Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

P- bletts örvun

Hvað og hvar er P- bletturinn ?

  • P-bletturinn er mjög næmt svæði hjá aðilum sem fæðast með typpi. Enn „p“ stendur fyrir prostate sem er blöðruhálskirtill og er P-bletturinn orðið sem oft er notað fyrir blöðruhálskirtilinn.
  • Aðilar með píku eru með G-blett sem er partur af snípnum sem umlykur leggöngin og er með fullt af taugaendum og er því næmur fyrir örvun. Þeir sem fæðast með typpi eru með P-blett sem er ekki ólíkur G-blettinum þar sem hann er einnig með fullt af taugaendum sem hægt er að örva.  
  • Samkvæmt nýjustu rannsóknum eru um 50-75 taugaendar í P-blettnum.
  • P- bletturinn er 4 cm á breidd, 3 cm á hæð og 2 cm á þykkt.
  • P-bletturinn er æxlunarlíffæri hjá aðilum sem fæðast með typpi eða kirtill sem líkist valhnetu. Í honum finnast einnig sléttir vöðvar. 
  • Hann er staðsettur rétt fyrir neðan þvagblöðru, fyrir framan endaþarm og umlykur þvagrásina. Hann er 4-6 cm inn í endaþarmi. 
  • Til að finna rétta staðsetningu er best að koma fingri fyrir inn í endaþarm og nota “komdu” hreyfinguna í átt að maga. 


Hvert er hlutverk P-blettsins? 

  • Mikilvægasta hlutverk blöðruhálskirtilsins er að framleiða sáðvökva sem flytur sáðfrumur.
  • Einnig er stórt hlutverk hans að veita einstaklingi með typpi unað. 


Hvað gerist þegar P-þegar bletturinn er örvaður?

  • Þegar kirtillinn er örvaður, þrútnar hann og verður næmari. 
  • Þegar hann er örvaður getur þú fundið fyrir sömu tilfinningu og þú færð þegar þú þarft að losa þvag en það er tilfinningin sem þú ert að leita eftir, það þýðir að þú sért að gera þetta rétt. 
  • Talað er um að P-bletts fullnægingar séu ekki ólíkar getnaðarlims fullnægingum nema mun ákafari og líður í gegnum allan líkamann. 
  • Oft kemur þetta fram sem raðfullnæging, samfelldar fullnægingar sem valda skjálfta í öllum líkamanum. 
  • Það fá ekki allir sáðlát við P-bletts fullnægingu en sumir losa mjólkurvökva úr þvagrásinni. Mjólkurvökvi er í raun sami vökvi og sáðvökvi nema án sáðfruma.


Hvernig er best að undirbúa sig fyrir P-bletts örvun?

  • Númer 1, 2 og 3 er að nota gott sleipiefni. Uberlube er hágæða sleipiefni sem inniheldur aðeins náttúruleg efni og hefur engin neikvæð áhrif á sýrustig eða bakteríuflóruna. Það er sílikon blandað og veitir því silkimjúka áferð og leysist ekki upp.
  • Fyrir marga getur verið ákveðið öryggi í því að hreinsa endaþarminn fyrir P-bletts örvun eða einhvers konar endaþarms leiki. Það er þó ekki nauðsynlegt. Fyrir þau sem vilja hreinsa sig fyrir er gott að gera það með douche. Ergoflo Director hentar vel fyrir þau sem eru að nota douche í fyrsta skiptið þar sem það hefur sveigjanlegan enda. En við val á douche er oftast horft á stærðina á blöðrunni sem vatnið er í þar sem það fer eftir því hversu mikið magn af vatni maður vill nota. 
  • Hægt er að nota butt plug dialator til að undirbúa sig enn betur og hentar þá Discovery Butt Plug Dialator sérstaklega vel fyrir byrjendur. Honum er komið fyrir inn í endaþarminn og snúið svarta lyklinum hægt og rólega til þess að auka ummál skaftsins. Með því er bæði endaþarmsop og endaþarmurinn sjálfur betur undirbúinn. 
  • Mjög mikilvægt er að slaka á. Anal Relaxing er sleipiefni með deyfandi áhrifum og er hannað sérstaklega fyrir endaþarminn. Til þess að ná fram slökun getur verið gott að bera Anal Relaxing á endaþarmsop og nudda þar til þú finnur að þú sért tilbúin.


Hvernig er best að örva P-blettinn?

  • Hægt er að byrja á að örva P-blettinn óbeint með því að nudda svæðið sem er á milli pungsins og endaþarmsops, sem kallast spöngin, með fingrinum. 
  • Þegar komið er fingri inn í endaþarminn er sniðugt að byrja á því að “mjólka” kirtilinn. Þá er átt við að koma fingri fyrir inn í endaþarminn og nudda hann lauslega eða nota púlsandi hreyfingu með fingri. 
  • Eftir að hafa prófað sig áfram með allskonar hreyfingum með fingri getur verið skemmtilegt að bæta inn kynlífstækjum. En hjá okkur í Blush fæst fjölbreytt úrval af kynlífstækjum sem hægt er að nota fyrir P-bletts örvun. Einnig er hægt að koma við og fá allskonar ráð og leiðbeiningar. 
  • Cheeky er frábær butt plug fyrir byrjendur og lengra komna. Hann er í góðri stærð, sveigjanlegur, með góðan stoppara og með honum fylgir fjarstýring. Hægt er að nota hann með og án titrings. 
  • Til eru svo allskonar butt plug hjá okkur sem eru sérstaklega hannaðir fyrir P-bletts örvun. Thrusting Prostate Probe er ætlað til örvunar á P-blettinn. Hlutinn sem fer inn í endaþarm hreyfist fram og aftur og veitir þannig góða örvun á allra næmustu svæðin í endaþarminum. 
  • Fyrir örvun á P-blettinn, spöngina og endaþarmsop á sama tíma er Multi P-Joy tilvalinn í það. Fremst á tækinu er kúla sem færist upp og niður og örvar P-blettinn. Neðar eru kúlur sem snúast um tækið og örva endaþarmsopið og sá hluti sem leggst við spöngina hefur svo kröftugan titring.
  • Fyrir enn frekari örvun er Stimul8 Stroker Edition tilvalinn. Það er typpahringur með fjórfalda örvun. Hann fer utan um typpi og pung, leggst við spöngina og inn í endaþarm. Á endanum á plugginu er mótor með kúlu sem rúllar upp og niður til örvunar á P-blettinn. Sá partur sem leggst við spöngina er svo með kröftugan titring. 
  • Einnig eigum við til sett sem henta einstaklega vel fyrir þau sem vilja prófa sig áfram með ólíkum endaþarms vörum. Anal Beginner Kit er til dæmis tilvalið sett fyrir það.