Melt 2
Melt 2 er lítið og nett sogtæki frá We Vibe. Tækið fellur vel í hendi og er lögunin til þess gerð að falla vel á milli tveggja einstaklinga. Það veitir kraftmikla örvun á snípinn með þrýstibylgjutækninni sem líkir eftir unaðslegum munnmökum. Hægt er að stjórna tækinu með snjallforriti eða á tækinu sjálfu.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Melt 2 er hljóðlátt en kröftugt sogtæki sem er sérstaklega hannað til þess að veita djúpa og kraftmikla örvun á snípinn. Snertiskynjari er á tækinu sem gerir það að verkum að tækið fer ekki af stað fyrr en það leggst upp við húðina sem gerir það enn hljóðlátara. Hægt er að stjórna tækinu hvar sem er í heiminum sem gerir tækið einstaklega hentugt fyrir einstaklinga í fjarsambandi.
Hægt er að hlaða niður We-Connect appinu í App Store fyrir Iphone og Google Play fyrir Android.
Við mælum með því að nota sleipiefni með þessari vöru til þess að gera upplifunina enn betri. Eingöngu er mælt með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Hleðslusnúra fylgir með sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Stillingar:
Á tækinu eru tveir takkar, +/-. Haldið inni + takkanum til þess að kveikja á tækinu, ýtið 1x á takkann til þess að auka kraftinn. Haldið inni - takkanum til þess að slökkva á tækinu, ýtið 1x á takkann til þess að minnka kraftinn.
Upplýsingar:
- Efni: Silikon
- Stærð: 138,3 x 43,60 mm
- Þyngd: 328 gr
- Hleðslutími: 90 mín
- Ending rafhlöðu: Allt að 120 mín
- Krafstillingar: 12
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
- Sérstakir eiginleikar: Kraftmikið, hentar vel að nota með leikfélaga þar sem það er lítið og nett & hægt að stjórna úr hvaða fjarlægð sem er.
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin. Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á blush@blush.is























