Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Drottning allra sogtækja

Hefur þú heyrt um drottningu allra sogtækja?


Mjög líklegt er að þú hafir einhvern tímann heyrt um Womanizer, en það er sá framleiðandi sem fann upp á tækninni sem líkir eftir léttu sogi. Sogtæki líkja því eftir unaðslegum munnmökum og eru tæki sem öll þau sem hafa sníp verða að prófa!


Sogtækið Premium 2 er lang vinsælasta sogtækið frá Womanizer og það er tækið sem við köllum drottningu allra sogtækja. Tækið einkennist af gæða hönnun og framúrskarandi tækni eiginleikum. Það hefur einstaklega fallegt útlit, þægilega lögun og er sérstaklega hannað með það í huga að passa vel í hendi sem gerir það einstaklega auðvelt að stjórna tækinu.


Þrýstibylgju tæknin líkir eftir léttu sogi en örvunin er kraftmikil og líkir eftir unaðslegum munnmökum sem er hreint út sagt einstök upplifun. Við hjá Blush mælum með því fyrir öll þau sem eru með sníp að prófa þessa unaðslegu og einstöku upplifun!

Ef farið er aðeins yfir útlitshönnunina á Premium 2 að þá er tækið einstaklega mjúkt viðkomu og er umlukið silkimjúku umhverfisvænu sílikoni. Það fæst hjá okkur í fimm fallegum litum og er skreytt með gylltri eða silfurlitaðri rönd sem gefur því þetta háklassa útlit sem einkennir Womanizer vörurnar. Stúturinn á Premium 2 er einnig úr silkimjúku umhverfisvænu sílikoni og er til í þremur stærðum en stærðir S og M fylgja með pakkanum. Hægt er að kaupa stærð L hjá okkur í Blush. 


Tækni eiginleikar tækisins eru fram úr öllum vonum, en Premium 2 er eitt af fáum tækjum sem sýnir alltaf hve mikil hleðsla er á tækinu sem kemur í veg fyrir að hleðslan klárist á hápunkti fullnægingarinnar. Við erum örugglega öll sammála því að það er ekkert eins dónalegt og þegar tækið deyr á manni.


Womanizer Premium 2 er vara sem ætti að vera til í öllum náttborðsskúffum landsins! Tæki sem hægt er að treysta á og heldur áfram að gefa og gefa.