4 hlutir sem þú ættir ALDREI að gera í kynlífi!
Kynlíf getur verið dásamlegt, en það eru þó nokkrir hlutir sem vert er að hafa í huga. Til þess að hjálpa þér að bæta kynlífið þitt, þá langar mér að benda á nokkra hluti sem gott er að hafa á bakvið eyrað.
1. Ekki vanmeta hættuna á kynsjúkdómum
Ef þú ert að stunda kynlíf utan sambands, án þess að nota smokk, ertu að taka áhættu á að smitast af kynsjúkdómum. Þið hafið auðvitað heyrt þetta áður, en einstaka kynsjúkdóma getur verið erfiðara að meðhöndla heldur en aðra.
2. Ekki nota olíu kennd sleipiefni með latex smokkum
Ef þú notar ekki viðeigandi sleipiefni getur þú fundið fyrir ónotum í kynlífi, sérstaklega þegar kemur að samförum í endaþarm. Sleipiefni eru mismunandi og því er mikilvægt að nota rétt sleipiefni. Olíu kennd sleipiefni, þar á meðal náttúruleg sleipiefni á borð við olívuolíu eða kókosolíu, geta skemmt smokkinn. Það gerist vegna þess að latexið í smokkinum brotnar niður og gerir hann óöruggan. Ef þú ert að nota smokka, skaltu nota vatnsuppleysanlegt sleipiefni eða silikon sleipiefni.
3. Ekki stinga mat upp í leggöngin
Alls ekki gera það! Grænmeti eða ávextir eiga ekki heima í leggöngum eða endaþarmi. Ástæðan er sú að hlutar af matnum getur brotnað af og orðið eftir inni í leggöngunum og orðið til vandræða. Það sama á við um endaþarminn - ekkert sem ekki er gert til þess að fara í endaþarm á að fara þangað.
Þú vilt ekki setja neitt í endaþarminn sem gæti týnst þar inni.
4. Ekki þrýsta á maka þinn að klára
Ef þú einbeitir þér of mikið að því að klára getur það leitt til vandamála í sambandinu. Það getur alltaf gerst að maki þinn nái ekki að fá fullnægingu og er allt í lagi. Þú gætir spurt hvort þú getir aðstoðað maka þinn á meðan viðkomandi reynir að fullnægja sér sjálfur, til dæmis með kossum og strokum. Þú getur jafnvel notið þess að horfa á maka þinn fá fullnægingu.
Þegar þú kemst yfir hugmyndina að kynlífi ljúki alltaf með fullnægingu, gæti verið að þú skemmtir þér enn meira í kynlífinu.



