Dalvegi 32: Opnar 12:00 á morgun · Glerártorgi Akureyri: Opnar 12:00 á morgun

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Hlutverkaleikir á Hrekkjavöku

Hrekkjavakan er handan við hornið en hún á sér sögu allt aftur til 18. aldar. Hrekkjavakan á sér alls kyns hefðir eins og að skera út grasker, klæða sig upp í búninga, skreyta hús og hverfi, kveikja á kertum, horfa á hryllingsmyndir og margt fleira. Við hjá Blush viljum meina að hrekkjavakan sé ekki aðeins fyrir krakka að biðja um grikk eða gott heldur einnig fyrir okkur fullorðna fólkið til að sleppa tökunum og leyfa draumórum og fantasíum að taka völdin. Hvort sem þú vilt kanna þínar villtustu fantasíur, prófa nýja hluti eða krydda upp á kynlífið þá er hrekkjavakan tilvalin til að eiga spennandi og eftirminnilegt kvöld með maka eða leikfélaga. Þetta getur jafnvel orðið ansi skemmtileg hefð á hrekkjavökunni.


Fyrir mörg sambönd er mikilvægt að hugsa út fyrir ramman og breyta til en það getur aukið spennu að fara út af vananum og er þá hlutverkaleikur t.d. unaðsleg hugmynd. Hlutverkaleikir geta verið alls konar! Fyrsta skrefið er að velja sér atburðarás eða fantasíu. Hægt er að fara ótal leiðir í hlutverkaleiknum þar sem möguleikarnir eru endalausir. Góð hugmynd er að fara yfir áhugamál, langanir og mörk og finna út hvað hentar ykkur best.


Þegar búið er að velja atburðarás er næsta skref að velja búning. Stundum getur verið nóg að setja á sig varalit og draga fram fylgihluti en það getur skipt sköpum að vera í búning þegar kemur að upplifun og að setja sig í karakter. Við eigum úrval af búningum sem henta vel í hlutverkaleikinn, hvort sem þú vilt vera kynþokkafullur hjúkrunarfræðingur, dómínerandi lögregla, óþekkur fangi o.s.frv. Það er hægt að fara ótal ólíkar leiðir í hlutverkaleikjum. Smáatriði eins og hár, förðun og fylgihlutir geta einnig skipt máli þegar kemur að því að mynda unaðslega stemningu.


Til að taka hlutverkaleikinn enn lengra er hægt að setja upp ákveðna baksögu. Hverjar eru persónurnar, hvernig kynntust þau og hvernig er sambandið þeirra? Vel útfærð baksaga getur hjálpað þér að komast í karakter og að halda hlutverkaleiknum spennandi og trúverðugum. Einnig er hægt að breyta svefnherberginu eða öðrum hluta heimilisins í umgjörð sem passar við þá fantasíu sem varð fyrir valinu, t.d. með lýsingu, skreytingum o.fl. Leyfðu þér að sleppa tökunum þar sem ímyndunaraflið fær að njóta sín í ógleymanlegri kvöldstund.


Ágætt er að hafa í huga að vera búin að ræða skýr mörk og langanir við maka/leikfélaga áður en hafist er handa. Gott er að velja sér öryggisorð ef ske kynni að viðkomandi upplifi sig í óþægilegum aðstæðum. Samþykki og gagnkvæm virðing ætti alltaf að vera í forgrunni þegar kemur að upplifun þinni á hlutverkaleiknum.


Við erum með fjölbreytt úrval af búningum en þú getur komið við hjá okkur til þess að máta og finna búning sem hentar fyrir kvöldið. Komdu þér í karakter, slepptu af þér tökunum og upplifðu ógleymanlega kvöldstund!