Tyler
Tyler er fyrirferðarlítill parahringur frá Svakom sem hægt er að nota með eða án maka. Önnur hlið hringsins hefur gróft munstur sem veitir auka örvun. Tyler auðveldar þeim sem eru með typpi að halda stinningu og getur veitt dýpri fullnægingu. Hægt er að setja hringinn innst á typpið í kynlífi með maka þar sem hinn endinn á tækinu leggst á og örvar snípinn.
- Hlutlausar umbúðirÓmerktur pakki, enginn sér hvað er í honum
- Frí sending í póstboxAf öllum pöntunum yfir 15.000 kr.
- Ráðgjöf í verslunÁ Dalvegi 32 og á Glerártorgi
Vörulýsing
Tyler er líka hægt að nota sem fingratitrara til að örva snípinn á sama tíma og fingur fara inn í leggöng eða nota sem egg. Auðvelt er að koma hringnum utan um strap-on. Einnig er hægt er að snúa honum á þann hátt að annar endinn leggst á punginn og veitir örvun þar. Tækið hentar vel fyrir gagnkynja og samkynja pör.
Tækið er endurhlaðanlegt og endist hleðslan í allt að eina klukkustund og tekur um eina klukkustund að full hlaða. Með hringnum fylgir hleðslusnúra sem stungið er í samband fyrir miðju á annari hlið tækisins. Hleðslusnúran er USB og er hægt að stinga í samband við hleðslukubb. Ekki er ráðlagt að nota tækið á meðan að það er í hleðslu. Það er einstaklega hljóðlátt og fæst í svörtu.
Stillingar:
Á tækinu sjálfu er einn takki sem er notaður til að kveikja, slökkva og skipta um stillingar. Halda þarf takkanum inni til að kveikja og slökkva. Þegar ýtt er einu sinni á takkann skiptir hann um kraftstillingu en ef tvísmellt er á takkann skiptir hann um taktstillingu. Tyler hefur 3 kraftstillingar og 5 taktstillingar. Tækið er sturtuhelt en þolir ekki að fara á kaf í vatni eins og í bað eða heitan pott.
Titringurinn í Tyler er 3 á Blush skalanum 1-5 Fyrir nánari upplýsingar um hvernig við flokkum vörunar okkar eftir krafti ýtið HÉR
Tyler er úr silíkoni og hentar því eingöngu vatnssleipiefni með honum þar sem silíkon sleipiefni getur skemmt hann.
Tækið kemur i vönduðum umhverfisvænum pappaumbúðum og inniheldur: Tyler, flauel poka, hleðslusnúru, leiðbeiningar um vöruna og ábyrgðarskírteini.
Upplýsingar:
- Efni: Umhverfisvænt silíkon
- Stærð: 8,0 x 4,2 x 4,2 cm
- Þyngd: 31g
- Rafhlaða: 100 mAh Lithium rafhlaða
- Hleðslutími: 1 klukkustund
- Ending rafhlöðu: 1 klukkustund
- Kraftstillingar: 3
- Taktstillingar: 5
- Vatnshelt: Sturtuhelt (splash proof)
- Sleipiefni: Vatnsleysanlegt
Þrif: Nota skal milda ilmefnalausa sápu eða sérstaka kynlífstækjasápu til að þrífa tækið eftir hverja notkun. Varist að nota spritt eða fituleysandi sápur þar sem það getur skemmt tækin.
Fyrir frekari upplýsingar um vöruna bendum við þér á að senda email á Blush@blush.is
Myndband
Svakom
Looking for a sex toy for yourself or a partner? We offer range of industry's most advanced sex toys for the ultimate pleasure. Find & buy a sex toy today!





















