Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Þrif og umhirða kynlífstækja

Við elskum kynlífstæki en það er eitt sem við megum ekki vanrækja og það er þrif og umhirða ✨


Rétt umhirða og hreinlæti er nauðsynlegt bæði til að tryggja ánægju og öryggi. Að þrífa kynlífstæki reglulega lengir ekki bara endingartíma þeirra heldur getur það einnig komið í veg fyrir útbreiðslu baktería og sýkinga. Hér ætlum við að fara stuttlega yfir mikilvægi þess að þrífa kynlífstæki, hvernig best er að viðhalda góðu hreinlæti ásamt því að mæla með nokkrum góðum hreinsiefnum.


Af hverju að þrífa kynlífstæki reglulega? 🔍

Mikilvægt er að halda kynlífstækjunum þínum hreinum af ýmsum ástæðum:

  1. Kynlífstæki eru notuð á viðkvæm svæði líkamans sem gerir þau næm fyrir því að komast í snertingu við bakteríur eða sýkla. Regluleg þrif getur komið í veg fyrir uppsöfnun baktería á tækinu.
  2. Ef ekki er hugað að þrifum er hætta á óþægindum eins og þvagfærasýkingu, sveppasýkingu eða bakteríusýkingu. Þegar kemur að endaþarmstækjum verður að huga extra vel að hreinlæti.
  3. Regluleg þrif og góð umhirða heldur kynlífstækjunum í toppstandi, getur lengt endingartíma þeirra og viðhaldið upprunalegri áferð á tækinu.


Hvernig er best að þrífa kynlífstæki? 💎

  1. Lestu leiðbeiningarnar og fylgdu alltaf ráðleggingum framleiðanda um þrif og umhirðu.
  2. Fyrir tæki sem eru ekki vatnsheld eða mega ekki fara á kaf í vatn er best að nota rakan klút með hreinsiefni eða mildri sápu til að þrífa yfirborð tækisins.
  3. Önnur tæki má þvo undir volgu vatni.
  4. Notaðu hreinsi sem sérstaklega er gerður fyrir kynlífstæki. Ekki er t.d. mælt með að nota spritt eða fituleysanleg hreinsiefni þar sem það getur valdið ertingu eða jafnvel skemmt tækin.
  5. Leyfðu kynlífstækjunum þínum að þorna alveg áður en þau eru sett í geymslupoka eða geymslubox. Hægt er að þurrka varlega yfir með hreinu handklæði ef þörf krefur.
  6. Geymdu tækin á köldum og þurrum stað. Ef geymslupoki fylgir tækinu er best að geyma tækið í pokanum að koma í veg fyrir snertingu við önnur tæki. Slíkt getur valdið niðurbroti á yfirborði eða sílíkoni tækjanna.


Hvaða vörur er best að nota til að þrífa kynlífstæki? 🌿

  1. Blush hreinsifroðan er sérstaklega hönnuð til að hreinsa kynlífstæki. Pumpan skammtar mátulegu magni af hreinsiefni sem gerir það auðvelt að dreifa vörunni. Hreinsifroðan hentar öllum tegundum kynlífstækja.
  2. FleshWash er hreinsisprey sem er sérstaklega hannað fyrir múffur. Hreinsiefnið er fljótvirkt og hefur þann eiginleika að drepa bakteríur en ekki einungis að fjarlægja þær.
  3. Toy Cleaner Wipes eru hreinsiklútar sem gera þrifin einstaklega þægileg en auðvelt er að nota klútana til að strjúka létt af yfirborðinu. Tilvalið á ferðalaginu.


Rétt umhirða og hreinlæti er lykilatriði fyrir ánægjulega upplifun. Regluleg þrif kemur ekki aðeins í veg fyrir uppsöfnun baktería heldur eykur einnig líkurnar á að tækið endist lengur. Mundu að fylgja leiðbeiningum framleiðanda og velja hreinsiefni sem hentar því tæki sem um ræðir. Svo er bara að halla sér aftur og njóta! 🔥