Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Smokkar Fyrir Alla Typpaeigendur

Ert þú að nota smokkinn rétt?

Smokkar koma í mörgum stærðum og gerðum og eru eina vörnin gegn kynsjúkdómum. Fyrir suma getur það verið vandasamt að finna rétta smokkastærð en með því að nota rétta smokkastærð eykur það líkurnar á að þú stundir betra og öruggara kynlíf. Til þess að vera viss um að smokkurinn virki sem skyldi, komi í veg fyrir kynsjúkdóma og ótímabærar þunganir er mikilvægt að hann sé hvorki of lítill né of stór. Smokkar sem eru of litlir gætu rifnað og of stórir smokkar gætu runnið af typpinu. Smokkar í rangri stærð geta einnig valdið óþægindum í kynlífi fyrir einstaklinginn með typpið. Til að finna út úr því hvaða smokkastærð hentar þér, má mæla á sér typpið og prófa mismunandi stærðir.

Hvaða stærð hentar þér ?

Það er hægt að velja um margar stærðir af smokkum, m.a. fyrir mjög lítil typpi og mjög stór typpi. Smokkarnir sem fást hjá Blush.is eru frá merkjunum Skins, Durex, Skyn, Mister Size og Blush. Flestir typpaeigendur ættu því að geta fundið smokka sem passa.

Hvað má og hvað má ekki?

Þegar smokkar eru notaðir er hins vegar mikilvægt að nokkrir hlutir séu hafðir í huga. Til dæmis geta olíur og sum sleipiefni eytt upp efninu í smokkum og þeir þar af leiðandi rifnað. Það er einnig mikilvægt að fylgjast með dagsetningu hvers smokks til að tryggja það að þeir séu ekki útrunnir. Smokkar eru einnota og því ekki hægt að nota sama smokkinn tvisvar. Hann er settur á typpið þegar það er í reisn, með því að halda við totuna efst á smokknum og rúlla honum niður typpið. Varast skal að nota smokk sem hefur legið lengi í veski eða á öðrum þröngum stað þar sem hann gæti hafa eyðilagst. Það er einnig mikilvægt að opna pakkningarnar varlega til að forðast það að rífa smokkinn.

 

Fyrir frekari upplýsingar um smokka bendum við þér á að hafa samband Blush@blush.is