Múffu Mars
Múffur verða sífellt vinsælli og í dag finnur þú breitt úrval af ólíkum múffum hjá okkur í Blush. Í tilefni þess að við höldum upp á Múffu Mars þennan mánuðinn þá ætlum við í þessari grein að fara stuttlega yfir múffur, ólíka eiginleika þeirra, umhirðu, sleipiefni, aukahluti og margt fleira.
Við höfum oft fengið spurninguna af hverju að nota múffu? Það sem múffur hafa fram yfir sjálfa höndina er að þær geta gefið dýpri og öðruvísi örvun. Múffur geta nefnilega verið frábær viðbót í sjálfsfróunina, forleikinn eða munnmökin en þær koma í öllum stærðum og gerðum, með eða án mótors. Margar hafa þann eiginleika að mynda sog sem líkir eftir munnmökum á meðan aðrar geta líkt eftir kynlífi í píku eða endaþarmi. Það er því ljóst að þú getur fundið múffu eftir því hvernig örvun þú ert að leita að.
Það er mjög persónubundið hvort fólk vill múffu með mótor eða ekki. Múffur með mótor hafa þann eiginleika að geta séð um allar hreyfingar fyrir þig, farið upp og niður í taktföstum hreyfingum og séð um alla örvun.
Einnig er persónubundið hvort fólk vill múffu sem líkist kynfærum í útliti eða ekki. Ef þú vilt slíka múffu þá hafa múffurnar frá Fleshlight verið ansi vinsælar en við eigum ótrúlega stórt úrval af ólíkum tegundum frá Fleshlight. Einnig er til úrval frá Friends With Benefits en þær koma í allskonar stærðum og gerðum.
Í forleikinn eða munnmökin mælum við með stroker múffu. Það er múffa sem er opin í báða enda sem gerir hana skemmtilega viðbót í munnmökin en hægt er að gæla við typpið á meðan henni er strokið upp og niður.
Innra byrði múffunnar getur haft ólíka eiginleika og mis mikinn þrýsting. Mynstrið innan í múffunni getur t.d. verið mismunandi stíft, rifflað eða með orb kúlum sem allt gefur ólíka örvun. Sumar múffur eru með svokallað “sleeve” þar sem möguleiki er á að taka innvolsið úr hólknum. Við notkun og með tímanum missir involsið sem fylgir tækinu upprunalega eiginleika sína svo þú færð ekki lengur bestu mögulegu upplifun sem tækið hefur upp á að bjóða. Gott er að skipta um innvols ef þú tekur eftir sliti í efninu, litabreytingu eða minni örvun en áður.
Nauðsynlegt er að nota gott sleipiefni samhliða múffu notkun. Við mælum helst með þykkari sleipiefnum eins og TYO eða Hole Lotion en þau eru sérstaklega hönnuð fyrir slík tæki en þykk formúlan gerir það að verkum að það lekur síður úr múffunni. TYO er þykkt sleipiefni sem hefur þann eiginleika að viðhalda raka lengi en það umlykur typpið með mjúkri áferð sem gerir upplifunina margfalt betri. Hole Lotion kemur í nokkrum mismunandi útgáfum svo þú ættir að finna sleipiefni sem uppfylla þínar kröfur.
Eins og öll önnur kynlífstæki hafa múffurnar takmarkaðan endingartíma en það fer þó einnig eftir notkun og umhirðu. Við mælum alltaf með að huga vel að þrifum þar sem rétt umhirða lengir endingartíma múffunnar. Hægt er að nota milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur til að þrífa kynlífstæki þar sem það getur skemmt þau. Hreinsifroðan frá SystemJO er tilvalin í múffuþrif en hún kemur með þægilegri pumpu og inniheldur engin efni sem hafa þurrkandi eða skemmandi áhrif á kynlífstæki.
Til að auka enn fremur endingu múffunnar mælum við með að nota múffu púður. Púðrið þurrkar upp raka sem myndast eftir þrif og kemur í veg fyrir að rakinn valdi skemmdum í lokuðum múffum ásamt því að koma í veg fyrir að múffur, opnar eða lokaðar, verði klístraðar með tímanum. Púðrinu er stráð létt yfir og inn í múffuna eftir að hún hefur verið þrifin.
Hægt er að fá aukahluti fyrir múffurnar til að gera upplifunina öðruvísi og unaðslegri. Múffu hitari er t.d. tæki sem hitar rúnkmúffur svo að upplifunin verði notaleg strax í upphafi notkunar. Múffan hitnar upp í kjörið hitastig sem gerir upplifunina enn magnaðri og tilfinninguna raunverulegri. Við erum t.d. með hitara frá KYO sem er 15 cm langur og því nógu langur til að hita flest allar múffur.
Einnig er hægt að fá veggfestingar með sogskál og þá erum við með nokkrar tegundir af þurrkgrindum sem heldur múffunni í uppréttri stöðu á meðan það þornar. Þannig nær bleyta innan úr sleevinu að renna betur í gegn og minni líkur á að sleevið beyglist.






