Typpahringir fyrir aukinn kraft og unað!
Af hverju að nota typpahring? Typpahringir eru notaðir fyrir aukinn unað, meira úthald og meiri kraft í kynlífinu!
Við hjá Blush eigum úrval af typpahringjum sem koma í mörgum stærðum, allskonar lögun, með eða án titrings svo þú ættir að finna eitthvað sem hentar.
Flestum hringjum er komið fyrir utan um typpi alveg að typparót, utan um pung eða utan um typpi og pung. Typpahringir eru notaðir fyrir aukinn unað, meira úthald, meiri kraft en einnig í læknisfræðilegum tilgangi við ristruflunum og/eða eftir aðgerð á blöðruhálskirtli. Typpahringur þrengir að og takmarkar blóðflæðið, typpið þrútnar og verður næmari fyrir örvun. Af því hringurinn þrengir að, að þá er hann einnig að auka úthald þar sem typpið á ekki eins auðvelt með losun en þegar fullnægingin kemur verður hún töluvert kröftugri og dýpri. Hringurinn hjálpar einnig til við að viðhalda reisn út kynlífið. Eftir blöðruhálskirtilsaðgerð getur typpið minnkað og á erfiðara með að ná fullri reisn og viðhalda henni. Þá hafa typpahringir hjálpað ótrúlega mörgum eftir aðgerð til þess að ná reisn, viðhalda henni og fá meiri næmni í typpið.
Hafir þú ekki prufað typpahringi áður að þá er 3 - Piece Cock Ring Set tilvalið fyrir byrjendur. Þeir koma þrír saman í mismunandi stærðum og er þá sniðugt að byrja á stærsta og færa sig svo neðar og neðar, það getur verið skrítin tilfinning að nota typpahring í fyrstu skiptin enn það á auðvitað aldrei að vera vont. Það þarf í rauninni að “þjálfa” typpið í minni hringi. Þetta sett er með þunnum hringjum og því þinnri sem hringirnir eru því teygjanlegri eru þeir. Ef þú kemst í minnsta hringinn að þá er hægt að nota stærsta utan um typpi og pung eða bara utan um pung og hina tvo utan um typpi, þá ertu komin með meiri þrengingu og meiri næmni. Hafir þú notað typpahringi áður er auðveldara að fara í minni og breiðari hringi. Því breiðari sem hringirnir eru því stífari eru þeir og þrengja þá meira að. Diamond Cock Ring og Cock Ring With Steel Core eru með mikinn stífleika og þrengja því mikið að. Því þrengri sem hringirnir eru því öflugri og dýpri verður fullnægingin. Armour Up er hannaður til þess að fara utan um bæði typpi og pung, þrengingin gerir typpið þrútnara og þrýstir því upp svo að það standi lengra út. Hann veitir einnig þrýsting á spöngina sem er ákveðin örvun.Hægt er að fá typpahringi með auka örvun á spöngina, p- blettinn, snípinn og inn í leggöng. Benedict er tilvalinn fyrir auka örvun á spöng. Á honum eru tveir hringir, stærri hringurinn er teygður utan um punginn og þeim minni komið fyrir utan um typpi að typparót, mótorinn í tækinu leggst þá þétt við spöngina og örvar hana með titring á meðan hringirnir þrengja að fyrir betri stinningu og dýpri fullnægingu.
Parahringir eru ótrúlega vinsælir en Winni hentar einstaklega vel fyrir pör þar sem annar aðilinn er með typpi og hinn aðilinn með píku. Hringurinn er þá teygður utan um typpið alveg að typparót og þrengir að fyrir betri stinningu, gefur meiri kraft og dýpkar fullnæginguna. Mótorinn sem er áfastur við hringinn er til örvunar á sníp með titring. Hægt er að snúa hringnum í allar áttir eftir því í hvaða stellingu er farið. Vibrating Ring er einnig parahringur, hann hentar fyrir pör þar sem báðir aðilar eru með typpi eða annar aðilinn með typpi og hinn píku. Á honum eru tveir hringir og tveir mótorar. Annar hringurinn er teygður utan um punginn og hinn fer utan um typpið að typparót og þrengir að fyrir betri stinningu, annar mótorinn leggst við typpið og fer inn í leggöng/endaþarm en hinn endinn leggst ofan á og örvar snípinn/spönginn og veitir þannig aukna örvun fyrir báða aðila í kynlífi. Stimul8 Vibrating Anal Cock&Ball hefur tvo mótora en veitir fjórfalda örvun. Á tækinu eru tveir hringir, annar þeirra fer utan um pung og hinn utan um typpi að typparót og gerir því typpið stinnara, næmara og veitir dýpri og kraftmeiri fullnægingu. Á tækinu eru plug sem er komið fyrir inn í endaþarmi og í honum er mótor sem veitir aukna örvun á p- blettinn með titringi, hinn mótorinn á milli plugsins og hringjana leggst þétt við spönginni og titrar. A.T.H. að ekki er mælt með að nota typpahring lengur en í 30 mínútur.
Hjá okkur í Blush fæst fjölbreytt úrval af typpahringjum, hægt er að skoða úrvalið í vefverslun Blush.is en einnig er hægt að koma við hjá okkur í versluninni á Dalvegi 32B og fá ráð og leiðbeiningar.