Get ég hjálpað honum?
Hæ Gerður,
Ég búin að vera með kærastanum mínum í 4 ár og elska hann endalaust, hann er hreint út sagt frábær! Eina sem mér finnst frekar leiðinlegt og hefur áhrif á mig er hvað hann endist stutt þegar við stundum kynlíf. Hann segist bara vera of æstur (graður) þegar við stundum kynlíf, sem ég skil alveg, en hann reynir ekki að leyfa mér líka að fá fullnægingu. Hvað get ég gert til að hjálpa honum að endast lengur? Og hvernig kem ég því frá mér að mig langi jafn mikið og hann að fá fullnægingu og að hann gæti aðstoðað mig meira svo ég nái þangað í staðinn fyrir að velta sér á hliðina og sofna? Takk kærlega fyrir að vera alltaf með góð ráð, María Okey María, þetta er oftar en ekki viðkvæmt umræðuefni og í raun ekki óalgengt. Hvað karlmenn endast lengi breytist oft með tímanum þannig ég hef ekki of miklar áhyggjur af því, sem dæmi þá eru nokkrar leiðir sem þið getið skoðað saman til þess að hann nái að haldast lengur. Það sem ég hef meiri áhyggjur af er að hann virðist ekki hafa áhuga á að fullnægja þér á undan sjálfum sér. Hvort sem að ástæðan fyrir því sé að hann geri sér ekki grein fyrir hversu mikilvæg þín fullnæging er eða hvort að hann sé bara latur, þá gengur þetta klárlega ekki svona. Frábært kynlíf snýst um að báðir aðilar endi fullnægðir þannig þinn maður þarf að átta sig á þínum kynferðislegum þörfum og girða sig í brók. Því miður þá geta karlmenn ekki lesið hugsanir, alveg sama hversu mikið við óskum þess og því eina leiðin til að hjálpa kærastanum þínum að breyta þessu er að eiga fyrir löngu tímabærar samræður um hvað ykkur finnst gera kynlíf gott og hvað má gera betur. Við konur eigum erfiðara með að fá fullnægingu og þurfum mun meiri örvun en karlmenn til þess að hita upp og ná í mark. En áður en þú byrjar langar samræður um ekki-svo-langt kynlíf hjá ykkur þá þarftu að hafa í huga að þetta gæti verið mjög viðkvæmt mál fyrir honum. Hvort sem að ótímabært sáðlát sé hans vandi eða þá hann skynji ekki hvort þú sért nálægt fullnægingu þá er ég viss um að þetta sé viðkvæmt mál fyrir kærastanum þínum eins og staðan er núna. Til þess að tryggja það að hann taki vel í þessar samræður þá þarftu að hugsa þig vel um hvernig þú ætlar að nálgast hann með þessa umræðu. Og mundu að tímasetningin skiptir miklu máli. Best er að umræður um kynlíf fari ekki fram í svefnherberinu; ekki myndir þú vilja fá gagnrýni á þína frammistöðu í kynlífinu á sama stað og þú ætlar að njóta þess? Í staðin er best að finna hlutlausan stað eins og eldhúsið eða í bílnum á rúntinum. Og alveg sama hvað, EKKI byrja þessa umræðu rétt fyrir eða eftir kynlíf hjá ykkur; treystu mér það boðar ekki gott! Þegar rétti tíminn kemur að spjalla saman þá skaltu passa að tala frekar hvetjandi heldur en í ásökunartón, leyfðu honum að heyra og finna að þú elskir hversu æstur hann er í þig en á sama tíma að þú þráir líka þína fullnægingu með honum sem er ekki að takast. Til að fullnægja hvort öðru þarf að spila saman til að báðir aðilar nái endamarkinu. Sem betur fer eru til leiðir sem þið getið farið til þess að bæði þú fáir fullnægingu og hann öðlist meiri þol. Þessar leiðir hefjast allar í forleiknum! Gerið forleikinn að ykkar forleik: Ef ykkur langar að tryggja góða fullnægingu eða tvær þá er forleikurinn algjörlega nauðsynlegur. Ef þið farið beint í samfarir án þess að hita upp með forleik þá eruð þið ekki að gefa líkamanum tækifæri á að verða örvaður og algjörleg upptendraður. Þetta væri eins og að byrja að horfa á miðja bíómynd; söguþráðurinn væri auðvitað í engu samhengi! Lausnin á þessu er; bætið ykkur í forleiknum, tvöfaldið þann tíma sem þið hafið verið að taka í forleik eða jafnvel þrefaldið! Hvort sem það er að klæmast með orðum, snertingar, kossar eða munnmök, hvetjið hvort annað til þess að ná góðum 15-20 