Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Skrúfaðu upp hitann 🔥

Hérna eru 15 leiðir til að skrúfa upp hitann! 😍 🔥 



1. Leika með hárið. Hvort sem þið eruð að horfa á mynd, bara að chilla eða uppi í rúmi. Renndu fingrunum í gegnum hárið á þeim og gefðu þeim smá höfuðnudd, Virkar alltaf.


2. Sexting. Að senda makanum eða félaganum sexí skilaboð í gegnum daginn er skotheld leið til að byggja upp spennuna. Dæmi “ég get ekki hætt að hugsa um þig” “Hvað ætlaru að gera við mig þegar þú kemur heim” og ennþá meira dirty, valmöguleikarnir eru endalausir.


3. Athygli. Vertu með alla athygli á manneskjunni. Það finnst öllum gott þegar þau finna að á þau sé hlustað og finnast þau mikilvæg. Gefðu innileg hrós.


4. Spurðu hvað þau vilja. Einfaldast leiðin til að uppötva hvað virkar best fyrir makann eða félagann er einfaldlega að spyrja. “Finnst þér gott þegar ég geri xyz?” “Hvað lætur þér líða vel?”


5. Búið til “nei, já, kannski” lista. Það getur verið óþæginlegt að prófa nýja hluti sérstaklega ef þú veist ekki hvernig makinn/ félaginn mun bregðast við. Listinn gefur öruggt pláss fyrir báða aðila að geta rætt um fantasíur og hvað ykkur finnst gott eða ekki, og hvað ykkur lnagar að prófa eða alls ekki. Takið sitthvort blaðið (eða Notes appið), skiptist á að nefna hluti og skrifið svo við hvern hlut Já, Nei eða Kannski. Þá er skýrt á blaði hvað hver aðili er til í að gera eða prófa! Þessi æfing er geggjuð leið til að ræða samþykki og leið til að gera samþykki að heitu umræðuefni. 


6. Notaðu aðeins fingurgóma. Láttu makann/ félagann liggja eða setja fyrir framan þig og notaðu svo aðeins fingurgóma og mjög léttar snertingar til snerta og strjúka, þú getur líka klórað létt með nöglinni. Finndu hvernig það kviknar í ykkur og þið getið varla staðist að snerta hvort annað meira. 


7. Kveiktu í þér. Gredda getur verið smitandi svo oft virkar einfaldlega að vera í stuði sjálf/ur/t, og makinn/ félaginn fylgir fljótt á eftir.


8. Losaðu allar truflanir. Truflanir geta alveg skemmt andrúmsloftið og eyðilagt stemminguna. Helsta truflunin er auðvitað síminn, tölvur og drasl. Taktu allar þessar truflanir í burtu og einbeitið ykkur bara að ykkur. 


9. Losaðu stress. Stress getur haft alveg ótrúlega mikil áhrif á kynhvöt og flestir átta sig ekki á hversu sterk sú tenging er. Mikið stress og til dæmis stórar breytingar hjá eintakling geta haft áhrif á öryggi og manneskjan gæti átt erfiðara með að líða mjög sexí eða komast í stuð. Lausnin getur verið einföld eins og til dæmis, nokkur hvetjandi orð “ég sé hvað þú ert að leggja hart að þér” eða “Þú ert að takast á við þessar aðstæður svo vel, þú getur þetta” getur verið mjög dýrmætt að heyra og tengist vel við punkt númer 3, að manneskjan finni fyrir sjáanleika og athygli. Einnig geta gæðastundir eins og að slaka á saman og horfa á mynd eða nudd ýtt undir nánd og minnkað stress.


10. Sameiginleg sjálfsfróun. Að leyfa maka að horfa á þig stunda sjálfróun og öfugt eða studna sjálfsfróun á sama tíma er alveg ótrúlega heitt!


11. Undirföt. Sexí undirföt bregðast seint. Undirföt geta líka haft áhrif á þig. Vitandi í gegnum daginn að þú ert með sexí leyndarmál sem engin veit nema þú og makinn/ félaginn gerir spennuna alveg óbærilega og getur aukið sjálfstraustið.

12. Láttu eftir fantasíum. Prófið að leika eftir fantasíu hins aðilans og öfugt. Þetta getur aukið traust ásamt því að þú getur uppgötvað eitthvað glænýtt sem þú elskar (hérna er listinn frá punkti númer 5 fullkominn!)


13. Horfið á sexí þátt eða mynd saman. Hérna eru nokkrar uppástungur sem koma blóðinu af stað.


14. Prófið tæki með fjarstýringu. Tæki með fjarstýringu eru alveg ótrúlega heit til að byggja upp spennuna, að horfa á makann/ félagann iða úr vellíðan af þinni stjórn og öfugt, það gerist varla heitara.

15. Engar hendur. Þið getið notað til dæmis, aðra líkamshluta, varir, tungu, andadrátt og fleira og sjáið hvað gerist.