Uberlube, ómissandi í allt kynlíf!
Hefur þú heyrt um sleipiefni sem má nota sem nuddolíu, hárolíu, á nuddsár, sem farðagrunn eða til að pússa leðurskóna?
Við erum að tala um eitt hreinasta sleipiefnið á markaðnum, Uberlube, hágæða sleipiefni sem er frábær viðbót í kynlífið, munnmökin eða sjálfsfróunina.
Saga Uberlube nær allt aftur til ársins 2002 þar sem markmiðið var að framleiða silkimjúkt, hreint sleipiefni sem ertir ekki húðina og klístrast ekki. Tveimur árum seinna eftir hundruði prófana á að þróa hina fullkomnu formúlu fór Uberlube á markað en það sem einkennir sleipiefnið eru gæði og einfaldleiki sem endurspeglast í þeirra látlausu og fallegu glerflöskum.
Enn þann dag í dag, tæpum tveimur áratugum frá fyrstu framleiðslu, er Uberlube framleitt í verksmiðju þeirra í Chicago en örfáir einstaklingar þekkja formúluna og sjá um að hver og ein lota sé framleidd eftir þeirra hæstu gæðastöðlum.
Uberlube inniheldur aðeins fjögur innihaldsefni en sleipiefnið er blandað sílikoni sem gefur því silkimjúka áferð og afburðar endingu. Formúlan er lyktarlaus, inniheldur aðeins efni úr plönturíkinu, er ekki prófuð á dýrum og inniheldur engin skaðleg efni eins og paraben eða ilmefni. Uberlube hefur því ekki neikvæð áhrif á sýrustig eða bakteríuflóru í leggöngum eða endaþarmi.
Sleipiefnið hentar ekki aðeins til notkunar í kynlífi en eins og fyrr segir þá hefur Uberlube frábæra eiginleika og því tilvalið til notkunar til að koma í veg fyrir nuddsár, sem nuddolía, í hárið eða jafnvel sem farðagrunnur í andlit. Markmiðið með Uberlube er að vera hágæða vara sem ýtir undir unaðslega upplifun, hvort sem það er í kynlífi eða ekki.
Við sjáum það hjá okkar viðskiptavinum að þau eru trygg vörumerkinu og velja gæði og hreinleika Uberlube aftur og aftur.
Hér koma nokkrar umsagnir frá viðskiptavinum Blush:
- “Endalaust, það endist endalaust!”
- “LANG BEST”
- “Ómissandi að eiga slíkt”
- “Eins og andardráttur, lífs nauðsynlegt”
- “Besta sleipiefni í heimi!”
- “Skyldueign á öll heimili”
- “Besta sleipiefni sem ég hef prófað!"
- "Game changer að nota það í munnmökum”
- "Besti hlutur á þessari jörðu, alveg ómissandi!"
- "Kynlífið aldrei verið betra"
- “Ómissandi í allt kynlíf”
- “Hreint æði!”
- “Elska það”
Athugið!
Uberlube skal EKKI nota með kynlífstækjum úr sílikoni þar sem efnið eyðileggur sílikonið. Ef sílikon sleipiefni er notað með sílikon tækjum fellur varan úr ábyrgð.
Ef þú hefur ofnæmi fyrir sílikoni eða einhverskonar aukaverkanir tengt því ættir þú að velja vatnsleysanlegt sleipiefni.