Er þetta eðlilegt?
"Hæhæ, mig langaði að spyrja um ráð með smá sem ég hef verið mjög feimin og skammast mín svolítið fyrir. Mig vantar eitthvað sem mun hjálpa mér að fá fullnægingu í gegnum leggöngin. Hef aldrei náð því áður og finnst það svo vandræðalegt, fæ venjulega bara fullnægingu í gegnum snípinn, getið þið aðstoðað mig?"
Hæ elsku þú! Byrjum fyrst á því að segja, þú ert ekkert skrítin og hefur EKKERT til að skammast þín fyrir! Meirihluti píkueigenda fær sjaldan eða aldrei fullnægingu einungis við örvun í leggöngunum og meirihluti þarf líka örvun á snípinn til að geta fengið fullnægingu! Svo það er ekkert óeðliegt við þínar aðstæður❤️
Það eru þó til aðferðir sem geta aukið örvun í leggöngunum en eins og fram kom þá er örvun á snípnum þó í flestum tilfellum nauðsynleg samhliða.
G-bletturinn
G-blettinn er að finna í leggöngunum á píkueigendum. Hann er ekki á nákvæmlega sama stað hjá okkur öllum en hann má finna um það bil 5-7 cm inn í leggöngum á framvegg legganganna, miðja vegu milli lífbeins og legháls, sem liggur meðfram þvagrásinni. Við örvun eykst blóðflæði til kynfæra og þá þrútnar svæðið þannig að auðveldara er að finna blettinn. Til þess að finna hann getur virkað vel að setja fingur inn í leggöngin og fingurgómur látinn vísa fram. Ef vilji er til að örva blettinn er fingurinn svo hreyfður eins og verið sé að lokka eitthvað til sín.
Píkur eru misnæmar fyrir örvun á G-blettinum, sumar eru hrifnari á léttum þrýsting aðrar meira fyrir hreyfingar eins og létt nudd. G-bletturinn er tengdur þvagrásinni og getur örvun hans líkt eftir að þurfa að pissa, við mælum því með að pissa áður til að geta slept sér í örvuninni með engar áhyggjur um að missa þvag.
Til eru allskyns tæki sem örva G-blettinn.
G-bletts titarar eru oftast langir og sveigðir sem ná þá að örva blettinn sérstaklega vel.
Okkar vinsælasti G-bletts titrari er Desire frá Reset. Desire er miklu uppáhaldi hjá mjög mörgum vegna þess hve fjölbreytta örvun hann veitir. Desire er frekar mjór og góður að halda á og hentar hann þá einstaklega vel til að nota með í kynlífi, hann getur örvað g-blettinn, geirvörtur, snípinn spöngina og bara allt sem þér dettur í hug. Við elskum Desire!
Hér eru svo nokkrar fleiri vörur sem henta mjög vel til örvunar inní leggöngum og þá sérstakelga á g-blettinn.
Við erum einnig með gel sem heitir Intimate Earth Discover G-spot Serum. Gelið er örvandi gel sem hentar þeim sem vilja auka næmni í leggöngum. Það hefur mild og kælandi áhrif sem eykur örvun og gerir svæðið næmara fyrir snertingu í leggöngum. Gelið er hægt að nota til að auka örvun í forleik, sjálfsfróun eða kynlífi. Discover inniheldur blöndu af náttúrulegri, japanskri piparmyntu olíu og L-Arginine sem er náttúruleg blanda sem eykur blóðflæði á næm svæði í leggöngum og gerir fullnæginguna enn unaðslegri.
Stimulating Orgasm olían frá High on Love er líka ótrúlega vinsæl hjá okkur, hún er reyndar ekki ætluð til örvunar í leggöngunum heldur er olían örvandi á snípinn. Olían eykur blóðflæði í snípinn og gerir hann næmari fyrir snertingu auk þess að ýta undir náttúrulega rakamyndun í leggöngum. Hún hentar því einstaklega vel fyrir þau sem upplifa þurrk eða óþægindi tengd því. Einnig getur olían ýtt undir og aukið kynlöngun.
Gangi þér vel elsku þú! ❤️