Vibe
Womanizer Vibe er eintaklega fallegur titrari með hljóðlátri UltraWave tækni. Djúpur og kraftmikill titringurinn veitir unaðslega örvun á snípin og önnur næm svæði. Tækið hefur einstaklega fallega lögun og er hannað sérstaklega með það í huga að tækið passi vel í hendi og að auðvelt sé að stjórna því.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Tækið er einstaklega mjúkt viðkomu og er umlukið mjúku sílikoni. Vibe kemur í þremur litum, dökk bláum, túrkís og bleiku og hafa þeir allir háklassa útlit. Vibe hefur snjalltakka (Auto Pilot) sem býður upp á fjölbreytta örvun á sama tíma, þá er hægt að þrýsta á snjalltakkann og leyfa tækinu að taka stjórn á örvuninni. Við mælum eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Stillingar:
Haldið inni + takkanum til þess að kveikja á tækinu. Smellt er á + takkann til þess að auka kraftinn og - takkann til þess að minnka kraftinn.Til þess að kveikja á Auto Pilot er þrýst á ~ takkann en hann er staðsettur fyrir ofan - takkann.Til þess að slökkva á Auto Pilot er takkanum haldið inni.
Titringurinn í Womanizer Vibe er 3 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR.
Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran neðst á það og festist með segli. Hleðslusnúra fylgir sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Tækið er sturtuhelt en þolir ekki að fara á kaf í vatn eins og í bað eða heitan pott. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: Umhverfisvænt silíkon án phthalates, ABS.
- Stærð: 142x47x52 mm
- Hleðslutími: 90 min
- Ending rafhlöðu: 90 min
- Kraftstillingar: 10
- Autopilot stillingar: 3
- Sleipiefni:Vatnsleysanlegt
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is.














