Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Sexý Seríur!

Þarft þú nýjann þátt fyrir næsta hámhorf? Ekki leita lengra! Hérna er samansafn af skemmtilegum og sexý seríum sem þú mátt ekki missa af.


Bridgerton þarf nú varla að kynna fyrir flestum, en ef þú hefur ekki ennþá séð þessa sjóðheitu seríu fulla af ástríðu, geggjuðum búningum og popplögum í klassískri útgáfu, þá ertu heldur betur að missa af!


Serían fjallar um Bridgerton fjölskylduna í London á árunum 1813-1827. Hver sería fylgir einu af börnum fjölskyldunnar í leit að ástinni, og fylgja miklar flækjur og dramtík, ásamt ástríðufullum senum sem skrúfa hitann í botn! Mælum með!

Normal People er sú sería sem sýnir kynlíf og sambönd á hvað mest raunverulegan máta. Serían er byggð á samnefndri bók og fylgir þeim Connell og Marienne í gegnum flóka lífsins. Serían inniheldur MARGAR kynlífssenur og þættirnir hafa verið mikið lofaðir fyrir raunverulega sýn af kynlífi af alvöru kynlífi og öllu því sem fylgir. 


Sex/life eru fyrir öll sem eiga sér gamlar minningar um slokkna elda. Höfundur þáttana, byggði þættina á bók um líf B. B. Easton (44 chapters about 4 men). 

Tveggja barna móðir í úthverfi Greenwich fer í fantasíu-hlaðna ferð minninga þegar hún skrifar niður dagbók um villt og sjóðheit ævintýri hennar og fyrrverandi kærasta. Þetta setur hana og núverandi hjónaband hennar í erfiða stöðu þegar hún rifjar upp villta fortíð sína. 



White Lotus eru líklega heitustu þættirnir frá HBO í dag. White Lotus gerast á samnefndri hótel keðju. Hver sería gerist á einu hóteli í einu landi, fyrsta á Hawaii, næsta á Ítalíu og sú nýjasta í Tælandi. Hver sería fylgir nýjum hópi gesta sem eiga sér öll faldnar hliðar. Í þessum skrautlegu hópum furðufugla er litið inní flóknar tengingar þar sem leynast mörg leyndarmál, forboðnar ástir og svik. Kynlífið í seríunni er oft á tíðum mjög heitt og í þónokkrum tilvikum mjög óvænt og spennandi.


Sex education er einlægur og hrár þáttur sem fylgir breskum unglingum vegferð þeirra inní heim kynlífs, sjálfsfróunar, sjálfsuppötvunar og fleira sem fylgir ungu árunum. Aðalpersóna þáttana er Otis, en hann á mjög erfitt með þessar kynferðislegu þróanir jafnaldra sinna, hann flækist síðan óvart inní hlutverk kynlífsráðgjafa skólalóðarinnar og því fylgir allskyns rugl og skemmtilegheit. 


Sex Love and Goop eru raunveruleika/ heimildaþættir þar sem heilsugúru Gwyneth Paltrow fylgir pörum sem leita sér aðstoðar við kynlíf, kynheilbrigði og sambönd. Pörin skoða mismunandi (og stundum mjög óhefbundnar) leiðir til að auka nánd í sambandinu.