Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Ég næ ekki að fá fullnægingu!

Hæ Gerður,

Ég hef verið með kærastanum mínum núna í um 8 mánuði og ég hef aldrei fengið ALVÖRU fullnægingu þegar við stundum kynlíf. Eins og það sé ekki nógu slæmt þá hef ég einnig verið að feika fullnægingarnar! Ég veit – ég er hræðileg! Kærastinn minn hefur enga hugmynd um það. Ég verð svo upptekin í hausnum að reyna að fá fullnægingu að ég feika það frekar til að gleðja hann í staðin fyrir að fá ekki fullnægingu; en núna er ég orðin svo þreytt á þessu leikriti! Ég þrái alvöru fullnægingu og ég veit að ég verð að gera hreint fyrir mínum dyrum. Ég hef bara ekki hugmynd hvernig ég get játað þetta án þess að særa hann. Hvað get ég gert?

 

Takk,

Anna

 

 

Kæra Anna,

 

Mér heyrist þú vera búin að koma þér í smá vanda. Á aðra höndina þá hefuru rétt fyrir þér, það er ekki sanngjarnt að þú fáir ekki þínar fullnægingar. En á hina þá er ekki sanngjarnt fyrir hann að þú feikir þær heldur. Ég skil þörfina þína að vilja gleðja makann þinn sem þú gerir með því að feika fullnægingu en til lengdar þá ertu að mynda falskt sjálfstraust hjá honum sem gerir honum ekkert gott.

 

En það er góð hlið á þessu vandamáli; honum langar til þess að veita þér guðdómlegar fullnægingar! Og þig langar á sama tíma í þessar fullnægingar. Þannig þið eruð í raun með sama markmið. Með smá örlitlum breytingum getur þú hafið nýjan kafla hjá ykkur og það með látum!

 

Sannleikurinn er sá að þú ert ekki ein um það að gera þér upp fullnægingar. Flestar konur hafa upplifað stað og stund sem þær hafa ákveðið að feika það frekar en að meika það í kynlífinu. Í flestum tilfellum þá er vandamálið það að samfarir einar og sér duga ekki flestum konum til að fá fullnægingu. Í raun þurfa um 70% kvenna meiri örvun á snípinn sjálfann til að kalla fram flugeldana. En á meðan svo margar konur segja ekki frá hvað þær þurfa eða vilja og gera sér frekar upp fullnæginguna þá halda karlmenn áfram að trúa því að þrykkja eins og hamar við spítu sé rétta og eina leiðin til að fullnægja konum.

 

Þetta er í raun vítahringur, en þegar fleiri konur eins og þú ákveða að hætta að feika það, þá hjálpar það til við að snúa þessum vítahring við. Kynlífið þitt mun verða unaður og í leiðinni ertu að gera heiminn að betri stað.

 

Mér heyrist þú vera búin að gera upp hug þinn að segja kærastanum frá fullnæginga-lausu kynlífinu ykkar en ég mæli ekki með því að þú skellir því fram og segir „Ég hef feikað allar fullnægingar“. Þú ert búin að hafa mjög mikið fyrir því að vanda þig að særa hann ekki og því gæti slík aðferð sært stoltið hans gríðarlega.

 

Í þessu tilfelli er í lagi að tala aðeins undir rós og þú þarft í raun ekki að koma því frá þér eins og þú hafir aldrei verið fullnægð með honum. Í staðin skaltu horfa til framtíðar og einbeita þér að því að benda honum á að þó að það sem hann sé að gera sé gott þá eru til leiðir sem gerir kynlífið ykkar ennþá betra og þig langi að prufa með honum. Þú gætir notað tækifærið og stungið upp á að prufa eitthvað nýtt sem dæmi og setja ykkur kynlífsmarkmið.

 

Samtöl sem slík, á milli einstaklinga í sambandi á að snúast um hvernig megi gera gott kynlíf betra en ekki um það hvað sé að eða hvað annar aðilinn sé að gera vitlaust. Neikvæð umræða dregur úr vilja karlmanna, þannig veldu stað og stund vandlega. Sem dæmi þá er gott fyrir ykkur að sitja hlið-við-hlið í staðinn fyrir á móti hvort öðru, það hjálpar karlmönnum oft að slaka betur á þegar þið talið saman. Að sitja þétt upp við hann uppí sófa eða taka góðann bíltúr saman eru líka góðar hugmyndir. Þú skalt einnig passa að hafa nógan tíma, að vera ekki í tímaþröng. Þú getur byrjað á að nefna að fyrir þig að fá fullnæginu með samförum sé frekar erfitt. Passaðu samt líka að nefna alla þá góðu hluti sem þú elskar að hann gerir við þig en þig langi til að fara skrefinu lengra og bæta kannski sem dæmi kynlífstæki inn í leikinn.

 

Hafðu í huga að það sem þú stingur uppá er ætlað fyrir þig. Ég gef mér það að þú hafir fengið fullnægingu áður í lífinu – ein eða með öðrum maka – þannig vertu viss um að stinga upp á hlutum sem þú veist að koma þér á leiðarenda.

 

Þegar þú hefur sagt honum hvað þig langar að gera þá getur þú gert leikinn ennþá heitari með því að sýna honum nákvamlega hvernig þú vilt það. Skapaðu rétta andrúmsloftið með sexy tónlist og mjúkri birtu eins og kertaljós. Byrjið rólega með því að snerta ykkur sjálf – þetta er frábær leið til að sýna makanum hvernig þú vilt láta snerta þig og sjá hvernig makinn vill vera snertur, svona eins og sýnikennsla. Þar á eftir getur þú beðið hann að snerta þig með þér; finna taktinn saman þangað til þú finnur að hann er að gera réttu hlutina. Með svona glóðheitum forleik þá verðið þið brátt tilbúin að hefja samfarir.

 

Leyfðu honum að heyra ef hann gerir eitthvað sem þér finnst unaðslegt og hvettu hann til að halda því áfram og að sama skapi ef þú vilt örlitlar breytingar eins og færa smá til hægri, vinstri, upp eða niður þá segðu honum frá því.

 

Þannig að á meðan þú hættir að feika fullnægingar og ferð að nota samskiptin ykkar sem sleipiefni (communication as your lubrication) þá ferð þú að upplifa og fá unaðslegar fullnæginar með makanum þínum.

 

Gerður