mínútum í forleik. Og ef hann er ekki öruggur með hvað hann á að gera þá er það þitt að segja frá hvað þér finnst gott að láta gera við þig. Bjarta hliðin á því, ef hann er óöruggur, er sú að á meðan þið einbeitið ykkur að því hvað þér finnst vera gott þá dregur það hugann hans frá því að klára sjálfur of snemma og gefur ykkur smá auka tíma. Veljið ykkur stellingu sem hentar: Ef að hann fær að velja stellingu þá mun hann líklegast velja þá stellingu sem gefur honum mestu örvunina og sem kemur honum á leiðarenda allt of fljótt. Doggie-style stellingin er oft í uppáhaldi hjá karlmönnum en hún er til dæmis ekki æskileg fyrir þá sem eru of fljótir og vilja lengja tímann. Sú stelling gerir þeim mögulegt að hömpast á sínum hraða alla leið á endastöð en á sama tíma gerir ekkert fyrir snípinn eða G-blettinn þinn! Í staðin skuluð þið finna stellingu sem örvar þig best og leyfir þér að stjórna hraðanum og hreyfingum. Konan ofan á er til dæmis tilvalin – þú stjórnar alveg ferðinni og þannig finnur þú taktinn sem gerir mest fyrir þig á sama tíma og þú nærð að örva snípinn. Örvaðu þína staði: Talandi um snípinn – hvernig getur þessi litli blettur verið svona mikilvægur en samt gleymist hann svo oft? Í snípnum eru um 8.000 taugaendar samankomnir í þessari litlu perlu og því ekki að furða að flestar konur þurfa örvun á snípinn til þess að fá fullnægingu. En um 75% kvenna fá ekki fullnægingu í gegnum leggöngin og þurfa örvun á snípinn til þess að ná í mark. Því miður eru ekki það margar stellingar sem ná að örva snípinn í samförum og því er það á þinni ábyrgð að hafa hann með í leiknum.Hér er því kjörið tækifæri að nefna kynlífsleikföng til sögunnar til að hafa með í leiknum. Ég hef sagt það oft en ef að konur ættu að eiga eitthvað kynlífstæki þá er það egg! Uppáhalds eggið mitt og vinsælasta eggið hjá Blush er eggið Echo frá Svakom, það fellur vel í lófa, er kraftmikið en hljóðlátt og er ekki fyrir þér á meðan þið stundið kynlíf. Svo líka hægt að skoða paratæki sem þið getið notað saman og þú ein. Tyler er typpahringur sem er með áföstum titrara og væri mögulega fullkomið tæki fyrir ykkur. Typpahringir hjálpa karlmönnum að halda stinningu lengur og titrarinn mun sjá um að örva þig á meðan samförum stendum og auka þannig líkurnar á að þú náir að klára með kærastanum. Það sem þið þurfið að gera er að finna hvaða tæki myndi henta ykkur án þess að vera fyrir í samförum og svo mögulega til að nota í forleiknum. Með aðstoð slíks tækis þá ertu að tryggja að hver mínúta telur á meðan að þið stundið kynlíf og eykur líkurnar til muna að þið náið að klára saman. Hægið á leiknum: Í hita leiksins þá gæti það verið eðli kærasta þíns að byrja að þrykkja eins og hann væri að merja kjöt með hamri. Lítið veit hann að þú ert nú þegar meir og tilbúin og þarfnast frekari fyllingar, þétt og ákveðið þangað til þið bæði endið fullnægð og glöð. Við hjá Blush höfum verið að mæla með vöru sem heitir ProLonger en það er gel sem hann setur á liminn en þetta hjálpar honum að hægja á án þess að missa stinningu, gelið dregur úr tilfinningunni hans og hann verður því lengur að fá fullnægingu sem er lykilatriðið hjá ykkur. Fyrir mörgum pörum þá er rólegt kynlíf með mikilli nautn lykillinn að lengra kynlífi og einnig eykur nándina á milli hvors annars. Hvettu kærastann þinn til að hægja á sínum hreyfingum og einbeita sér frekar að þrýsta sér með mjöðmunum rólega í staðinn fyrir að þrykkja á miklum hraða. Ef hann er ennþá of æstur þá er ekkert að því að taka smá hlé. Hann getur strokið þér á meðan og veit þér t.d munnmök áður en þið haldið svo áfram saman. Mundu bara að þið eruð í þessu saman María. Með þolinmæði að vopni, góðum samskiptum og heilan helling af forleik þá eruð þú og kærastinn þinn algjörlega að fara að ná tökum á þessu saman. Gerður