Hvers vegna stáltæki?
Hvers vegna stáltæki?
Það er spurning sem eflaust margir velta fyrir sér þegar stáltæki bera fyrir augu. Þau geta verið falleg í glerkúpul í eldhúsinu eða jafnvel sem stofustáss, en þau eru meira en bara falleg. Þau geta nefnilega veitt þér alveg unaðslega örvun og skemmtilega upplifun. Hiti, kuldi, þyngd og þrýstingur, getum við beðið um eitthvað meira ?
Þrátt fyrir að enginn titringur sé í stáltækjunum, þá gefa þau ekkert eftir þegar kemur að örvun. Næm svæði, eins og G bletturinn, A bletturinn og P bletturinn elska þrýsting. Stáltæki ná að veita mikinn þrýsting án þess þó að það sé heljarinnar vinna. Þyngdin og stífleikinn spilar þar lykil hlutverk. Tækið gefur ekkert eftir þegar því er beitt á næm svæði á sama tíma og þunginn þrýstir því sjálfkrafa upp við leggangavegginn/endaþarminn.
Með stáltækjunum má nota hvaða sleipiefni sem er, meira að segja Uberlube sem er okkar allra vinsælasta sleipiefni! En sleipiefni gerir alla snertingu mýkri og getur aukið unaðinn svo um munar. Stálið leiðir einnig hita og kulda rosalega vel. Það getur því verið mjög skemmtilegt að fara í hita og kulda leiki með stáltækin. Passið þó alltaf að athuga hitastig tækisins áður en það er sett á kynfærin. Góð regla er að leggja tækið aðeins við úlnliðinn til þess að athuga hitann.
Stáltækin eru annars einstaklega einföld í notkun. Með nóg af sleipiefni í annarri og tækið í hinni er þér óhætt að hefjast handa.
P.s þau eiga það til að verða sleip svo við mælum með að hafa þvottapoka við höndina.
… Þú gætir prófað að setja tækið í skál fulla af klökum og vatni eða jafnvel skella því í frystirinn. Finndu hvernig líkaminn bregst við kuldanum og taktu eftir í kjölfarið hvernig tækið hitnar svo með tímanum í takt við líkamshitann.
… Þú gætir prófað að hita tækið í vatni. Með því að leika þér með hitann þá eykst blóðflæðið á öll mikilvægustu svæðin. Þú getur því orðið enn næmari fyrir öllum snertingum og unaðurinn getur orðið enn betri.
… Þú gætir prófað að kæla eða hita tækið og gefið makanum nudd. Veljið ykkur góða nuddolíu, nuddkerti eða dragið fram uberlube og rennið tækinu eftir líkamanum. Þú getur notað misjafnann þrýsting eða strokur og leyft hugmyndarfluginu að reika.
… Ef einstaklingur glímir við of spenntan grindarbotn geta stáltækin hjálpað til við að ná slökun á grindarbotnsvöðvum. Þá mælum við með því að hita tækið, nota nóg af góðu sleipiefni og veita létt nudd innvortis. Það þarf einungis að setja tækið rétt inn fyrir legganga opið. Notaðu léttan þrýsting till þess að byrja með, á þau svæði sem þú finnur fyrir spennu. Nuddið hjálpar til við að slaka á vöðvum sem eru of spenntir.
En þetta eru aðeins nokkur dæmi og um að gera að prófa sig áfram, hvort sem þú vilt örvun inn í leggöng, endaþarm eða á snípinn. Já, þú last rétt. Snípinn! Tilfinninginn að finna kalt, mjúkt stálið við snípinn er betri en þig gæti grunað. Léttar strokur eða mildur þrýstingur geta gert mikið.
Svo er það einn helsti kosturinn, stáltækið endist þér að eilífu. Það er ekki að fara að bræða úr sér í hita leiksins og er aldrei batteríslaust á augnablikinu sem þú þarft mest á því að halda. Þú þarft heldur ekki að kaupa þér nýtt eftir 10 ár vegna þess að líf tíminn er búinn, ekki nema þig langi að bæta nýrri týpur í safnið!
En stáltæki hafa fjölbreytta notkunar möguleika og eru til í ýmsum gerðum. Hvert um sig með ólíkar áherslur og útlit. Við hjá Blush erum með fjölbreytt úrval af stáltækjum en hér má finna dæmi um nokkur og helstu eiginleika þeirra:
Hoop hefur frábæra lögun fyrir G bletts eða P bletts örvun. Á öðrum endanum er lítil, byrjenda væn kúla sem er auðveld í innsetningu. Á hinum endanum er stærri dropalaga kúla og rifflur þar fyrir neðan sem gera örvunina enn meiri. Hoop er frábær í G bletts örvun því að sveigjan á honum nær vel að örva framvegg leggangana. Þrýstingurinn og þyngdin mun veita djúpa örvun og stálið meðal fyllingu. Þú getur einnig prófað að bæta við örvun á snípinn á sama tíma fyrr enn magnaðri upplifun.
Arch er frábær fyrir örvun í leggöngu, hvort sem er á A blettinn eða G blettinn. Þú getur valið stærri endann fyrir góða fyllingu með riffluðu yfirborði eða minni endann fyrir nákvæmari örvun og meðal fyllingu. Með minni endanum nærðu nákvæmara nuddi eða þrýsting á minna svæði og því getur Arch verið frábær fyrir einstaklinga með of spenntan grindarbotn. Arch er lítið sveigður sem gerir það að verkum að þú nærð með hann lengra inn í leggönign sem er fullkomið til þess að örva A blettinn. Tækið er þungt og því tilvalið til að losa spennu í vöðvum líkamans. Arch hentar ekki í endaþarm.
Bow hentar vel fyrir G bletts og P bletts örvun. Hann má einnig að nota til þess að þjálfa grindarbotninn, með auknum unaði. Annar endinn er kúlulaga og hefur rifflur niður með tækinu sem veita þér einnig aukna örvun. Sá endi hentar einstaklega vel til þess að þjálfa grindarbotninn, spenna og slaka til skiptis. Á hinum endanum er dropa laga kúla sem veitir nákvæmari örvun.

