Bíómyndakynlíf💦
Það er erfitt að skilgreina hvað gerir góða kynlífssenu góða. Sumar eru svo einstakar að þær eru eftirminnilegri en söguþráðurinn. Aðrar eru einstakar á þann hátt að sýna kynlíf á ólíkum forsendum og kynlíf skorar á okkar skoðanir um nánd og hvað telst vera “heitt”. Aðrar eru bara mög heitar, punktur.
í tilefni valentínusarvikunar, tókum við saman lista yfir okkar uppáhalds senur úr frægum bíómyndum, tilvalið fyrir valentínusardaginn til að hita upp stemminguna fyrir kvöldið.
1. Titanic
Örugglega eins sú frægasta af öllum. Hvenær hefur kynlíf í bíl verið svona rómantískt? Við byrjum á klassík. Eftir að hafa kveikt í hitanum með nektarmyndatöku („Paint me like one of your french girls“), hlaupa elskhugarnir Rose (Kate Winslet) og Jack (Leonardo DiCaprio) af stað í farmskemmu skipsins og sanna að augnaráð, andardráttur, hendi á gleri í móðugum bíl er allt sem þarf til að koma á framfæri einstaklega heitri senu. Hafið í huga að þessi er þó mögulega ekki sú besta fyrir deit night kósíkvöld.

2. Babygirl
Það er nóg um að velja þegar kemur að heitum senum í þessari mynd.
Í þessari er Nicole Kidman forstjóri sem lendir í ástarsambandi við undirmann sinn, heitan ungan nema sem Harris Dickinson leikur, en þegar kemur að kynlífi þeirra, er hann við alla stjórn.
Það er nóg af frábærum kynlífssenum til að velja úr í þessari mynd, en sú kraftmesta gæti bara verið upphafssenan. Í henni falsar persóna Kidman, Romy, fullnægingu með eiginmanni sínum. Um leið og hann fer hoppar hún fram úr rúminu, grípur fartölvuna sína og fróar sér á gólfinu.
Samuel (Harris Dickinson) að fíla sig og dansa við "Father Figure" eftir George Michael er ein af minna skýru senum þessarar myndar um ástarsamband milli forstjóra tæknifyrirtækis (Nicole Kidman) og miklu yngri starfsnema hennar. Senan byggir upp hitann á ómótstæðilegann hátt, þar sem hinn skyrtulausi, 20 og eitthvað fær sér sopa úr viskíglasi á meðan hann dansar og dillar sér yfir til að gefa yfirmanni sínum kjöltudans á leynilegum ástarfundi.
Mögulega sú eftirminnilegasta úr myndinni er síðan mjólkurskeggsenan (If you know you know)
En þar er kynferðisleg spenna karakterana að springa þegar persóna Kidman þambar mjólkurglas. Þú verður eiginlega bara að horfa til að skilja.

3. Fifty Shades Darker
Fifty shades myndirnar eru örugglega það fyrsta sem kom í hugann þegar þú byrjaðir að lesa þessa grein, en það er ekki að ástæðulausu að þær eru taldnar með mest sexí bíómyndum sem til eru. Þó að ýmsar af þeim ótalmörgu senum í seríunni þjónuðu mismunandi tilgangi í myndunum þremur, þá stendur fyrsta senan í mynd númer tvö uppúr. Þegar Anastasia (Dakota Johnson) settist í bílstjórasætið og tók stjórn, engar svipur, keðjur eða bindibúnaður, bara Christian (Jamie Dornan) að spyrja hvað hún vill og hlýða henni, aldrei þessu vant.

4. Ghost
Önnur klassík og mögulega ástæðan að mörgum finnst eitthvað við leirhjól alveg einstaklega heitt. Sam (Patrick Swayze) og Molly (Demi Moore) eru brjálæðislega ástfangin hvort af öðru fyrir ótímabært andlát Sam. Þetta atriði gerist fyrir andlát hans, þar sem Molly er að vinna á leirhjóli þegar Sam nálgast hana aftan frá, vefur handleggjum sínum um hana til að aðstoða við að móta leirinn áður en þau einbeita sér að hvort öðru, og leirinn gleymist í sóðalegri klessu.
Í raunveruleikanum, myndir maður mögulega truflast af því að skilja leirinn eftir útum allt? Sennilega, en Swayze og Moore gera þetta alveg einstaklega með fullkominni blöndu af kærleika og unaði.

