SEVEN SEVEN SEVEN!
Það muna flestir eftir því í Friends þegar Monica gaf Chandler einstaklega fyndna kennslustund á næmu svæðunum sjö, þar sem Monica gaf hverju svæði númer og setti svo saman númeraröð sem á að leiða til fullnægingar og ánægju.
Efirminnilega lína Monicu þar sem hún hrópar upp “SEVEN, SEVEN, SEVEN” hefur eflaust leitt marga til að pæla hver þessi svæði eru og hvort kennslustundin sé byggð á sannleik.
Það er hárrétt, en aðal næmu svæði líkamans eru nefnilega sjö eins og Monica kenndi okkur. Þau eru varir, háls, eyrnasneplar, bringa/brjóst eða geirvörtusvæði, innri læri, rass og svo kynfæri.

Þó svo að þessi sjö svæði séu talin “aðal” næmu svæðin, er það ótrúlega persónubundið hvað virkar fyrir okkur öll. Til dæmis geta geirvörtuleikir verið æðislegir fyrir suma en gera ekki neitt fyrir aðra. Satt að segja getur næmt svæði verið hvar sem er á líkamanum. Önnur algeng svæði sem geta kveikt í getur verið allt frá handakrika til fóta, aftan á hnjám og á höfðinu (höfuðnuddari í náttborðskúffuna?)
Hver þarf að finna sín helstu svæði, sem getur orðið afar skemmtilegt verkefni bæði fyrir einstaklinga sem og pör!
Hvernig er best að finna og örva svæðin?
Þó það sé persónubundið hvað hver og einn fílar eru nokkrar aðferðir sem getur verið gaman að prófa á byrjunarstigum.
Algengast er að nota fingurnar, það getur verið gott að skoða líkamann með fingrum, strjúka og prófa mismunandi þrýsting (létt og þétt snerting til skiptis). Munnurinn er líka mjög góð aðferð með maka, en hægt er að kyssa, sleikja eða sjúga.
Aðrir aukahlutir geta til dæmis verið fjaðrir, prik eða pískur, ísmoli, heitt vax og svo framvegis. Markmiðið er að einbeita sér hvernig snertingarnar láta þér líða. Það getur verið heitt og spennandi að örva önnur svæði en við erum vön,
Hér eru hlustun, samskipti og innsæi algjörlega við völd, gerið einfaldlega það sem ykkur þykir gott! Fullnæging þarf ekki að vera lokamarkmiðið (þó það sé ekki verra) heldur að upplifa nánd, hvort sem það er með ykkur sjálfum eða félaga.
Prófið og njótið!



