þegar kemur að því að pakka niður fyrir ferðalagið má ekki gleyma því sem kryddar upp á rómantíkina. Fyrir suma getur það verið uppáhalds titrarinn, fyrir aðra kynþokkafull undirföt, nuddolíur, sleipiefni eða aðrir seiðandi aukahlutir. Við mælum einnig eindregið með að koma við hjá okkur í Blush og velja saman eitthvað nýtt og spennandi fyrir ferðalagið, það er eitthvað extra spicy að vita af einhverju sem bíður ykkar þegar þið takið upp úr ferðatöskunni á áfangastað.
2. Notaðu allt hótelherbergið 😮💨
Heima eigum við það til að vera svolítið föst í sömu rútínunni í kynlífinu. Því er um að gera að notfæra sér allt hótelherbergið. Rúmið er auðvitað frábær byrjunarreitur, stórt, mjúkt og þægilegt. En þú ert að missa af ef þú ætlar bara að stunda hótelkynlífið í rúminu. Prófaðu stólinn, sófann, skrifborðið eða hallaðu þér fram yfir vaskinn á baðherberginu fyrir framan spegilinn (persónulega mælum við með!). Svo klikkar hótelsturtan auðvitað ekki.
3. Tvö orð: Hádegis-kynlíf! 🍕
Í fríinu snýst allt um það að komast út úr hinni daglegu rútínu. Þegar þú ert í fríi þarf ekki bara að stunda kynlíf á kvöldin þegar þið komið upp á hótel eftir langan dag. Leyfið ykkur smá fjör um morguninn, í hádeginu eða miðjan daginn. Mælum með að prófa tíma dags sem þið vanalega stundið ekki kynlíf heima.
4. Gefið ykkur tíma! 🧘🏼
Þegar þið þröngvið kynlífi inn í stútfulla dagskrá og daglegu rútínuna heima, þá getur verið mjög auðvelt að flýta sér í gegnum það. Klára og losa. Í fríinu er fullkomið tækifæri til að slaka aðeins á og gefa ykkur góðan tíma. Takið alvöru, langan og unaðslegan forleik. Dekrið við hvort annað með sparitotti eða píkudekri. Þegar þið eruð í afslöppun er engin ástæða til að drífa þetta af!
5. Kúplaðu þig úr vinnunni 😌
Ef þú ert manneskja sem átt erfitt með að kúpla þig úr vinnunni þá er þetta mjög mikilvægt. Notið fríið til að tengjast aftur. Ekki vera með hausinn heima, hvort sem það tengist vinnunni eða börnunum. Skiljið fartölvuna eftir, slökkvið á tilkynningum og gefið ykkur þennan tíma til að endurvekja spennu sem getur haldið áfram að vaxa eftir að heim er komið.
6. Líkamleg nánd og tenging 💫
Rómantískt getaway er tilvalið til að endurstilla tenginguna á milli huga og líkama. Þetta þarf ekki alltaf að snúast bara um sjálft kynlífið. Takið eftir nýjum hljóðum, litum, lykt eða bragði. Verið dugleg að snerta hvort annað. Þetta getur kveikt á löngun og þrá og sem um leið gerir kynlífið enn meira örvandi.
7. Notið sleipiefni! 💦
Þetta er hin gullna regla fyrir allt gott kynlíf, líka hótelkynlíf! Ekki gleyma að henda sleipiefninu með ofan í ferðatöskuna. Hvort sem það er ykkar hefðbundna uppáhalds sleipiefni, eða eitthvað nýtt og öðruvísi. Til dæmis sleipiefni sem gefur hita, bragð eða örvandi kitl.
8. Slakið á 💋
Leyfið allri ofhugsun, stressi og streitu að fljúga út um gluggann. Slakið á huganum og sleppið allri pressu og væntingum. Fríið er fullkomið til að leyfa sér að vera afslöppuð, tengjast, snertast, horfast í augu, leiðast, kyssast, elskast og njóta augnabliksins akkúrat núna.
9. Ekki telja! 🫣
Þó þið séuð í fríi og hótelkynlíf er jafn skemmtilegt og það getur verið, þá er samt stranglega bannað að setja pressu á hversu oft þið stundið kynlíf. Ekki setja upp einhverjar óraunhæfar væntingar á þig eða maka. Leyfið hlutunum að flæða og ekki einblína á að stunda eins oft og mikið kynlíf og þið getið á meðan þið eruð í fríi.
10. Prófið eitthvað nýtt 😈
Þetta er tími til að vera smá skapandi og ögrandi. Leyfið ykkur að stíga út fyrir þægindarammann í fríinu og prófa eitthvað nýtt. Hvort sem það er ný stelling, nýtt kynlífstæki, leika sér með eitthvað smá kink eða fantasíu sem þið hafið ekki prófað áður. Nú er tækifærið!








