Kiku
Kiku er fallegur og vandaður nuddvöndur með tveimur mismunandi endum. Tækið býður upp á fjölbreytta örvun þar sem hægt er að nota annan endann til þess að örva breitt svæði á og í kringum sníp og hinn til þess að örva leggöng. Kiku hefur blöðku í endanum sem ætlaður er til þess að örva G-blett. Blaðkan hreyfist taktfast upp og niður og veitir þannig einstaka upplifun.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Við mælum eingöngu með því að nota vatnssleipiefni með vörunni þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hana.
Stillingar:
Á tækinu eru 3 takkar. Miðju takkanum er haldið inni til þess að kveikja og slökkva á tækinu. Takkar fyrir ofan og neðan miðju takkann stjórna hvorum endanum fyrir sig. Hægt er að skipta um kraft eða takt stillingar með því að ýta stutt á annan hvorn takkann.
Titringurinn í Kiku er 5 á Blush skalanum 1-5. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörurnar okkar eftir krafti ýtið HÉR
Til að hlaða tækið leggst hleðslusnúran á það og festist með segli. Hleðslusnúra fylgir sem hægt er að stinga í samband við hleðslukubb. Tækið er sturtuhelt en þolir ekki að fara á kaf í vatni eins og í bað eða heitan pott. Athugið að ekki er ráðlagt að nota tækið til örvunar á meðan það er í hleðslu.
Upplýsingar:
- Efni: Silíkon, ABS
- Þyngd: 243 gr.
- Stærð: 25,2 x 3,2 x 5,5 cm
- Þvermál: 5 cm
- Innsetningarlengd: 12 cm
- Hleðslutími: 150 mín.
- Hleðsluending: 60 mín
- Stillingar: 10
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is





