Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Öryggið á oddinn!

Smokkar eru frábær og oft mikilvæg viðbót í kynlífinu. En hvað eru smokkar og hver er munurinn á þeim? Mörg vita lítið sem ekkert um smokka og hafa jafnvel ekki pælt í þeim síðan þau lærðu að setja smokk á banana í kynfræðslu. 


Blush hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á mikilvægi þess að öll séu upplýst um mikilvægi smokka og að öll hafi aðgengi að öruggu kynlífi. Hluti af því átaki er að bjóða uppá fría smokka, en þá má finna í smokkaskálinni í verslunum Blush á Dalvegi og á Glerártorgi eða hér á Blush.is.


En við skulum vinda okkur í þetta! Hér er allt sem þú þarft að vita um smokka og af hverju þeir eru svona mikilvægir.

Til hvers að nota smokk?


Byrjum á byrjuninni, smokkar eru upprunalega og algengast notaðir sem getnaðarvörn í kynlífi. Smokkar vernda þó einnig gegn kynsjúkdómum. Notkun smokka í kynlífi er ein besta leiðin til að verjast gegn t.d. HIV, Klamydíu og öðrum kynsjúkdómum. 


Hvenær á ég að nota smokk?


Ef þú ekki í föstu sambandi og ert reglulega að stunda kynlíf með nýjum aðilum mælum við alltaf með því að nota smokk. Smokka má nota í gagnkynhneigðu og samkynhneigðu kynlífi, endaþarms- og munnmökum. Sumir setja meira að segja smokka á kynlífstækin sín. Smokkar geta verið frábær og mikilvæg viðbót í kynlífið, sérstaklega til að koma í veg fyrir kynsjúkdóma eða þungun.


Eru til mismunandi stærðir á smokkum?


Já! Mörg smokkamerki selja mismuanndi stærðir af smokkum. Smokkastærð einstaklinga er helst byggð á þykkt og breidd, en ekki lengd, eins og margir kannski halda. Mister Size smokkarnir koma til dæmis í allskonar stærðum og hægt er að skoða stærðartöflu hjá Mister Size hér.

Er bara til ein týpa af smokkum?


Það eru til ótal týpur af smokkum, smokkar fyrir typpi eru þeir sem við þekkjum flest og munum helst fara yfir hér. Svo eru líka til svokallaðir píkusmokkar eða “female/ internal condom” á ensku, og síðan munnmakaverjur eða “dental dams” á ensku. 


Smokkar fyrir typpi, séu þeir notaðir rétt, veita um 98% öryggi gegn þungun. Líkur á þungun aukast ef smokkurinn er ekki rétt notaður. Algengar ástæður fyrir minnkuðu öryggi er t.d. að smokkur er ekki notaður í hvert skipti eða ef smokkurinn rifnar eða rennur að hluta til af í kynlífi. 

Ef þú ætlar að nota sleipiefni með smokknum er mikilvægt að nota ekki sleipiefni sem inniheldur olíu, heldur aðeins silíkon- eða vatansleysanlegt sleipiefni. Olíusleipiefni getur haft áhrif á smokkinn og dregið úr öryggi hans.


Píkusmokkar eða “female or internal condom” eru smokkar sem eru settir inn í leggöng. Þeir eru heldur stærri en smokkar fyrir typpi en þeir veita líka mjög góða vörn gegn þungun og kynsjúkdómum, eða um 95% vörn, séu þeir notaðir rétt.


Munnmakavörn eða “dental dam” eru einskonar flekar sem settir eru yfir píku eða endaþarm fyrir munnmök og vernda því gegn kynsjúkdómum.


Úr hverju eru smokkar?


Smokkar eru aðallega úr latex, en sumir smokkar eru úr polyisopren og því latex fríir. Latex fríir smokkar eru sniðugir fyrir þá sem eru til dæmis með latex ofnæmi. 

Allir smokkarnir frá SKYN eru latex fríir.

Eru bara til “venjulegir” smokkar?


Smokka úrvalið er mjög fjölbreytt og það eru til allskonar smokkar með allskonar eiginleikum. Til dæmis er hægt að fá extra þunna smokka, smokka með munstri fyrir aukna örvun, extra mjúka eða extra örugga smokka. Það er algjörlega persónubundið hvað hverjum og einum líkar við. 

GERA og EKKI GERA


Til þess að taka saman, hérna er listi yfir það sem er gott að hafa í huga og GERA eða EKKI GERA (DO’s and DONT’S) þegar kemur að notkun á smokkum:


GERA

  • Notaðu smokk í hvert einasta skipti sem þú stundar kynlíf með nýjum aðila.


  • Notaðu smokk til að koma í veg fyrir þungun eða kynsjúkdóma.


  • Passaðu að nota smokkinn alltaf rétt.


  • Fylgdu leiðbeiningum á umbúðunum.


  • Kíktu á "Best Fyrir" dagsetninguna- öryggi smokksins minnkar ef smokkurinn er útrunninn.


  • Tékkaðu hvort þú sjáir European CE merkingu eða UKCA merkingu á pakkanum. Merkingarnar þýða að smokkarnir hafa verið prófaðir og vottaðir öruggir. 


  • Farðu reglulega í kynsjúkdómatékk- smokkar eru ekki fullkomin vörn. Það er ótrúlega auðvelt að panta tíma í tékk á húð og kyn eða hjá heilsugæslu. 



EKKI GERA


  • Ekki nota meira en einn smokk í einu - þetta getur orðið til þess að smokkarnir geta rifnað.


  • Ekki nota sleipiefni með olíu með latex smokkum - aðeins vatns- eða silíkonsleipiefni.


  • Ekki nota smokkinn ef að pakkning er skemmd eða rifinn á einhvern hátt - smokkurinn gæti hafa rifnað eða skemmst við skemmdina á pakkningunni.



Þá ættir þú að vera orðinn smokkasérfræðingur!

Skemmtu þér vel með öryggið á oddinum<3