OG
OG frá Womanizer er háklassa sogtæki sem hægt er að nota til örvunar á sníp eða inn í leggöng á g-blettinn. Tækið notar þrýstibylgjutækni til að framkalla létt sog sem veitir djúpa og kraftmikla örvun auk þess sem það býður upp á 3 titrings stillingar. Hægt er að stjórna soginu og titringnum hvoru fyrir sig. Tækið hefur snertiskynjara og fer ekki í gang fyrr en stúturinn leggst upp við húð sem gerir það hljóðlátara en önnur sogtæki á markaðnum.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Sogtilfinningin sem Womanizer veitir er frábrugðin annarsskonar örvun og mælum við sérstaklega með því fyrir alla sem eru með sníp að leyfa sér að upplifa þessa mögnuðu tilfinningu sem sogtæki geta veitt. Womanizer örvar snípinn óbeint en þó að sogtilfinningin sé létt er örvunin frekar djúp sem getur veitt dýpri og kraftmeiri fullnægingu en með öðrum tækjum. Womanizer vörurnar eru allar háklassa vörur sem hafa einfalda og fallega hönnun.
Við mælum eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Stillingar:
Á tækinu eru 4 takkar. Neðsta takkanum er haldið inni í 2 sek til að kveikja/slökkva á tækinu. Smellt er á + til að auka sog kraftinn og - til að minnka hann. Efsti takkinn stýrir svo titringnum í tækinu.
Krafturinn í tækinu er 4 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran neðst á það og festist með segli. Hleðslusnúra fylgir sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Tækið er sturtuhelt en þolir ekki að fara á kaf í vatn eins og í bað eða heitan pott. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: Umhverfisvænt silíkon án phthalates, ABS og PU
- Stærð: 17,7, x 10,5 x 3,8 cm
- Þyngd: 152 gr
- Hleðslutími: 100 mín
- Ending rafhlöðu: 120 mín
- Sog stillingar: 12
- Titrings stillingar: 3
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is








