Geta Kynlífsleikföng veitt fjölbreyttar fullnægingar?
Samkvæmt rannsókn frá árinu 2010 sem kom út í tímaritinu Journal of Sexual Medicine, þá kom fram að 94% einstaklinga með typpi og 85% einstaklinga með píku stunda sjálfsfróun.
Fyrst við erum nú þegar svona mörg sem gefum okkur sjálfsást, afhverju ekki að leita leiða til að gera gott ennþá betra? Kynlífsleikföng auðvelda þér að fá fullnægingu og gefa þér einnig mismunandi fullnægingar. Í gegnum snípinn, raðfullnægingar, G-bletts eða P-bletts fullnægingar – sem þú nærð mögulega ekki fram með hendinni einni. Kynlífstækin endast svo oftast mun lengur en fingurnir og hendin, sem lengir unaðs tímann þinn og hann verður án þess að fá krampa eða missa máttinn í hendinni.
Fyrir einstaklinga með píkur sem leitast eftir blönduðum fullnægingum, sem þú finnur að utan og innan á sama tíma. Fyrir þá einstaklinga væri sniðugt að prófa kanínutitrara. Fyrir einstaklinga sem leita eftir fullnægingu með tæki sem líkir eftir guðdómlegum munnmökum þá er Womanizer lykillinn. (ekki láta nafnið blekkja ykkur, í Womanizer prufuhópnum fengu 98% einstaklingar fullnægingu á innan við 5 mínútum og 73% fengu raðfullnægingu!).
Fyrir einstaklinga með typpi sem leitast eftir endaþarmsörvun, eru vörur sem örva blöðruhálskirtilinn fullkomnar. Hægt er að fá p-bletts titrara i öllum stærðum og gerðum. Fyrir þá sem vilja auka fjölbreytileikann í sjálfsfróun eru til margskonar múffur sem veita mismikla örvun. Hægt er að velja múffur sem líkja eftir endaþarmi eða leggöngum, einnig er hægt að velja múffur sem líkja ekki eftir píkum í útliti.