Dalvegi 32: Opið til 18:00 · Glerártorgi Akureyri: Opið til 18:00

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

Aftercare!

Hvað er Aftercare og af hverju er það mikilvægt?


Hugtakið aftercare á ensku eða eftirfylgni/ eftirmeðferð/ umhyggja á íslensku í þessu samhengi, kemur úr BDSM heiminum.


Aftercare er þegar andrúmsloftið er endurstillt eftir kynlíf.


Í BDSM kynlífi og kink leikjum, eru oft settar upp senur, þar sem leiknar eru fantasíur sem innihalda oft valdaleiki sem geta verið tilfinningalegir og/eða líkamlegir.


Eftir slíka leiki er mikilvægt að endursetja andrúmsloftið svo að öll sem tóku þátt séu á góðum andlegum og líkamlegum stað.


Tilfinningaleg viðbrögð eftir BDSM athafnir geta verið mjög mismunandi, allt frá vellíðan til sorgar eða þunglyndis. Þó þessi viðbrögð eru stundum ekki beintengd BDSM eða kynlífi, benda rannsóknir á algengi þessara tilfinninga.


Til dæmis, rannsóknir sem birtar voru í Journal of Sexual Medicine leiddu í ljós að 46% kvenna og 41% karla í könnuninni sögðust hafa fundið fyrir þunglyndi eftir kynlíf að minnsta kosti einu sinni á ævinni. Þó svo að þessi rannsókn hafi auðvitað verið takmörkuð og ekki hægt að alhæfa, bendir þetta á mikilvægi þess að sinna tilfinningalegu hlið aðila eftir kynlíf.


Traust og samskipti eru grundvallaratriði í BDSM kynlífi og leikjum. Þáttakendur eru hvattir til að koma sér saman um orð eða skýrt merki til að hætta leik. Eftirmeðferð getur verið nauðsynleg til að draga úr spennu eftir senu og auka nánd milli þáttakenda.Þessar aðferðir stuðla ekki aðeins að tilfinningalegum bata heldur hjálpa einnig til við að styrkja traust, til þess að geta rætt leikinn eða senuna eftirá og gerir þáttakendum kleift að takast á við hvað virkaði og hvað virkaði ekki.

Aftercare getur litið allskonar út og þarf ekki endilega að eiga bara við eftir BDSM eða kink senur, heldur getur aftercare átt við í öllu kynlífi.


Aftercare getur til dæmis verið að fara í sturtu saman, kúra, fá sér snarl, leggja sig, spjalla saman, nudd, rólegar öndunaræfingar, horfa á þátt, bara hvað sem er sem lætur ykkur líða vel.


Að stunda aftercare eftir kynlíf getur verið mjög góð leið til að byggja traust með maka eða leikfélaga.



Hvað finnst þér gott að gera til að endurstilla andrúmsloftið og auka nánd eftir kynlíf?