Dalvegi 32: Opnar 12:00 á morgun · Glerártorgi Akureyri: Opnar 12:00 á morgun

Frí sending í póstbox af öllum pöntunum yfir 15.000 kr!

6 frábærar leiðir til að bæta kynlöngun

Einstaklingar í samböndum geta oft upplifað ákveðna pressu þegar kemur að kynlífi, eins og að eiga alltaf að vera tilbúin til að stunda kynlíf öllum stundum og að kynlöngun eigi alltaf að vera til staðar. Hins vegar þó að það sé reynsla sumra, þá er það alls ekki raunin fyrir alla.Margar ástæður geta tengst lítilli kynlöngun eins og streita, kvíði, þunglyndi, samskiptavandi, vandamál í sambandi, meðganga, tíðahvörf, áfengisneysla, lyfjanotkun, þurrkur í leggöngum, heilsufar og margt fleira.Ef þú ert að leita að leiðum til að auka kynlöngun þá eru hér 6 frábærar leiðir til að hafa í huga.

Hvað er kynlöngun?

En hvað er kynlöngun? Kynlöngun er hugtak sem almennt er notað til að lýsa kynhvöt einstaklinga eða löngun þeirra til kynlífs. Kynlöngun hvers og eins er mismunandi og getur sveiflast með tímanum. Eins getur kynlöngun verið undir áhrifum utanaðkomandi aðstæðna, lífstíls eða líkamlegs og andlegs ástands. 


Það er ekki til mælikvarði á eðlilega eða óeðlilega löngun í kynlíf. Sum hafa löngun í kynlíf nokkrum sinnum á dag á meðan annað fólk vill það alls ekki. Mælikvarðinn er algjörlega persónubundinn og fer eftir því hvað þér finnst vera lítil eða mikil kynlöngun. Ef þér líður eins og kynlöngun sé of lítil og þig langar til að hafa meiri áhuga þá er ágætt að kanna hvað það er sem veldur lítilli kynlöngun.


Þegar þú hefur komist að því hvað veldur getur þú farið að vinna í að bæta og byggja upp kynlöngunina þína. Hér ætlum við að fara yfir sex einfaldar en mikilvægar leiðir sem geta hjálpað þér að bæta þína kynlöngun.

Svefn

Svefn er okkur lífsnauðsynlegur og hefur áhrif á lífsgæði okkar, vellíðan og árangur á mörgum sviðum. Langvarandi svefnleysi getur haft áhrif á kynlöngun til langs tíma en þreyta er algeng ástæða þess að fólk stundar ekki kynlíf. Svefnvandamál geta stafað af líkamlegum þáttum eins og hormónabreytingum eða tíðahvörfum en einnig utanaðkomandi þáttum eins og barneignum, streitu og álagi.


Svefn og kynlíf eru bæði hluti af grunnþörfum mannsins en heilbrigðar svefnvenjur minnka líkur á sjúkdómum, auka lífsgæði, vellíðan og geta haft jákvæð áhrif á kynlöngun. Ef þú tengir litla kynlöngun við langvarandi svefnleysi eða slæmar svefnvenjur þá er gott ráð að forgangsraða svefni og vinna í að bæta svefnvenjur. Í kjölfarið getur þú tekið eftir aukinni orku, vellíðan og jafnvel meiri löngun í að stunda kynlíf.


Nokkrar leiðir til að bæta svefnvenjur:

  • Takmarka skjátíma fyrir svefn
  • Takmarka koffínneyslu seinnipart dags
  • Fara að sofa á sama tíma á hverju kvöldi
  • Regluleg hreyfing
  • Takmarka áfengisneyslu

Hreyfing

Eins og svefn þá stuðlar regluleg hreyfing að andlegu og líkamlegu heilbrigði. Regluleg hreyfing hefur áhrif á streitu, andlega heilsu, sjálfsvitund, lífsgleði og aukið sjálfstraust. Þegar þú stundar hreyfingu losar líkaminn hormón eins og endorfín, serótónín og dópamín sem eykur vellíðan og gefur þér aukna orku. Regluleg hreyfing hefur einnig jákvæð áhrif á líkamsímynd og sjálfstraust. Því er ljóst að finna má tengsl á milli hreyfingar og aukinnar löngunar í kynlíf.


Regluleg hreyfing eykur einnig kynhormónið testósterón. Yfirleitt þekkjum við það sem kynhormón karla en það gegnir einnig mikilvægu hlutverki í líkama kvenna. Testósterónmagn kvenna nær yfirleitt hámarki í tíðahringnum á egglosdegi en þá er kynlöngun kvenna oft í hámarki. Ekki má gleyma því að tíðahringur kvenna og hormónasveiflur sem honum tengjast getur haft áhrif á kynlöngun.


Að hreyfa sig daglega, minnst 30 mínútur á dag, getur því hjálpað þér að bæta kynlöngun til muna. Styrktaræfingar, jóga og sund eru dæmi um góða hreyfingu en ekki má gleyma grindarbotninum. Öll kyn ættu að þjálfa grindarbotninn reglulega en það felur í sér að spenna vöðvana í kringum þvagrás, leggöng eða blöðruhálskirtil og endaþarm. Til að finna réttu vöðvana getur verið ráð að stöðva þvagbunu í stutta stund. Mikilvægt er að þjálfa grindarbotninn reglulega þar sem sterkur grindarbotn getur aukið ánægjuna af kynlífi.

Mataræði

Hreyfing og svefn hefur jákvæð áhrif á kynlöngun og því ætti það ekki að koma á óvart að þar getur næringarríkt mataræði einnig haft áhrif. Mataræðið er stór þáttur þegar kemur að því að lifa heilbrigðu lífi og um leið auka lífsgæði og vellíðan. Eins og fyrr segir skiptir lífsstíll, líkamlegt og andlegt ástand miklu máli þegar kemur að kynlöngun.


