System JO fyrir þig
System JO sleipiefnin eru tilvalin til að uppfæra leikinn!
Bara það eitt og sér að nota sleipiefni í munnmökum er “game changer”, það gerir munnmökin margfalt einfaldari og þægilegri. System JO sleipiefni gera þetta ennþá skemmtilegra 😜 System JO vörurnar eru framleiddar við háa staðla og innihalda engin óæskileg efni.
Mismunandi týpur eru í boði svo öll ættu að finna eitthvað við sitt hæfi 🤩
System JO er með breitt vöruúrval, m.a. bragðbætt sleipiefni með t.d. ávaxta🍉, eftirrétta🍰 og kokteila bragði🍹, örvandi gel🔥, deyfandi gel sem hægir á sáðláti, gel sem veitir kæli tilfinningu❄️, nuddolíur og fleira!
H2O línan
H2O línan eru hrein vatnssleipiefni sem koma í nokkrum týpum. H2O Original, sem fjölhæfasta (og mest selda!) formúlan, setur sannarlega viðmiðið fyrir vatnsleysanleg sleipiefni. H2O sleipiefnin eru silkimjúk og fullkomin fyrir hvers kyns innileg augnablik. Auðvelt að hreinsa af, gefur húðinni raka og skilur hana eftir einstaklega mjúka.
Agape Sleipiefnið
Hreinasta vatnssleipiefnið frá System JO. Agape er hágæða vatnssleipiefni með aðeins sex innihaldsefni. Agape líkir eftir náttúrulegri rakamyndun, er pH jafnað og hefur þunna, silkimjúka áferð. Tilvalið fyrir þau sem eru með viðkvæma húð.
Bragð Sleipiefna línan - ávaxta, eftirrétta og kokteilabragð
Bragðbætt sleipiefni er frábær viðbót í kynlífið, munnmök eða forleikinn. Kryddaðu upp á kynlifið og prófaðu bragðbætt sleipiefni og þú bragðast eins og gómsæt kirsuber, frískandi mojito eða ómótstæðilegt tiramisu! Með u.þ.b 17 bragðtegundir í boði ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi. Sleipiefnin hafa ekki ertandi áhrif og er því tilvalið að sprauta þeim á kynfæri og sleikja svo af.
Örvandi línan
Warm & Buzzy
Staðbundið örvandi gel sem umbreytir hverri snertingu. Silkimjúk, vatnsbundin formúla sem inniheldur nærandi kókosolíu og sheasmjör, fyrir langvarandi leik í allt að 45 mínútur. Fullkomið fyrir bæði sóló og í kynlífi, það passar sérstaklega vel við titrandi leikföng og í munnmök.
12 Volt
Olíublandað örvandi gel. Það hefur góða endingu og geta einn til tveir dropar á snípinn veitt þér unað sem endist í allt að 45 mínútur. 12 Volt hefur hámarksstyrk og er eitt af fáum örvandi gelum sem veitir víbrings tilfinningu sem gefur enn meiri örvun á snípinn. Gelið veitir hitatilfinningu sem eykur blóðflæði og gerir þig næmari fyrir snertingu á snípinn.
Þar sem 12 Volt er olíublandað gel, hentar það ekki með tækjum úr silikoni en er kjörið til þess að auka unað í forleik eða í kynlífi í vatni, þar sem gelið skolast ekki af þegar það kemst í snertingu við vatn.
Gelið hefur ekki ertandi áhrif og hefur rétt sýrustig fyrir píkur. Það hefur náttúrleg innihaldsefni og engin rotvarnarefni eða hormón.
Oral delight
Oral Delight er bragðbætt kælandi gel með jarðarberjabragði og er frábær viðbót í munnmökin. Gelinu er sprautað á tunguna og kyngt og hefur kælandi og deyfandi áhrif í kokið. Einnig er hægt að sprauta gelinu á kynfæri og sleikja það af þar sem kælandi áhrifin geta veitt aukna örvun fyrir píku eða typpi. Gelið inniheldur aðeins náttúruleg efni, gefur frábæran raka og kælandi tilfinningin gerir munnmökin enn unaðslegri.
Nuddolíur
Að gefa eða fá erótískt nudd getur opnað á margar dyr fyrir pör í byrjun leiks, og það er miklu auðveldara en maður heldur. System JO nuddolíurnar skapa hið fullkomna umhverfi fyrir rómantíska stund. Olíurnar koma í þremur lyktum, Lavender & Tahitian Vanilla, Peppermint & Eucalyptus og Coconut & Lime. Olíurnar eru unnar úr hreinum efnum sem sameinar blöndu af hnetu- og ávaxta olíum með öðrum náttúrulegum innihaldsefnum. System JO nuddolíurnar eru vegan
Pro Longer
Gel sem inniheldur náttúrulega deyfandi efni sem hægja á sáðláti og fullnægingu hjá þeim sem eru með typpi. Gelið inniheldur piparmyntuolíu sem hefur deyfandi áhrif og eykur úthaldið til muna. Piparmyntuolían gerir typpið þrútnara og eykur þannig unað auk þess að gera þér kleift að njóta sjálfsfróunar og kynlífs lengur.
Active Trying
Actively Trying er sérhæft vatnssleipiefni tilvalið fyrir pör í barneignarhugleiðingum. Sleipiefnið er sérhannað til að viðhalda umhverfi sem stuðlar að frjóvgun. Ólíkt dæmigerðum sleipiefnum hefur Actively Trying verið hannað - og prófað - til að hámarka sæðisfrumur. Actively Trying er silkimjúkt og gerir upplifunina enn betri.
Leyfðu þér að njóta, nældu þér í System JO vörur og uppfærðu leikinn! 😍💦






