Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Bleikur Október

Ef það er einhvern tímann tilefni til þess að fræðast um brjóst að þá er það núna!


Bleikur október hefur í fjölda ára verið mikilvægur liður í vitundarvakningu fyrir brjóstakrabbamein. Við í Blush leggjum okkar af mörkum og munum við selja Bleiku slaufuna í verslun okkar á Dalvegi 32b.

Einnig munu 1000 kr af hverri seldri Reset vöru renna til Krabbameinsfélagsins í október. Við hvetjum þig til að næla þér í Bleiku slaufuna í ár og leggja þitt af mörkum til styrktar þessu mikilvæga málefni.

Tölum nú aðeins um brjóst!


Brjóst eru ekki kynfæri en þau eru hinsvegar hluti af okkar kynnæmu svæðum. Það eru ótal mörg svæði á líkamanum sem eru næm fyrir snertingu og þar má nefna t.d háls, varir, brjóst og kynfæri. Snerting getur verið mikilvægur partur af forleiknum og mörg upplifa mikla örvun þegar brjóst eða geirvörtur fá að vera í aðalhlutverki.


Geirvörturnar eru ótrúlega næmar en þær hafa yfir 100 taugaenda. Við örvun skjóta þær neistum í skynjunar berki kynfæra en það er sama svæði heilans sem vaknar við örvun á kynfærum. Því geta sum fengið fullnægingu einungis við örvun á geirvörtum. 


Dæmi af góðum ráðum til þess að krydda upp á forleikinn:

Samskipti eru númer 1, 2 og 3 en þau gera upplifunina fyrir alla aðila mun unaðslegri.

Stemning getur spilað lykilhlutverk þegar kemur að því að sleppa af sér tökunum, slaka á og gefa sér tíma. Prófaðu að dimma ljósin, finna tónlist sem kveikir í þér og jafnvel kveikja á kertum. Nuddkerti geta verið unaðsleg viðbót en þau gefa frá sér dásamlegan ilm ásamt því að hægt er að nota vaxið sem nuddolíu. 

Fyrir örvun á brjóstum eða geirvörtum er hægt að fara margar ólíkar leiðir og ekkert sem þarf að vera flókið. Sjúga, sleikja, nudda eða jafnvel blása. Látið hugmyndaflugið reika og prófið ykkur áfram með það sem ykkur finnst gott.


Þar sem húðin okkar er ótrúlega næm fyrir snertingu og þá sérstaklega okkar kynnæmu svæði, þá eru alls kyns vörur sem hægt er að nota til þess að færa örvunina upp á næsta stig. Silicone Whip, fjöður eða pinwheel er hægt að nota til þess að strjúka létt yfir þau svæði og prófa sig áfram með mismunandi snertingu.


Til þess að krydda enn meira upp á leikinn getur verið skemmtilegt að prófa blindfold. Önnur skynfæri geta örvast betur og eftirvæntingin eftir snertingu byggir upp mikla spennu. Það er einnig hægt að bæta við bindibúnaði ef að fólk hefur áhuga, með því er hægt að byggja upp enn frekari spennu og eftirvæntingu.


Fyrir þau sem vilja aukna örvun er t.d hægt að prófa geirvörtuklemmur, brjóstapumpur eða geirvörtu pumpur. Pumpurnar auka blóðflæðið á þessi næmu svæði og verða brjóst og geirvörtur stinnari og næmari fyrir örvun. Geirvörtuklemmur veita hins vegar þrýsting og skerða blóðflæðið í geirvörturnar. Þegar klemmurnar eru svo fjarlægðar verða geirvörturnar næmari fyrir örvun. Hægt er að fá klemmur sem eru stillanlegar svo þú getur stjórnað þeim þrýsting sem hentar þér best.


Hægt er að bæta inn allskyns kynlífstækjum í leikinn, en hjá okkur í Blush er fjölbreytt úrval af kynlífstækjum. Einnig er hægt að koma við hjá okkur fyrir ráðleggingar og persónulega þjónustu. Það ættu öll að finna eitthvað fyrir sig.

Dæmi af tækjum til að bæta inn í leikinn:

  • Stór nuddvöndur nær að örva stórt svæði í einu, hægt er að leggja eða strjúka honum yfir brjóstin.
  • Touch Me er fingratitrari sem auðvelt er að nota, honum er komið fyrir utan um  fingur og er þá hægt að nota hann til þess að strjúka yfir t.d. geirvörturnar
  • Zumio er kraftmikill titrari sem hefur mjóan enda, hann býður því upp á mjög nákvæma örvun. Hægt er að nota hann til þess að strjúka yfir t.d. geirvörtur.
  • Infinite Joy er titrari sem býður upp á fjölbreytta möguleika. Hægt er að nota endann með tvöföldum sveigjanlegum örmum til örvunar á geirvörtur með því að klípa honum utan um þær.


Hafir þú einhvern grun um að þú sért með hnúta í brjóstum eða brjóstakrabbamein viljum við benda þér á að hafa samband við Krabbameinsfélagið og bóka þér tíma í skimun.