Að borða fjölbreytta fæðu úr öllum flokkum fæðuhringsins er mikilvægt fyrir heilsu og líðan en mataræði sem inniheldur grænmetisprótein, andoxunarefni og omega 3 fitusýrur getur haft jákvæð áhrif á kynlöngun og jafnvel frjósemi. Hér má nefna fæðu eins og heilkorn, ferskt grænmeti, sítrusávexti, belgjurtir, hnetur og sjávarfang. Gott er að halda hvítu hveiti og sykri í lágmarki.


Fjölbreytt fæða og næring hefur því, líkt og svefn og hreyfing, áhrif á kynlöngun en í því samhengi má einnig nefna ákveðin náttúruleg bætiefni sem geta aukið hana enn frekar.

Bætiefni

Til eru hin ýmsu bætiefni og lyf til að auka kynlöngun. Ef þú vilt halda þig við náttúrulegar leiðir til að auka kynlöngun þá geta jurtir eða rætur verið frábær kostur. Dæmi um náttúruleg bætiefni sem geta haft jákvæð áhrif á kynlöngun eru Maca, Ashwagandha og Ginkgo Biloba. 


Maca rótin er rík af næringarefnum, amínósýrum og andoxunarefnum. Hún er helst þekktust fyrir að koma jafnvægi á hormón og er talin orkugefandi, kynörvandi og næringarrík fyrir bæði taugakerfið og andlega líðan. Einnig er talið að Maca rótin komi jafnvægi á estrógenmagn í líkamanum. Rótin eykur ekki aðeins kynlöngun hjá konum, heldur öllum kynjum, og telst vera gott stinningarlyf.


Ashwagandha er eins og Maca rótin talin stuðla að jafnvægi og hjálpa líkamanum að takast á við streitu, þreytu og orkuleysi. Hún er talin sérstaklega góð til að koma jafnvægi á andlega líðan og dregur úr kvíða og þunglyndi hjá konum sem komnar eru á breytingaskeiðið. Rótin örvar einnig blóðflæði og eykur næmi og örvun og er því sérstaklega vinsæl þegar kemur að því að auka kynlöngun og kynferðislega örvun á náttúrulegan hátt.


Að lokum má nefna Gingko Biloba en jurtin hefur góð áhrif á æðakerfi og blóðstreymi og er þekkt fyrir að hafa góð áhrif á einbeitingu og úthald. Jurtin er talin vera góð til að nota við stinningarvandamálum og lítilli löngun í kynlíf.


Þessi þrjú náttúrulegu bætiefni fást í helstu apótekum og matvöruverslunum.

Sjálfstraust

Eins og líkamlegir þættir, sem við höfum farið yfir hér að framan, þá hafa andlegir þættir einnig áhrif á kynlöngun og þar getur líkamsímynd og sjálfstraust spilað stórt hlutverk. Líkamsímynd er það hvernig við hugsum um líkamann okkar og hvernig okkur líður í líkamanum. Ef að þú ert með lítið sjálfstraust og líður ekki vel í eigin skinni þá getur það haft áhrif á löngun þína í kynlíf. 


En hvernig getur þú bætt sjálfstraustið? Þau atriði sem talin hafa verið upp hér að framan eins og regluleg hreyfing, næringarríkt mataræði og heilbrigðar svefnvenjur geta öll haft áhrif á andlega líðan og sjálfsöryggi. Hins vegar getur það einnig hjálpað til að einbeita sér að öðrum hlutum en líkamlegum þáttum. 


Að breyta hugsunarhætti, sýna sér sjálfsmildi, þjálfa þakklæti, klæða sig á þann hátt sem lætur þér líða vel, hafa raunsæjar væntingar og takmarka það að skoða efni og miðla sem láta þér líða illa getur hjálpað til. Það að vinna í bæði líkamlegum og andlegum þáttum hjálpar þér að byggja upp sjálfstraust, jákvæða líkamsímynd og um leið að auka kynlöngunina.

Samskipti

Að lokum þá eru samskipti þín við maka lykilatriði þegar kemur að því að bæta kynlöngun og að lifa fullnægjandi kynlífi sem báðir aðilar njóta góðs af. Lítil kynlöngun tengist oft samskiptavanda við maka sem um leið getur valdið vandamálum og togstreitu í sambandinu. Því er mikilvægt að kunna að tjá sig og vera heiðarleg með væntingar og langanir. Ræðið opinskátt um kynlíf og talaðu um hvað það er sem þér finnst gott, hvað það er sem þig langar til að prófa í kynlífi og sýndu maka hvernig þú vilt láta snerta þig.


Samtalið er stór hluti af því að gera kynlífið enn betra og þegar þú þekkir nákvæmlega þínar langanir og þrár sem og maka þá eykst löngunin í kynlíf til muna. Verið ófeimin við að tala saman um ykkar kynlöngun og ef upp koma tímabil þar sem kynlöngun minnkar og ræðið saman um mögulegar ástæður.


Eins og fyrr segir er kynlöngun hvers og eins mismunandi og það er fullkomlega eðlilegt. Hvort sem kynlöngun þín er lítil eða mikil, þá skiptir það ekki öllu máli svo framarlega sem þér líður vel með kynlífið. Ef þú upplifir minni kynlöngun en það sem þér þykir eðlilegt þá geta verið margar ástæður eins og rakið hefur verið hér að framan og því tilvalið að prófa eitthvað af þessum aðferðum.