5. Notebook
Hver gæti gleymt ástríðufullasta og örugglega frægasta rigningakossi. Eftir að hafa verið aðskilin af heimsstyrjöld og móður sem truflaði, sameinast Noah (Ryan Gosling) og Allie (Rachel McAdams) á ný. Það er einstaklega heitt að sjá þau henda í örvæntingu frá sér regnblautu fötunum og sýna að þetta væri ekki búið í hægri baklýstri ástarsenu, fulla af uppbygðri þrá. Allie segir svo “let’s do it again” þegar þau loksins fá tækifæri til að ná andanum (við myndum líklega segja það sama við Ryan Gosling í þeirri stöðu líka).

6. Blue Valentine
Er það ofmetið að setja tvær kynlífssenur undir stjórn Ryan Gosling? Okkur finnst það ekki. Gosling og Michelle Williams leika í þessari rómantísku drama mynd sem fjallar um par frá unglingsárum til fullorðinsára. Þau eru ung og ástfangin og blanda einstaklega vel kjánaskap og unaði þegar Dean (Ryan Gosling) spilar geisladisk (munið þið eftir þeim?) fyrir kærustuna sína sem inniheldur ástarlag sem hann valdi bara fyrir hana. Hlutinn þar sem hann hallar sér yfir hana, hálsmenið dinglandi niður, á meðan hann sönglar með textanum, vá. Rómantískt augnablik ef við höfum einhverntíman séð það.

7. Mr and Mrs Smith
Myndin í heild er mjög spennuþrungin en það er ákveðinn hápunktur þegar herra og frú Smith koma að lokum saman eftir mjög ofbeldisfulla atburðarás ef það má orða það þannig. Senan er stútfull af hrárri löngun og persónurnar stunda alveg einstaklega, hmm, hávært kynlíf um allt húsið.

8. Friends with Benefits
Gamanmynd þar sem persónur Milu Kunis og Justin Timberlake, fylgir einstaklega skemmtilegri atburðarás þar sem persónurnar taka upp sáttmála að stunda kynlíf með engum skuldbindingum. Þar er líka að finna senu þar sem aðalpersónur myndarinnar stunda kynlíf og segja mjög skýrt og nákvæmt hvað þau þurfa til að klára. Eitthvað sem líklega flestir geta tekið til sín.

9. Challengers
Þó svo að sumir hafi orðið fyrir vonbrigðum vegna skorts á raunverulegum þríkanti aðalpersóna myndarinnar, eða einhverskonar kynlífi yfir höfuð, þá tekst myndinni vel til að byggja upp spennuþrungið samband þeirra þriggja. Tashi Duncan (Zendaya) segir að tennis er samband og því er einstaklega spennandi og heitt að sjá þegar Tashi lætur strákana Art og Patrick (Mike Faist og Josh O’Connor) kyssast og í raun allar þær senur þar sem hún er alveg að fara stunda kynlíf með þeim og alveg sérstaklega þegar strákarnir eru augljóslega að daðra við hana. Heitasta senan er svo tennisleikurinn í lok myndarinnar. Ef þú ert ósammála þá þarft þú bara að horfa aftur.

10. Nosferatu
Hryllingsmyndinni var strax við útgáfu, hrósað fyrir að fagna greddu, sérstaklega hvernig litið var á greddu kvenna á þeim tíma og einnig hvernig myndin kannar nánd á ýmsann hátt.
Ekki miskilja þó, myndin er skilgreiningin á “gothic horror” hryllingsmynd með öllu sem því fylgir.
Það eru samt nokkur heit auganblik í myndinni á milli hryllingsins. Sú sena sem er mögulega minnst óhugnaleg (samt ekki) er þegar Ellen hutter (Lily-Rose Depp) aðalpersóna myndarinnar, stríðir eiginmanni sínum Thomas (Nicholas Holt), þar til hann gjörsamlega springur úr reiði og ástríðu sem endar í mjög áköfu kynlífi þeirra hjóna.

Hver er þín uppáhalds kynferðislega, spennuþrungna eða heita bíómyndasena?