Snípurinn
Hvað og hvar er snípurinn?
- Snípurinn er líffæri sem er úr svampkenndum vef með yfir 10.000 taugaenda.
- Hann er um 10-15 cm langur, umlykur leggöngin og nær alla leið aftur að endaþarmi.
- Þrátt fyrir að snípurinn sé 10-15 cm langur að þá sjáum við ekki nema mjög lítinn part af honum. Það sem við sjáum er snípshöfuðið og er hægt að líkja því við litla baun.
- Snípurinn er staðsettur efst á píkunni, fyrir neðan hann kemur þvagrásarop og þar fyrir neðan leggöngin. En engin snípur er í sömu lögun eða lengd.
- Snípshöfuðið er varið með hettu sem kallast snípshetta.
Hvað er hlutverk snípsins?
- Snípurinn er með um 10.000 taugaenda og hans eina hlutverk er að veita einstaklingum með píku kynferðislega ánægju.
Hvað gerist þegar snípurinn er örvaður?
- Þegar snípurinn er örvaður hvort sem það er með fingri, titrara, munnmökum eða frá öðru kynfæri að þá rennur blóðflæðið í snípinn, hann þrútnar út og verður næmari fyrir snertingu.
- Hægt er að sjá snípshöfuðið stækka þegar hann þrútnar út, en það er ekki bara snípshöfuðið sem þrútnar heldur er það allur snípurinn og er oft hægt að sjá það líka á ytri börmunum að þeir roðna og þrútna.
- Það er risvefur í snípnum og virkar hann eins og þegar getnaðarlimur fær reisn nema hjá aðilum með píku er það snípurinn sem fær reisn.
- Snípurinn er mis næmur snertingu og því mikilvægt að prófa sig áfram og læra á sjálft sig. Hversu mikinn eða lítinn þrýsting þarf á hann, viltu nota 1 fingur eða fleiri, titrara eða ekki, munnmök eða örvun frá öðru kynfæri.
En ef þú “finnur” ekki snípinn?
- Eins og kemur fram hér fyrir ofan er engin snípur í sömu lögun eða lengd og eru þeir mis næmir.
- Snípshöfuðið er það eina sem við sjáum og er restin af snípnum undir húð og umlykur leggöngin og nær alla leið aftur að endaþarmi.
- Stundum er snípurinn ekkert sjáanlegur og er allur undir húð eða er mjög lítill og sést varla. Þá getur verið erfitt að finna staðsetningu hans og þarf þá að hafa meira fyrir því að örva hann. Oft er þá auðveldara að fá leggansfullnægingu eða G- bletts fullnægingu. Við mælum með Desire frá Reset, hann er vatnsheldur titrari sem er mjúkur og sveigjanlegur en hann er hugsaður til þess að örva G - blettinn. Einnig mælum við með Lingo fyrir tvöfalda örvun, hann er tvöfaldur titrari og er hugsaður til þess að örva sníp og inn í leggöng á sama tíma.
- Öll erum við misjöfn og það á líka við um kynfæri okkar, engin píka er eins. Með því að gefa okkur tíma til að læra á okkur sjálf og finna út hvaða örvun hefur mestu áhrif á okkar píku mun auðvelda okkur að leiðbeina aðilanum sem við stundum kynlíf með.
- Ekki gefast upp, njóttu þess að stunda sjálfsfróun og að læra inn á þig. Að fá snípsfullnægingu er unaðslegt og það er ekkert í líkingu við þá tilfinningu.
Hjá okkur í Blush er fjölbreytt magn af kynlífstækjum, til þess að nota sem örvun á snípinn. Einnig er hægt að koma og fá allskonar ráð og leiðbeiningar.
Góð ráð:
- Nota sleipiefni er númer 1, 2 og 3 þar sem snípurinn smyr sig ekki sjálfur. Uberlube er hágæða sleipiefni sem inniheldur aðeins náttúruleg efni og hefur engin neikvæð áhrif á sýrustig eða bakteríuflóru í leggöngum. Það er sílikon blandað og veitir því silkimjúka áferð ásamt því að endast lengi.
- Setja á góða tónlist, við mælum með Blush Sexy Time á spotify.
- Prufa sig áfram með allskonar snertingum. Dæmi: 1 fingur og nudda baunina, hringlaga hreyfingar, nota 2 fingur og “klípa” utan um baunina, strjúka með 3 fingrum fram og aftur, leggja alla höndina yfir píkuna og þrýsta.
- Ekki endilega bara snerta snipshöfuðið heldur einnig innri og ytri barma. Le wand nuddvöndur er einn kraftmesti nuddvöndurinn á markaðnum. Hann er fullkominn til þess að örva breitt svæði á og í kringum snípinn og einnig á önnur næm svæði á líkamanum.
- Bæta inn kynlífstækjum. Melt frá We/Vibe er sogtæki sem notar þrýstibylgju tækni, það er hljóðlátt en kröftugt og veitir djúpa örvun á snípinn. Waterbased Lubricant frá Easy Glide er vatnsleysanlegt sleipiefni og hentar því einstaklega vel í sjálfsfróun eða kynlíf með kynlífstækjum.
- Nota örvandi olíu. Stimulating Orgasm Oil er náttúruleg örvandi olía sem inniheldur meðal annars hamp olíu. Olían eykur blóðflæðið í snípinn sem hefur þau áhrif að að hann þrútnar út og verður næmari, auk þess ýtir hún undir náttúrulega rakamyndun og kynhvöt.
- Slaka á og hafa kósý stemmningu með kertum.
- Njóta.
